Orðskviðirnir Chapter 20

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 20 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 20 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 20

Kafli 20

1. Vínið er spottari, sterkur drykkur glaumsamur, og hver sá, er drukkinn reikar, er óvitur.

2. Konungsreiði er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann á móti sér, fyrirgjörir lífi sínu.

3. Það er manni sómi að halda sér frá þrætu, en hver afglapinn ygglir sig.

4. Letinginn plægir ekki á haustin, fyrir því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt.

5. Ráðin í hjarta mannsins eru sem djúp vötn, og hygginn maður eys þar af.

6. Margir menn eru kallaðir kærleiksríkir, en tryggan vin, hver finnur hann?

7. Réttlátur maður gengur fram í ráðvendni sinni, sæl eru því börn hans eftir hann.

8. Þegar konungur situr á dómstóli, þá skilur hann allt illt úr með augnaráði sínu.

9. Hver getur sagt: "Ég hefi haldið hjarta mínu hreinu, ég er hreinn af synd?"

10. Tvenns konar vog og tvenns konar mál, það er hvort tveggja Drottni andstyggð.

11. Sveinninn þekkist þegar á verkum sínum, hvort athafnir hans eru hreinar og einlægar.

12. Eyrað sem heyrir, og augað sem sér, hvort tveggja hefir Drottinn skapað.

13. Elskaðu ekki svefninn, svo að þú verðir ekki fátækur, opnaðu augun, þá muntu mettast af brauði.

14. "Slæmt! Slæmt!" segir kaupandinn, en þegar hann gengur burt, hælist hann um.

15. Til er gull og gnægð af perlum, en hið dýrmætasta þing eru vitrar varir.

16. Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlendinga.

17. Sætt er svikabrauðið, en eftir á fyllist munnurinn möl.

18. Vel ráðin áform fá framgang, haf því holl ráð, er þú heyr stríð.

19. Sá sem ljóstar upp leyndarmálum, gengur um sem rógberi, haf því engin mök við málugan mann.

20. Sá sem formælir föður og móður, á hans lampa slokknar í niðamyrkri.

21. Arfur, sem í upphafi var skjótfenginn, blessast eigi að lokum.

22. Seg þú ekki: "Ég vil endurgjalda illt!" Bíð þú Drottins, og hann mun hjálpa þér.

23. Tvenns konar vog er Drottni andstyggð, og svikavog er ekki góð.

24. Spor mannsins eru ákveðin af Drottni, en maðurinn – hvernig fær hann skynjað veg sinn?

25. Það er manninum snara að hrópa í fljótfærni: "Helgað!" og hyggja fyrst að, þegar heitin eru gjörð.

26. Vitur konungur skilur úr hina óguðlegu og lætur síðan hjólið yfir þá ganga.

27. Andi mannsins er lampi frá Drottni, sem rannsakar hvern afkima hjartans.

28. Kærleiki og trúfesti varðveita konunginn, og hann styður hásæti sitt með kærleika.

29. Krafturinn er ágæti ungra manna, en hærurnar prýði öldunganna.

30. Blóðugar skrámur hreinsa illmennið og högg, sem duglega svíða.

About Orðskviðirnir Chapter 20

Read Orðskviðirnir Chapter 20 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 20
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 20 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 20?

Orðskviðirnir Chapter 20 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 20 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 6
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 16
  2. Orðskviðirnir Chapter 4
  3. Orðskviðirnir Chapter 24
  4. Orðskviðirnir Chapter 19
  5. Orðskviðirnir Chapter 21
  6. Orðskviðirnir Chapter 25
  7. Orðskviðirnir Chapter 29

Related Chapters & Readings

  1. Lúkas Chapter 23
  2. Prédikarinn Chapter 5
  3. 1 Jóhannesarbréf Chapter 1
  4. Esekíel Chapter 38
  5. Hósea Chapter 12
  6. Jesaja Chapter 22
  7. Sálmarnir Chapter 44
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *