Orðskviðirnir Chapter 21

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 21 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 21 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 21

Kafli 21

1. Hjarta konungsins er eins og vatnslækir í hendi Drottins, hann beygir það til hvers, er honum þóknast.

2. Manninum þykja allir sínir vegir réttir, en Drottinn vegur hjörtun.

3. Að iðka réttlæti og rétt er Drottni þóknanlegra en sláturfórn.

4. Drembileg augu og hrokafullt hjarta eru lampi óguðlegra, – allt er það synd.

5. Fyrirætlanir iðjumannsins reynast fésamar vel, en öll flasfærni lendir í fjárskorti.

6. Fjársjóðir, sem aflað er með lygatungu, eru sem þjótandi vindblær, snörur dauðans.

7. Ofríki hinna óguðlegu dregur þá á eftir sér, því að þeir færast undan að gjöra það, sem rétt er.

8. Boginn er vegur þess manns, sem synd er hlaðinn, en verk hins hreina eru ráðvandleg.

9. Betri er vist í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu.

10. Sál hins óguðlega girnist illt, náungi hans finnur enga miskunn hjá honum.

11. Sé spottaranum refsað, verður hinn einfaldi hygginn, og sé vitur maður fræddur, lærir hann hyggindi.

12. Gætur gefur réttlátur að húsi hins óguðlega, steypir óguðlegum í ógæfu.

13. Sá sem byrgir eyrun fyrir kveini hins fátæka, hann mun sjálfur kalla og eigi fá bænheyrslu.

14. Gjöf á laun sefar reiði og múta í barmi ákafa heift.

15. Réttlátum manni er gleði að gjöra það, sem rétt er, en illgjörðamönnum er það skelfing.

16. Sá maður, sem villist af vegi skynseminnar, mun brátt hvílast í söfnuði framliðinna.

17. Öreigi verður sá, er sólginn er í skemmtanir, sá sem sólginn er í vín og olíu, verður ekki ríkur.

18. Hinn óguðlegi er lausnargjald fyrir hinn réttláta, og svikarinn kemur í stað hinna hreinskilnu.

19. Betra er að búa í eyðimerkur-landi en með þrasgjarnri og geðillri konu.

20. Dýrmætur fjársjóður og olía er í heimkynnum hins vitra, en heimskur maður sólundar því.

21. Sá sem ástundar réttlæti og kærleika, hann öðlast líf, réttlæti og heiður.

22. Vitur maður vinnur borg kappanna og rífur niður vígið, sem hún treysti á.

23. Sá sem varðveitir munn sinn og tungu, hann varðveitir sálu sína frá nauðum.

24. Sá sem er hrokafullur, dramblátur, hann heitir spottari, sá sem gjörir allt af taumlausum hroka.

25. Óskir letingjans drepa hann, því að hendur hans vilja ekki vinna.

26. Ávallt er letinginn að óska sér, en hinn réttláti gefur og er ekki naumur.

27. Sláturfórn óguðlegra er Drottni andstyggð, hvað þá, sé hún framborin fyrir óhæfuverk.

28. Falsvottur mun tortímast, en maður, sem heyrt hefir, má ávallt tala.

29. Óguðlegur maður setur upp öruggan svip, en hinn hreinskilni gjörir veg sinn öruggan.

30. Engin viska er til og engin hyggni, né heldur ráð gegn Drottni.

31. Hesturinn er hafður viðbúinn til orustudagsins, en sigurinn er í hendi Drottins.

About Orðskviðirnir Chapter 21

Read Orðskviðirnir Chapter 21 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 21
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 21 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 21?

Orðskviðirnir Chapter 21 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 21 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 7
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 6
  2. Orðskviðirnir Chapter 19
  3. Orðskviðirnir Chapter 30
  4. Orðskviðirnir Chapter 17
  5. Orðskviðirnir Chapter 9
  6. Orðskviðirnir Chapter 3
  7. Orðskviðirnir Chapter 16

Related Chapters & Readings

  1. 2 Samúelsbók Chapter 19
  2. Jobsbók Chapter 5
  3. Matteus Chapter 13
  4. Postulasagan Chapter 7
  5. 1 Korintubréf Chapter 3
  6. Filippíbréfið Chapter 3
  7. Daníel Chapter 10
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *