Opinberunarbókin Chapter 9

For English

Read Opinberunarbókin Chapter 9 Online

Read Opinberunarbókin Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Opinberunarbókin and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Opinberunarbókin 9

Kafli 9

1. Og fimmti engillinn básúnaði. Þá sá ég stjörnu, er fallið hafði af himni ofan á jörðina, og henni var fenginn lykillinn að brunni undirdjúpsins.

2. Og hún lauk upp brunni undirdjúpsins, og reyk lagði upp af brunninum eins og reyk frá stórum ofni. Og sólin myrkvaðist og loftið af reyknum úr brunninum.

3. Út úr reyknum komu engisprettur á jörðina og þær fengu sama mátt og sporðdrekar jarðarinnar.

4. Og sagt var við þær, að eigi skyldu þær granda grasi jarðarinnar né nokkrum grænum gróðri né nokkru tré, engu nema mönnunum, þeim er eigi hafa innsigli Guðs á ennum sér.

5. Og þeim var svo um boðið, að þær skyldu eigi deyða þá, heldur skyldu þeir kvaldir verða í fimm mánuði. Undan þeim svíður eins og undan sporðdreka, er hann stingur mann.

6. Á þeim dögum munu mennirnir leita dauðans og ekki finna hann. Menn munu æskja sér að deyja, en dauðinn flýr þá.

7. Og ásýndum voru engispretturnar svipaðar hestum, búnum til bardaga, og á höfðum þeirra voru eins og kórónur úr gulli, og ásjónur þeirra voru sem ásjónur manna.

8. Þær höfðu hár sem hár kvenna, og tennur þeirra voru eins og ljónstennur.

9. Þær höfðu brjósthlífar eins og járnbrynjur, og vængjaþyturinn frá þeim var eins og vagnagnýr, þegar margir hestar bruna fram til bardaga.

10. Þær hafa hala og brodda eins og sporðdrekar. Og í hölum þeirra er máttur þeirra til að skaða menn í fimm mánuði.

11. Konung hafa þær yfir sér, engil undirdjúpsins. Nafn hans er á hebresku Abaddón og á grísku heitir hann Apollýón.

12. Veiið hið fyrsta er liðið hjá. Sjá, enn koma tvö vei eftir þetta.

13. Og sjötti engillinn básúnaði. Þá heyrði ég rödd eina frá hornunum á gullaltarinu, sem er frammi fyrir Guði.

14. Og röddin sagði við sjötta engilinn, sem hélt á básúnunni: "Leys þú englana fjóra, sem bundnir eru við fljótið mikla, Efrat."

15. Og englarnir fjórir voru leystir, sem búnir stóðu til stundar þessarar, dags þessa, mánaðar þessa og árs þessa, til þess að deyða þriðjung mannanna.

16. Og talan á herfylkingum riddaraliðsins var tveim sinnum tíu þúsundir tíu þúsunda. Ég heyrði tölu þeirra.

17. Og með þessum hætti sá ég hestana í sýninni og þá sem á þeim sátu: Þeir höfðu eldrauðar, svartbláar og brennisteinsgular brynjur, og höfuð hestanna voru eins og höfuð ljóna. Af munnum þeirra gekk út eldur, reykur og brennisteinn.

18. Í þessum þremur plágum varð þriðji hluti mannanna deyddur, af eldinum, reyknum og brennisteininum, sem út gekk af munnum þeirra.

19. Því að vald hestanna er í munni þeirra og í töglum þeirra, því að tögl þeirra eru lík höggormum. Eru höfuð á, og með þeim granda þeir.

20. Og hinir mennirnir, sem ekki voru deyddir í þessum plágum, gjörðu eigi iðrun og sneru sér eigi frá handaverkum sínum og vildu ekki hætta að tilbiðja illu andana og skurðgoðin úr gulli, silfri, eiri, steini og tré, sem hvorki geta séð, heyrt né gengið.

21. Og eigi gjörðu þeir iðrun né létu af manndrápum sínum og töfrum, frillulífi sínu og þjófnaði.

About Opinberunarbókin Chapter 9

Read Opinberunarbókin Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Opinberunarbókin
Chapter: 9
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Opinberunarbókin. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Opinberunarbókin Chapter 9 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Opinberunarbókin Chapter 9?

Opinberunarbókin Chapter 9 is part of the Book of Opinberunarbókin in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Opinberunarbókin Chapter 9 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Nýja Testamentið

  1. Hebreabréfið Chapter 1
  2. Hebreabréfið Chapter 2
  3. Hebreabréfið Chapter 6
  4. Hebreabréfið Chapter 5
  5. Hebreabréfið Chapter 10
  6. Opinberunarbókin Chapter 1
  7. Hebreabréfið Chapter 11

Explore More from opinberunarbokin

  1. Opinberunarbókin Chapter 13
  2. Opinberunarbókin Chapter 10
  3. Opinberunarbókin Chapter 17
  4. Opinberunarbókin Chapter 14
  5. Opinberunarbókin Chapter 4
  6. Opinberunarbókin Chapter 7
  7. Opinberunarbókin Chapter 1

Related Chapters & Readings

  1. 2 Korintubréf Chapter 4
  2. Esekíel Chapter 35
  3. Jobsbók Chapter 7
  4. Rómverjar Chapter 10
  5. Jesaja Chapter 25
  6. Matteus Chapter 22
  7. Dómarabókin Chapter 4
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *