Read Hebreabréfið Chapter 5 Online
Read Hebreabréfið Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Hebreabréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Hebreabréfið and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Hebreabréfið 5
Kafli 5
1. Svo er um hvern æðsta prest, sem úr flokki manna er tekinn, að hann er settur fyrir menn til þjónustu frammi fyrir Guði, til þess að bera fram gáfur og fórnir fyrir syndir.
2. Hann getur verið mildur við fáfróða og villuráfandi, þar sem hann sjálfur er veikleika vafinn.
3. Og sökum þess á hann að bera fram syndafórn, eigi síður fyrir sjálfan sig en fyrir lýðinn.
4. Enginn tekur sér sjálfum þennan heiður, heldur er hann kallaður af Guði, eins og Aron.
5. Svo var það og um Krist. Ekki tók hann sér sjálfur þá vegsemd að gjörast æðsti prestur. Hann fékk hana af Guði, er hann sagði við hann: Þú ert sonur minn í dag hef ég fætt þig.
6. Og á öðrum stað: Þú ert prestur að eilífu að hætti Melkísedeks.
7. Á jarðvistardögum sínum bar hann fram með sárum kveinstöfum og táraföllum bænir og auðmjúk andvörp fyrir þann, sem megnaði að frelsa hann frá dauða, og fékk bænheyrslu vegna guðhræðslu sinnar.
8. Og þótt hann sonur væri, lærði hann hlýðni af því, sem hann leið.
9. Þegar hann var orðinn fullkominn, gjörðist hann öllum þeim, er honum hlýða, höfundur eilífs hjálpræðis,
10. af Guði nefndur æðsti prestur að hætti Melkísedeks.
11. Um þetta höfum vér langt mál að segja og torskilið, af því að þér hafið gjörst heyrnarsljóir.
12. Þó að þér tímans vegna ættuð að vera kennarar, þá hafið þér þess enn á ný þörf, að einhver kenni yður undirstöðuatriði Guðs orða. Svo er komið fyrir yður, að þér hafið þörf á mjólk, en ekki fastri fæðu.
13. En hver sem á mjólk nærist er barn og skilur ekki boðskap réttlætisins.
14. Fasta fæðan er fyrir fullorðna, fyrir þá, sem jafnt og þétt hafa tamið skilningarvitin til að greina gott frá illu.
About Hebreabréfið Chapter 5
Read Hebreabréfið Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Hebreabréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Hebreabréfið
Chapter: 5
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Hebreabréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Hebreabréfið Chapter 5 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Hebreabréfið Chapter 5?
Hebreabréfið Chapter 5 is part of the Book of Hebreabréfið in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Hebreabréfið Chapter 5 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from hebreabrefid
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 2
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 4
- Hebreabréfið Chapter 9
- Hebreabréfið Chapter 7
Explore More from Nýja Testamentið
- 1 Jóhannesarbréf Chapter 4
- Rómverjar Chapter 6
- Jóhannes Chapter 1
- Filippíbréfið Chapter 2
- Markús Chapter 4
- Lúkas Chapter 17
- Postulasagan Chapter 2