2 Konungabók Chapter 11

For English

Read 2 Konungabók Chapter 11 Online

Read 2 Konungabók Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Konungabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Konungabók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Konungabók 11

Kafli 11

1. Þá er Atalía móðir Ahasía sá, að sonur hennar var dauður, fór hún til og lét drepa alla konungsættina.

2. Þá tók Jóseba, dóttir Jórams konungs, systir Ahasía, Jóas Ahasíason á laun úr hóp konungssonanna, er deyða átti, og fól hann og fóstru hans í svefnherberginu. Þannig leyndi hún honum fyrir Atalíu, svo að hann var ekki drepinn.

3. Og hann var hjá henni á laun sex ár í musteri Drottins, meðan Atalía ríkti yfir landinu.

4. En á sjöunda ári sendi Jójada prestur menn og lét sækja hundraðshöfðingja lífvarðarins og varðliðsins og lét þá koma til sín í musteri Drottins. Og hann gjörði við þá sáttmála og lét þá vinna eið í musteri Drottins. Síðan sýndi hann þeim konungsson

5. og lagði svo fyrir þá: "Svo skuluð þér gjöra: Þriðjungur yðar, þér er heim farið hvíldardaginn, skuluð halda vörð í konungshöllinni.

6. Skal einn þriðjungurinn vera í Súrhliði, annar í hliðinu bak við varðliðsmennina, svo að þér haldið vörð í konungshöllinni.

7. Og báðir hinir þriðjungsflokkar yðar, allir þeir, er fara út hvíldardaginn til þess að halda vörð í musteri Drottins hjá konunginum,

8. þér skuluð fylkja yður um konung, allir með vopn í hendi, og hver sá, er vill brjótast gegnum raðirnar, skal drepinn verða. Skuluð þér þannig vera með konungi, þá er hann fer út og þegar hann kemur heim."

9. Hundraðshöfðingjarnir fóru með öllu svo sem Jójada prestur hafði boðið, sóttu hver sína menn, bæði þá er heim fóru hvíldardaginn og þá er út fóru hvíldardaginn og komu til Jójada prests.

10. Og presturinn fékk hundraðshöfðingjunum spjótin og skjölduna, er átt hafði Davíð konungur og voru í musteri Drottins.

11. Og varðliðsmennirnir námu staðar, allir með vopn í hendi, allt í kringum konung, frá suðurhlið musterisins að norðurhlið þess, frammi fyrir altarinu og frammi fyrir musterinu.

12. Þá leiddi hann konungsson fram og setti á hann kórónuna og hringana. Tóku þeir hann til konungs og smurðu hann, klöppuðu lófum saman og hrópuðu: "Konungurinn lifi!"

13. En er Atalía heyrði ópið í varðliðsmönnunum og lýðnum, þá kom hún til lýðsins í musteri Drottins.

14. Sá hún þá, að konungur stóð við súluna, svo sem siður var til, og hún sá höfuðsmennina og lúðursveinana hjá konungi og allan landslýðinn fagnandi og blásandi í lúðrana. Þá reif Atalía klæði sín og kallaði: "Samsæri, samsæri!"

15. En Jójada prestur bauð hundraðshöfðingjunum, fyrirliðum hersins, og mælti til þeirra: "Leiðið hana út milli raðanna og drepið með sverði hvern, sem fer á eftir henni." Því að prestur hafði sagt: ,Eigi skal hana drepa í musteri Drottins.'

16. Síðan lögðu þeir hendur á hana, og er hún var komin inn í konungshöllina um hrossahliðið, var hún drepin þar.

17. Jójada gjörði sáttmála milli Drottins og konungs og lýðsins, að þeir skyldu vera lýður Drottins, svo og milli konungs og lýðsins.

18. Síðan fór allur landslýður inn í musteri Baals og reif það. Ölturu hans og líkneskjur molbrutu þeir, en Mattan, prest Baals, drápu þeir fyrir ölturunum. Síðan setti prestur varðflokka við musteri Drottins,

19. og hann tók hundraðshöfðingjana, lífvörðinn og varðliðsmennina og allan landslýðinn, og fóru þeir með konung ofan frá musteri Drottins og gengu um varðliðshliðið inn í konungshöllina, og hann settist í konungshásætið.

20. Allur landslýður fagnaði og borgin sefaðist. En Atalíu drápu þeir með sverði í konungshöllinni.

21. Jóas var sjö vetra gamall, þá er hann varð konungur.

About 2 Konungabók Chapter 11

Read 2 Konungabók Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Konungabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Konungabók
Chapter: 11
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Konungabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Konungabók Chapter 11 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Konungabók Chapter 11?

2 Konungabók Chapter 11 is part of the Book of 2 Konungabók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Konungabók Chapter 11 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2-konungabok

  1. 2 Konungabók Chapter 5
  2. 2 Konungabók Chapter 17
  3. 2 Konungabók Chapter 13
  4. 2 Konungabók Chapter 8
  5. 2 Konungabók Chapter 4
  6. 2 Konungabók Chapter 22
  7. 2 Konungabók Chapter 20

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Orðskviðirnir Chapter 24
  2. 2 Konungabók Chapter 23
  3. Jobsbók Chapter 10
  4. 1 Kroníkubók Chapter 18
  5. 1 Konungabók Chapter 21
  6. Daníel Chapter 4
  7. 2 Samúelsbók Chapter 16

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 2
  2. Prédikarinn Chapter 6
  3. Sálmarnir Chapter 62
  4. Lúkas Chapter 5
  5. Sálmarnir Chapter 36
  6. 1 Tímóteusarbréf Chapter 4
  7. Matteus Chapter 13
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *