Orðskviðirnir Chapter 23

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 23 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 23

Kafli 23

1. Þegar þú situr til borðs með valdsherra, þá gæt þess vel, hvern þú hefir fyrir framan þig,

2. og set þér hníf á barka, ef þú ert matmaður.

3. Lát þig ekki langa í kræsingar hans, því að þær eru svikul fæða.

4. Streist þú ekki við að verða ríkur, hættu að verja viti þínu til þess.

5. Hvort skulu augu þín hvarfla til auðsins, sem er svo stopull? Því að sannlega gjörir hann sér vængi eins og örn, sem flýgur til himins.

6. Et eigi brauð hjá nískum manni og lát þig ekki langa í kræsingar hans,

7. því að hann er eins og maður, sem reiknar með sjálfum sér. "Et og drekk!" segir hann við þig, en hjarta hans er eigi með þér.

8. Bitanum, sem þú hefir etið, verður þú að æla upp aftur, og blíðmælum þínum hefir þú á glæ kastað.

9. Tala þú eigi fyrir eyrum heimskingjans, því að hann fyrirlítur hyggindi ræðu þinnar.

10. Fær þú eigi úr stað landamerki ekkjunnar og gakk þú eigi inn á akra munaðarleysingjanna,

11. því að lausnari þeirra er sterkur – hann mun flytja mál þeirra gegn þér.

12. Snú þú hjarta þínu að umvöndun og eyrum þínum að vísdómsorðum.

13. Spara eigi aga við sveininn, því ekki deyr hann, þótt þú sláir hann með vendinum.

14. Þú slær hann að sönnu með vendinum, en þú frelsar líf hans frá Helju.

15. Son minn, þegar hjarta þitt verður viturt, þá gleðst ég líka í hjarta mínu,

16. og nýru mín fagna, er varir þínar mæla það sem rétt er.

17. Lát eigi hjarta þitt öfunda syndara, heldur ástunda guðsótta á degi hverjum,

18. því að vissulega er enn framtíð fyrir hendi, og von þín mun eigi að engu verða.

19. Heyr þú, son minn, og ver vitur og stýr hjarta þínu rétta leið.

20. Ver þú ekki með drykkjurútum, með þeim, sem hvoma í sig kjöt,

21. því að drykkjurútar og mathákar verða snauðir, og svefnmók klæðir í tötra.

22. Hlýð þú föður þínum, sem hefir getið þig, og fyrirlít ekki móður þína, þótt hún sé orðin gömul.

23. Kaup þú sannleika, og sel hann ekki, visku, aga og hyggindi.

24. Faðir réttláts manns fagnar, og sá sem gat vitran son, gleðst af honum.

25. Gleðjist faðir þinn og móðir þín og fagni hún, sem fæddi þig.

26. Son minn, gef mér hjarta þitt, og lát vegu mína vera þér geðfellda.

27. Því að skækja er djúp gröf og léttúðardrós þröngur pyttur.

28. Já, hún liggur í leyni eins og ræningi og fjölgar hinum ótrúu meðal mannanna.

29. Hver æjar? hver veinar? hver á í deilum? hver kvartar? hver fær sár að þarflausu? hver rauð augu?

30. Þeir sem sitja við vín fram á nætur, þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.

31. Horf þú ekki á vínið, hve rautt það er, hversu það glóir í bikarnum og rennur ljúflega niður.

32. Að síðustu bítur það sem höggormur og spýtir eitri sem naðra.

33. Augu þín munu sjá kynlega hluti, og hjarta þitt mun mæla fláræði.

34. Og þú munt vera eins og sá, sem liggur úti í miðju hafi, já, eins og sá, er liggur efst uppi á siglutré.

35. "Þeir hafa slegið mig, ég kenndi ekkert til, þeir hafa barið mig, ég varð þess ekki var. Hvenær mun ég vakna? Ég vil meira vín!"

About Orðskviðirnir Chapter 23

Read Orðskviðirnir Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 23
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 23 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 23?

Orðskviðirnir Chapter 23 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 23 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 5
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 26
  2. Orðskviðirnir Chapter 20
  3. Orðskviðirnir Chapter 7
  4. Orðskviðirnir Chapter 4
  5. Orðskviðirnir Chapter 1
  6. Orðskviðirnir Chapter 19
  7. Orðskviðirnir Chapter 27

Related Chapters & Readings

  1. Jesaja Chapter 14
  2. Dómarabókin Chapter 3
  3. Sálmarnir Chapter 149
  4. Lúkas Chapter 12
  5. Rómverjar Chapter 7
  6. Esekíel Chapter 12
  7. 1 Korintubréf Chapter 15
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *