Read 4 Mósebók Chapter 8 Online
Read 4 Mósebók Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 4 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 4 Mósebók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
4 Mósebók 8
Kafli 8
1. Drottinn talaði við Móse og sagði:
2. "Tala þú við Aron og seg við hann: Þá er þú setur upp lampana, skulu lamparnir sjö varpa ljósi sínu fram undan ljósastikunni."
3. Og Aron gjörði svo. Hann setti lampana upp framan á ljósastikuna, eins og Drottinn hafði boðið Móse.
4. Þetta var smíðið á ljósastikunni: Hún var gjör af gulli með drifnu smíði, bæði stétt hennar og blóm var drifið smíði. Hafði hann gjört ljósastikuna eftir fyrirmynd þeirri, er Drottinn hafði sýnt Móse.
5. Drottinn talaði við Móse og sagði:
6. "Skil þú levítana úr Ísraelsmönnum og hreinsa þá.
7. Og þetta skalt þú við þá gjöra til þess að hreinsa þá: Stökk þú á þá syndhreinsunarvatni, og þeir skulu láta rakhníf ganga yfir allan líkama sinn og þvo klæði sín og hreinsa sig.
8. Og þeir skulu taka ungneyti og matfórn, er því fylgir, fínt mjöl olíublandað, og annað ungneyti skalt þú taka í syndafórn.
9. Síðan skalt þú leiða levítana fram fyrir samfundatjaldið og safna saman öllum söfnuði Ísraelsmanna.
10. Og þú skalt leiða levítana fram fyrir Drottin, og Ísraelsmenn skulu leggja hendur sínar yfir þá.
11. Og Aron skal helga levítana sem fórn frammi fyrir Drottni af hendi Ísraelsmanna, og skulu þeir takast á hendur að gegna þjónustu Drottins.
12. En levítarnir skulu leggja hendur sínar á höfuð nautanna. Öðru skal fórna í syndafórn og hinu í brennifórn Drottni til handa til þess að friðþægja fyrir levítana.
13. Og þú skalt leiða þá fram fyrir Aron og fram fyrir sonu hans og helga þá sem fórn Drottni til handa.
14. Og þú skalt greina þá frá Ísraelsmönnum, svo að þeir heyri mér.
15. Því næst skulu levítarnir ganga inn til þess að gegna þjónustu við samfundatjaldið, og þú skalt hreinsa þá og helga þá sem fórn,
16. því að þeir eru gefnir mér til fullkominnar eignar af Ísraelsmönnum. Í stað alls þess er opnar móðurlíf, í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna hefi ég tekið þá mér til eignar,
17. því að ég á alla frumburði meðal Ísraelsmanna, bæði menn og skepnur. Á þeim degi, er ég laust alla frumburði í Egyptalandi, helgaði ég mér þá.
18. Og ég tók levítana í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna.
19. Og ég gaf þá Aroni og sonum hans til eignar af Ísraelsmönnum, til þess að þeir gegni þjónustu fyrir Ísraelsmenn í samfundatjaldinu og til þess að þeir friðþægi fyrir Ísraelsmenn, svo að eigi komi plága yfir Ísraelsmenn, þá er Ísraelsmenn koma nærri helgidóminum."
20. Móse og Aron og allur söfnuður Ísraelsmanna gjörði svo við levítana. Gjörðu Ísraelsmenn að öllu leyti svo við þá sem Drottinn hafði boðið Móse um þá.
21. Levítarnir syndhreinsuðu sig og þvoðu klæði sín, og Aron helgaði þá sem fórn frammi fyrir Drottni, og Aron friðþægði fyrir þá til þess að hreinsa þá.
22. Gengu levítarnir því næst inn til þess að gegna þjónustu sinni í samfundatjaldinu fyrir augliti Arons og fyrir augliti sona hans. Gjörðu þeir svo við levítana sem Drottinn hafði boðið Móse um þá.
23. Drottinn talaði við Móse og sagði:
24. "Þetta gildir um levítana: Frá því þeir eru tuttugu og fimm ára og þaðan af eldri skulu þeir koma til þess að gegna herþjónustu með þjónustu í samfundatjaldinu.
25. En frá því þeir eru fimmtugir skulu þeir láta af þjónustunni og eigi þjóna framar.
26. Þeir mega veita bræðrum sínum aðstoð í samfundatjaldinu og annast það, sem annast ber, en þjónustu skulu þeir eigi gegna. Þannig skalt þú fara með levítana, að því er kemur til sýslunar þeirra."
About 4 Mósebók Chapter 8
Read 4 Mósebók Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 4 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 4 Mósebók
Chapter: 8
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 4 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 4 Mósebók Chapter 8 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 4 Mósebók Chapter 8?
4 Mósebók Chapter 8 is part of the Book of 4 Mósebók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 4 Mósebók Chapter 8 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 4 Mosebok
- 4 Mósebók Chapter 31
- 4 Mósebók Chapter 3
- 4 Mósebók Chapter 6
- 4 Mósebók Chapter 2
- 4 Mósebók Chapter 16
- 4 Mósebók Chapter 10
- 4 Mósebók Chapter 35
Explore More from Gamla Testamentið
- Jesaja Chapter 56
- 1 Kroníkubók Chapter 7
- 1 Samúelsbók Chapter 13
- Sálmarnir Chapter 136
- 1 Mósebók Chapter 14
- 2 Konungabók Chapter 18
- 1 Konungabók Chapter 8