1 Samúelsbók Chapter 29

For English

Read 1 Samúelsbók Chapter 29 Online

Read 1 Samúelsbók Chapter 29 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Samúelsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Samúelsbók 29

Kafli 29

1. Filistar drógu nú saman allan her sinn hjá Afek, en Ísrael setti herbúðir sínar við lindina hjá Jesreel.

2. Og höfðingjar Filista komu með hundruð sín og þúsundir, og Davíð og menn hans komu síðastir með Akís.

3. Þá sögðu höfðingjar Filista: "Hvað eiga þessir Hebrear hér að gjöra?" Akís sagði við höfðingja Filista: "Það er Davíð, hirðmaður Sáls konungs í Ísrael, sem nú hefir með mér verið í tvö ár, og hefi ég ekki haft neitt út á hann að setja frá þeirri stundu, er hann gjörðist minn maður, og allt fram á þennan dag."

4. Höfðingjar Filista reiddust honum og sögðu við hann: "Lát þú manninn hverfa heim aftur. Fari hann á sinn stað, þar sem þú hefir sett hann, en eigi skal hann með oss fara í bardagann, svo að hann snúist ekki á móti oss í orustunni. Með hverju gæti hann betur náð aftur hylli herra síns en með höfðum þessara manna?

5. Var það ekki þessi sami Davíð, sem sungið var um við dansinn: Sál felldi sín þúsund og Davíð sín tíu þúsund?"

6. Þá lét Akís kalla Davíð og sagði við hann: "Svo sannarlega sem Drottinn lifir ert þú ráðvandur, og ég uni því vel, að þú gangir út og inn með mér í herbúðunum, því að ég hefi ekki orðið neins ills var hjá þér frá þeirri stundu, er þú komst til mín, og allt fram á þennan dag, en höfðingjunum er ekki um þig.

7. Hverf því aftur og far í friði, svo að þú gjörir ekki neitt það, sem höfðingjum Filista mislíkar."

8. Þá sagði Davíð við Akís: "Hvað hefi ég þá gjört, og hvað hefir þú haft út á þjón þinn að setja, frá þeirri stundu, er ég gjörðist þinn maður, og allt fram á þennan dag, að ég skuli ekki mega fara og berjast við óvini herra míns, konungsins?"

9. Akís svaraði og sagði við Davíð: "Ég veit, að þú ert í mínum augum góður, sem værir þú engill Guðs, en höfðingjar Filista segja: ,Eigi skal hann með oss fara í bardagann.'

10. Rís þú því árla á morgun, ásamt mönnum herra þíns, sem með þér komu, og farið þér þangað sem ég hefi sett yður, og ætlaðu mér ekkert illt, því að vel er mér til þín, – og rísið þá árla á morgun og haldið af stað, þegar birtir."

11. Reis nú Davíð árla um morguninn og menn hans og lögðu af stað heim aftur til Filistalands, en Filistar fóru upp í Jesreel.

About 1 Samúelsbók Chapter 29

Read 1 Samúelsbók Chapter 29 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Samúelsbók
Chapter: 29
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Samúelsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Samúelsbók Chapter 29 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Samúelsbók Chapter 29?

1 Samúelsbók Chapter 29 is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Samúelsbók Chapter 29 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Samuelsbok

  1. 1 Samúelsbók Chapter 25
  2. 1 Samúelsbók Chapter 23
  3. 1 Samúelsbók Chapter 20
  4. 1 Samúelsbók Chapter 19
  5. 1 Samúelsbók Chapter 7
  6. 1 Samúelsbók Chapter 5
  7. 1 Samúelsbók Chapter 2

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Sálmarnir Chapter 88
  2. 5 Mósebók Chapter 16
  3. 4 Mósebók Chapter 19
  4. 2 Konungabók Chapter 4
  5. 2 Mósebók Chapter 21
  6. Dómarabókin Chapter 8
  7. Míka Chapter 7

Related Chapters & Readings

  1. Esterarbók Chapter 7
  2. 2 Korintubréf Chapter 10
  3. 5 Mósebók Chapter 18
  4. Efesusbréfið Chapter 5
  5. 2 Mósebók Chapter 23
  6. Jósúabók Chapter 19
  7. 5 Mósebók Chapter 30
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *