1 Mósebók Chapter 8

For English

Read 1 Mósebók Chapter 8 Online

Read 1 Mósebók Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Mósebók 8

Kafli 8

1. Þá minntist Guð Nóa og allra dýranna og alls fénaðarins, sem með honum var í örkinni, og Guð lét vind blása yfir jörðina, svo að vatnið sjatnaði.

2. Og uppsprettur undirdjúpsins luktust aftur og flóðgáttir himinsins, og steypiregninu úr loftinu linnti.

3. Og vatnið rénaði meir og meir á jörðinni og þvarr eftir hundrað og fimmtíu daga.

4. Og örkin nam staðar í sjöunda mánuðinum, á seytjánda degi mánaðarins, á Araratsfjöllunum.

5. Og vatnið var að réna allt til hins tíunda mánaðar. Í tíunda mánuðinum, á fyrsta degi mánaðarins, sáust fjallatindarnir.

6. Eftir fjörutíu daga lauk Nói upp glugga arkarinnar, sem hann hafði gjört,

7. og lét út hrafn. Hann flaug fram og aftur, þangað til vatnið þornaði á jörðinni.

8. Þá sendi hann út frá sér dúfu til að vita, hvort vatnið væri þorrið á jörðinni.

9. En dúfan fann ekki hvíldarstað fæti sínum og hvarf til hans aftur í örkina, því að vatn var enn yfir allri jörðinni. Og hann rétti út hönd sína og tók hana og fór með hana inn til sín í örkina.

10. Og hann beið enn aðra sjö daga og sendi svo dúfuna aftur úr örkinni.

11. Þá kom dúfan til hans aftur undir kveld og var þá með grænt olíuviðarblað í nefinu. Þá sá Nói, að vatnið var þorrið á jörðinni.

12. Og enn beið hann aðra sjö daga og lét þá dúfuna út, en hún hvarf ekki framar til hans aftur.

13. Og á sexhundraðasta og fyrsta ári, í fyrsta mánuðinum, á fyrsta degi mánaðarins, var vatnið þornað á jörðinni. Og Nói tók þakið af örkinni og litaðist um, og var þá yfirborð jarðarinnar orðið þurrt.

14. Í öðrum mánuðinum, á tuttugasta og sjöunda degi mánaðarins, var jörðin þurr.

15. Þá talaði Guð við Nóa og mælti:

16. "Gakk þú úr örkinni, þú og kona þín og synir þínir og sonakonur þínar með þér.

17. Og láttu fara út með þér öll dýr, sem með þér eru, af öllu holdi, bæði fuglana og fénaðinn og öll skriðkvikindin, sem skríða á jörðinni. Verði krökkt af þeim á jörðinni, verði þau frjósöm og fjölgi á jörðinni."

18. Þá gekk Nói út og synir hans og kona hans og sonakonur hans með honum.

19. Öll dýr, öll skriðkvikindi, allir fuglar, allt, sem bærist á jörðinni, hvað eftir sinni tegund, gekk út úr örkinni.

20. Nói reisti þá Drottni altari og tók af öllum hreinum dýrum og hreinum fuglum og fórnaði brennifórn á altarinu.

21. Og Drottinn kenndi þægilegan ilm, og Drottinn sagði við sjálfan sig: "Ég vil upp frá þessu ekki bölva jörðinni framar vegna mannsins, því að hugrenningar mannshjartans eru illar frá bernsku hans, og ég mun upp frá þessu ekki framar deyða allt, sem lifir, eins og ég hefi gjört.

22. Meðan jörðin stendur, skal ekki linna sáning og uppskera, frost og hiti, sumar og vetur, dagur og nótt."

About 1 Mósebók Chapter 8

Read 1 Mósebók Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Mósebók
Chapter: 8
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Mósebók Chapter 8 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Mósebók Chapter 8?

1 Mósebók Chapter 8 is part of the Book of 1 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Mósebók Chapter 8 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Mosebok

  1. 1 Mósebók Chapter 1
  2. 1 Mósebók Chapter 29
  3. 1 Mósebók Chapter 7
  4. 1 Mósebók Chapter 14
  5. 1 Mósebók Chapter 26
  6. 1 Mósebók Chapter 18
  7. 1 Mósebók Chapter 9

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Ljóðaljóðin Chapter 1
  2. Jesaja Chapter 20
  3. 4 Mósebók Chapter 17
  4. Prédikarinn Chapter 11
  5. Esekíel Chapter 35
  6. Orðskviðirnir Chapter 3
  7. 1 Kroníkubók Chapter 2

Related Chapters & Readings

  1. Jeremía Chapter 48
  2. Jeremía Chapter 29
  3. 2 Þessaloníkubréf Chapter 3
  4. Míka Chapter 6
  5. Dómarabókin Chapter 1
  6. Jesaja Chapter 26
  7. Sálmarnir Chapter 7
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *