Read Opinberunarbókin Chapter 18 Online
Read Opinberunarbókin Chapter 18 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Opinberunarbókin and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Opinberunarbókin 18
Kafli 18
1. Eftir þetta sá ég annan engil stíga ofan af himni, og hafði hann mikið vald og jörðin ljómaði af dýrð hans.
2. Og hann hrópaði með sterkri röddu og sagði: "Fallin er, fallin er Babýlon hin mikla og orðin að djöfla heimkynni og fangelsi alls konar óhreinna anda og fangelsi alls konar óhreinna og viðbjóðslegra fugla.
3. Því að hún hefur byrlað öllum þjóðum af reiði-víni saurlifnaðar síns, og konungar jarðarinnar drýgðu saurlifnað með henni og kaupmenn jarðarinnar auðguðust af gnóttum munaðar hennar."
4. Og ég heyrði aðra rödd af himni, sem sagði: "Gangið út, mitt fólk, út úr henni, svo að þér eigið engan hlut í syndum hennar og hreppið ekki plágur hennar.
5. Því að syndir hennar hlóðust allt upp til himins og Guð minntist ranglætis hennar.
6. Gjaldið henni eins og hún hefur goldið og tvígjaldið henni eftir verkum hennar, byrlið henni tvöfalt í bikarinn, sem hún hefur byrlað.
7. Veitið henni eins mikla kvöl og sorg og hennar stærilæti og óhóf hefur verið. Hún segir í hjarta sínu: ,Hér sit ég og er drottning, ekkja er ég eigi, sorg mun ég aldrei sjá.'
8. Fyrir því munu plágur hennar koma á einum degi: Dauði, sorg og hungur, og í eldi mun hún verða brennd, því að máttugur er Drottinn Guð, sem hana dæmdi."
9. Og konungar jarðarinnar, sem með henni drýgðu saurlifnað og lifðu í munaði, munu gráta og kveina yfir henni er þeir sjá reykinn af brennu hennar.
10. Af ótta fyrir kvöl hennar munu þeir standa langt frá og segja: "Vei, vei, borgin mikla, Babýlon, borgin volduga, á einni stundu kom dómur þinn."
11. Og kaupmenn jarðarinnar gráta og harma yfir henni, því að enginn kaupir nú framar vörur þeirra,
12. farma af gulli og silfri, gimsteinum og perlum, dýru líni og purpura, silki og skarlati og alls konar ilmvið og alls konar muni af fílabeini og alls konar muni af hinum dýrasta viði og af eiri og járni og marmara,
13. og kanelbörk og balsam, ilmjurtir og smyrsl, reykelsi, vín og olíu og fínt mjöl, og hveiti og eyki og sauði og hesta og vagna og man og mannasálir.
14. Og ávöxturinn, sem sála þín girnist, hefur brugðist þér, öll sæld og glys þér horfið og enginn mun framar örmul af því finna.
15. Seljendur þessara hluta, sem auðgast hafa á henni, munu standa álengdar af ótta yfir kvöl hennar, grátandi og harmandi
16. og segja: "Vei, vei, borgin mikla, sem klæddist dýru líni, purpura og skarlati og var gulli roðin og gimsteinum og perlum.
17. Á einni stundu eyddist allur þessi auður." Og allir skipstjórar, allir farmenn og hásetar og allir þeir, sem atvinnu reka á sjónum, stóðu álengdar
18. og hrópuðu, er þeir sáu reykinn af brennu hennar, og sögðu: "Hvaða borg jafnast við borgina miklu?"
19. Og þeir jusu mold yfir höfuð sér og hrópuðu grátandi og harmandi: "Vei, vei, borgin mikla, sem allir þeir, er skip eiga á sjónum, auðguðust á vegna auðæfa hennar. Á einni stundu var hún í eyði lögð."
20. Fagna yfir henni, þú himinn og þér heilögu og þér postular og spámenn, því að Guð hefur rekið réttar yðar á henni.
21. Og einn sterkur engill tók upp stein, eins og mikinn kvarnarstein, og kastaði í hafið og sagði: "Svo voveiflega mun Babýlon kollvarpast, borgin mikla, svo að engar menjar skulu eftir verða.
22. Og hörpusláttur og sönglist, pípuhljómur og lúðurþytur skal ekki framar heyrast í þér og engir iðnaðarmenn og iðnir skulu framar í þér finnast og kvarnarhljóð skal eigi framar í þér heyrast.
23. Lampaljós skal eigi framar í þér lýsa og raust brúðguma og brúðar skal eigi framar heyrast í þér. Kaupmenn þínir voru höfðingjar jarðarinnar, af því að allar þjóðir leiddust í villu af töfrum þínum.
24. Og í henni fannst blóð spámanna og heilagra og allra þeirra, sem hafa drepnir verið á jörðinni."
About Opinberunarbókin Chapter 18
Read Opinberunarbókin Chapter 18 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Opinberunarbókin
Chapter: 18
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Opinberunarbókin. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Opinberunarbókin Chapter 18 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Opinberunarbókin Chapter 18?
Opinberunarbókin Chapter 18 is part of the Book of Opinberunarbókin in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Opinberunarbókin Chapter 18 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Nýja Testamentið
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 2
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 5
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 11
Explore More from opinberunarbokin
- Opinberunarbókin Chapter 19
- Opinberunarbókin Chapter 10
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Opinberunarbókin Chapter 12
- Opinberunarbókin Chapter 8
- Opinberunarbókin Chapter 3
- Opinberunarbókin Chapter 16