Orðskviðirnir Chapter 22

For English

Read Orðskviðirnir Chapter 22 Online

Read Orðskviðirnir Chapter 22 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Orðskviðirnir and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Orðskviðirnir 22

Kafli 22

1. Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsæld er betri en silfur og gull.

2. Ríkur og fátækur hittast, Drottinn skóp þá alla saman.

3. Vitur maður sér ógæfuna og felur sig, en einfeldningarnir halda áfram og fá að kenna á því.

4. Laun auðmýktar, ótta Drottins, eru auður, heiður og líf.

5. Þyrnar, snörur, eru á vegi hins undirförula, sá sem varðveitir líf sitt, kemur ekki nærri þeim.

6. Fræð þú sveininn um veginn, sem hann á að halda, og á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja.

7. Ríkur maður drottnar yfir fátækum, og lánþeginn verður þræll lánsalans.

8. Sá sem ranglæti sáir, uppsker óhamingju, og sproti heiftar hans verður að engu.

9. Sá sem er góðgjarn, verður blessaður, því að hann gefur hinum fátæka af brauði sínu.

10. Rek þú spottarann burt, þá fer deilan burt, og þá linnir þrætu og smán.

11. Drottinn elskar hjartahreinan, konungurinn er vinur þess, sem hefir yndisþokka á vörum sér.

12. Augu Drottins varðveita þekkinguna, en orðum svikarans kollvarpar hann.

13. Letinginn segir: "Ljón er úti fyrir, ég kynni að verða drepinn úti á götunni."

14. Djúp gröf er munnur léttúðarkvenna, sá sem verður fyrir reiði Drottins, fellur í hana.

15. Ef fíflska situr föst í hjarta sveinsins, þá mun vöndur agans koma henni burt þaðan.

16. Að kúga fátækan eykur efni hans, að gefa ríkum manni verður til þess eins að gjöra hann snauðan.

17. Hneig eyra þitt og heyr orð hinna vitru, og snú athygli þinni að kenning minni,

18. því að það er fagurt, ef þú geymir þau í brjósti þér, ef þau eru öll til taks á vörum þínum.

19. Til þess að traust þitt sé á Drottni, fræði ég þig í dag, já þig.

20. Vissulega skrifa ég kjarnyrði handa þér, með heilræðum og fræðslu,

21. til þess að ég kunngjöri þér sannleika, áreiðanleg orð, svo að þú flytjir þeim áreiðanleg orð, er senda þig.

22. Ræn eigi hinn lítilmótlega, af því að hann er lítilmótlegur, og knosa eigi hinn volaða í borgarhliðinu,

23. því að Drottinn mun flytja mál þeirra og ræna þá lífinu, er þá ræna.

24. Legg eigi lag þitt við reiðigjarnan mann og haf eigi umgengni við fauta,

25. til þess að þú venjist eigi á háttsemi hans og sækir snöru fyrir líf þitt.

26. Ver þú ekki meðal þeirra, er ganga til handsala, meðal þeirra, er ganga í ábyrgð fyrir skuldum,

27. því þegar þú ekkert hefir að borga með, viltu þá láta taka sængina undan þér?

28. Fær þú eigi úr stað hin fornu landamerki, þau er feður þínir hafa sett.

29. Sjáir þú mann vel færan í verki sínu, hann getur boðið konungum þjónustu sína, eigi mun hann bjóða sig ótignum mönnum.

About Orðskviðirnir Chapter 22

Read Orðskviðirnir Chapter 22 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Orðskviðirnir in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Orðskviðirnir
Chapter: 22
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Orðskviðirnir. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Orðskviðirnir Chapter 22 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Orðskviðirnir Chapter 22?

Orðskviðirnir Chapter 22 is part of the Book of Orðskviðirnir in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Orðskviðirnir Chapter 22 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 7
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Ordskvidirnir

  1. Orðskviðirnir Chapter 5
  2. Orðskviðirnir Chapter 29
  3. Orðskviðirnir Chapter 21
  4. Orðskviðirnir Chapter 3
  5. Orðskviðirnir Chapter 8
  6. Orðskviðirnir Chapter 11
  7. Orðskviðirnir Chapter 15

Related Chapters & Readings

  1. Esekíel Chapter 17
  2. Sálmarnir Chapter 100
  3. Daníel Chapter 10
  4. Sálmarnir Chapter 34
  5. Jeremía Chapter 36
  6. Jóhannes Chapter 10
  7. 1 Samúelsbók Chapter 7
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *