Orðskviðirnir Chapter 17

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 17 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 17 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 17

Kafli 17

1. Betri er þurr brauðbiti með ró en fullt hús af fórnarkjöti með deilum.

2. Hygginn þræll verður drottnari yfir spilltum syni, og hann tekur erfðahlut með bræðrunum.

3. Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið, en Drottinn prófar hjörtun.

4. Illmennið gefur gaum að fláræðis-vörum, lygin hlýðir á glæpa-tungu.

5. Sá sem gjörir gys að fátækum, óvirðir þann er skóp hann, og sá sem gleðst yfir ógæfu, sleppur ekki óhegndur.

6. Barnabörnin eru kóróna öldunganna, og feðurnir eru heiður barnanna.

7. Ekki hæfa heimskum manni stóryrði, hve miklu síður göfgum manni lygavarir.

8. Mútan er gimsteinn í augum þess er hana fær, hvert sem maður snýr sér með hana, kemur hann sínu fram.

9. Sá sem breiðir yfir bresti, eflir kærleika, en sá sem ýfir upp sök, veldur vinaskilnaði.

10. Ávítur fá meira á hygginn mann en hundrað högg á heimskingja.

11. Uppreisnarmaðurinn hyggur á illt eitt, en grimmur sendiboði mun sendur verða móti honum.

12. Betra er fyrir mann að mæta birnu, sem rænd er húnum sínum, heldur en heimskingja í flónsku hans.

13. Sá sem launar gott með illu, frá hans húsi víkur ógæfan eigi.

14. Þegar deila byrjar, er sem tekin sé úr stífla, lát því af þrætunni, áður en rifrildi hefst.

15. Sá sem sekan sýknar, og sá sem saklausan sakfellir, þeir eru báðir Drottni andstyggð.

16. Hvað stoða peningar í hendi heimskingjans til þess að kaupa speki, þar sem vitið er ekkert?

17. Vinur elskar ætíð og í nauðum er hann sem bróðir.

18. Óvitur maður er sá, er til handsala gengur, sá sem gengur í ábyrgð fyrir náunga sinn.

19. Sá elskar yfirsjón, sem þrætu elskar, sá sem háar gjörir dyr sínar, sækist eftir hruni.

20. Rangsnúið hjarta öðlast enga gæfu, og sá sem hefir fláráða tungu, hrapar í ógæfu.

21. Sá sem getur af sér heimskingja, honum verður það til mæðu, og faðir glópsins fagnar ekki.

22. Glatt hjarta veitir góða heilsubót, en dapurt geð skrælir beinin.

23. Hinn óguðlegi þiggur mútur á laun til þess að beygja leiðir réttvísinnar.

24. Hygginn maður hefir viskuna fyrir framan sig, en augu heimskingjans eru úti á heimsenda.

25. Heimskur sonur er föður sínum til sorgar og þeirri til angurs, er ól hann.

26. Það eitt að sekta saklausan er ekki gott, en að berja tignarmenni tekur þó út yfir.

27. Fámálugur maður er hygginn, og geðrór maður er skynsamur.

28. Afglapinn getur jafnvel álitist vitur, ef hann þegir, hygginn, ef hann lokar vörunum.

About Orðskviðirnir Chapter 17

Read Orðskviðirnir Chapter 17 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 17
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 17 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 17?

Orðskviðirnir Chapter 17 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 17 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 16
  2. Orðskviðirnir Chapter 12
  3. Orðskviðirnir Chapter 26
  4. Orðskviðirnir Chapter 29
  5. Orðskviðirnir Chapter 9
  6. Orðskviðirnir Chapter 19
  7. Orðskviðirnir Chapter 8

Related Chapters & Readings

  1. 1 Samúelsbók Chapter 9
  2. 1 Kroníkubók Chapter 29
  3. Jobsbók Chapter 17
  4. Prédikarinn Chapter 9
  5. Esekíel Chapter 23
  6. 1 Pétursbréf Chapter 4
  7. 1 Mósebók Chapter 16
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *