2 Mósebók Chapter 40

For English

Read 2 Mósebók Chapter 40 Online

Read 2 Mósebók Chapter 40 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Mósebók 40

Kafli 40

1. Drottinn talaði við Móse og sagði:

2. "Á fyrsta degi hins fyrsta mánaðar skalt þú reisa búð samfundatjaldsins.

3. Þar skalt þú setja sáttmálsörkina og byrgja fyrir örkina með fortjaldinu.

4. Og þú skalt bera borðið þangað og raða því, sem á því skal vera. Síðan skalt þú bera þangað ljósastikuna og setja upp lampa hennar.

5. Og þú skalt setja hið gullna reykelsisaltari fyrir framan sáttmálsörkina og hengja dúkbreiðuna fyrir búðardyrnar.

6. Og þú skalt setja brennifórnaraltarið fyrir framan dyr samfundatjalds-búðarinnar.

7. Og kerið skalt þú setja milli samfundatjaldsins og altarisins og láta vatn í það.

8. Síðan skalt þú reisa forgarðinn umhverfis og hengja dúkbreiðu fyrir forgarðshliðið.

9. Þá skalt þú taka smurningarolíuna og smyrja búðina og allt, sem í henni er, og vígja hana með öllum áhöldum hennar, svo að hún sé heilög.

10. Og þú skalt smyrja brennifórnaraltarið og öll áhöld þess, og þú skalt vígja altarið, og skal altarið þá vera háheilagt.

11. Og þú skalt smyrja kerið og stétt þess og vígja það.

12. Þá skalt þú leiða Aron og sonu hans að dyrum samfundatjaldsins og þvo þá úr vatni.

13. Og þú skalt færa Aron í hin helgu klæði, smyrja hann og vígja, að hann þjóni mér í prestsembætti.

14. Þú skalt og leiða fram sonu hans og færa þá í kyrtlana,

15. og þú skalt smyrja þá, eins og þú smurðir föður þeirra, að þeir þjóni mér í prestsembætti, og skal smurning þeirra veita þeim ævinlegan prestdóm frá kyni til kyns."

16. Og Móse gjörði svo. Eins og Drottinn hafði boðið honum, svo gjörði hann í alla staði.

17. Búðin var reist í fyrsta mánuði hins annars árs, fyrsta dag mánaðarins.

18. Reisti Móse búðina, lagði undirstöðurnar, sló upp þiljunum, setti í slárnar og reisti upp stólpana.

19. Og hann þandi tjaldvoðina yfir búðina og lagði tjaldþökin þar yfir, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

20. Hann tók sáttmálið og lagði það í örkina, setti stengurnar í örkina og lét arkarlokið yfir örkina.

21. Og hann flutti örkina inn í búðina, setti upp fortjaldsdúkbreiðuna og byrgði fyrir sáttmálsörkina, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

22. Hann setti borðið inn í samfundatjaldið, við norðurhlið búðarinnar, fyrir utan fortjaldið,

23. og hann raðaði á það brauðunum frammi fyrir Drottni, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

24. Hann setti upp ljósastikuna í samfundatjaldinu gegnt borðinu við suðurhlið búðarinnar.

25. Og hann setti upp lampana frammi fyrir Drottni, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

26. Hann setti upp gullaltarið inni í samfundatjaldinu fyrir framan fortjaldið,

27. og brenndi á því ilmreykelsi, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

28. Síðan hengdi hann dúkbreiðuna fyrir dyr búðarinnar,

29. setti brennifórnaraltarið við dyr samfundatjalds-búðarinnar og fórnaði á því brennifórn og matfórn, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

30. Hann setti kerið milli samfundatjaldsins og altarisins og lét vatn í það til þvottar,

31. og þvoðu þeir Móse, Aron og synir hans hendur sínar og fætur úr því.

32. Hvert sinn er þeir gengu inn í samfundatjaldið og nálguðust altarið, þvoðu þeir sér, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

33. Síðan reisti hann forgarðinn umhverfis búðina og altarið og hengdi dúkbreiðuna fyrir forgarðshliðið, og hafði Móse þá aflokið verkinu.

34. Þá huldi skýið samfundatjaldið, og dýrð Drottins fyllti búðina,

35. og mátti Móse ekki inn ganga í samfundatjaldið, því að skýið lá yfir því og dýrð Drottins fyllti búðina.

36. Hvert sinn er skýið hófst upp frá búðinni, lögðu Ísraelsmenn upp, alla þá stund er þeir voru á ferðinni.

37. En er skýið hófst ekki upp, lögðu Ísraelsmenn ekki af stað fyrr en þann dag er skýið hófst upp.

38. Því að ský Drottins var yfir búðinni um daga, en eldbjarmi um nætur, í augsýn allra Ísraelsmanna, alla þá stund, er þeir voru á ferðinni

About 2 Mósebók Chapter 40

Read 2 Mósebók Chapter 40 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Mósebók
Chapter: 40
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Mósebók Chapter 40 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Mósebók Chapter 40?

2 Mósebók Chapter 40 is part of the Book of 2 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Mósebók Chapter 40 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Mosebok

  1. 2 Mósebók Chapter 13
  2. 2 Mósebók Chapter 15
  3. 2 Mósebók Chapter 9
  4. 2 Mósebók Chapter 8
  5. 2 Mósebók Chapter 23
  6. 2 Mósebók Chapter 21
  7. 2 Mósebók Chapter 36

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Sálmarnir Chapter 106
  2. Sálmarnir Chapter 103
  3. 1 Konungabók Chapter 9
  4. Nehemíabók Chapter 10
  5. Sálmarnir Chapter 56
  6. Sálmarnir Chapter 14
  7. Sálmarnir Chapter 28

Related Chapters & Readings

  1. 1 Mósebók Chapter 50
  2. Postulasagan Chapter 16
  3. Sálmarnir Chapter 91
  4. 2 Kroníkubók Chapter 9
  5. Galatabréfið Chapter 6
  6. 2 Kroníkubók Chapter 27
  7. Jobsbók Chapter 19
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *