Read Opinberunarbókin Chapter 16 Online
Read Opinberunarbókin Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Opinberunarbókin and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Opinberunarbókin 16
Kafli 16
1. Og ég heyrði raust mikla frá musterinu segja við englana sjö: "Farið og hellið úr þeim sjö skálum Guðs reiði yfir jörðina."
2. Og hinn fyrsti fór og hellti úr sinni skál á jörðina. Og vond og illkynjuð kaun komu á mennina, sem höfðu merki dýrsins og tilbáðu líkneski þess.
3. Og hinn annar hellti úr sinni skál í hafið, og það varð að blóði eins og blóð úr dauðum manni, og sérhver lifandi sál dó, sú er í hafinu var.
4. Og hinn þriðji hellti úr sinni skál í fljótin og uppsprettur vatnanna og það varð að blóði.
5. Og ég heyrði engil vatnanna segja: "Réttlátur ert þú, að þú hefur dæmt þannig, þú sem ert og þú sem varst, þú hinn heilagi.
6. Þeir hafa úthellt blóði heilagra og spámanna, og því hefur þú gefið þeim blóð að drekka. Maklegir eru þeir þess."
7. Og ég heyrði altarið segja: "Já, Drottinn Guð, þú alvaldi, sannir og réttlátir eru dómar þínir."
8. Og hinn fjórði hellti úr sinni skál yfir sólina. Og sólinni var gefið vald til að brenna mennina í eldi.
9. Og mennirnir stiknuðu í ofurhita og lastmæltu nafni Guðs, sem valdið hefur yfir plágum þessum. Og ekki gjörðu þeir iðrun, svo að þeir gæfu honum dýrðina.
10. Og hinn fimmti hellti úr sinni skál yfir hásæti dýrsins. Og ríki þess myrkvaðist, og menn bitu í tungur sínar af kvöl.
11. Og menn lastmæltu Guði himinsins fyrir kvalirnar og fyrir kaun sín og eigi gjörðu þeir iðrun og létu af verkum sínum.
12. Og hinn sjötti hellti úr sinni skál yfir fljótið mikla, Efrat. Og vatnið í því þornaði upp, svo að vegur yrði búinn fyrir konungana, þá er koma úr austri.
13. Og ég sá koma út af munni drekans og munni dýrsins og munni falsspámannsins þrjá óhreina anda, sem froskar væru,
14. því að þeir eru djöfla andar, sem gjöra tákn. Þeir ganga út til konunga allrar heimsbyggðarinnar til að safna þeim saman til stríðsins á hinum mikla degi Guðs hins alvalda.
15. "Sjá, ég kem eins og þjófur. Sæll er sá sem vakir og varðveitir klæði sín, til þess að hann gangi ekki nakinn um og menn sjái blygðun hans."
16. Og þeir söfnuðu þeim saman á þann stað, sem á hebresku kallast Harmagedón.
17. Og hinn sjöundi hellti úr sinni skál yfir loftið og raust mikil kom út úr musterinu, frá hásætinu og sagði: "Það er fram komið."
18. Og eldingar komu og brestir og þrumur og mikill landskjálfti, svo að slíkur hefur eigi komið frá því menn urðu til á jörðunni. Svo mikill var sá jarðskjálfti.
19. Og borgin mikla fór í þrjá hluta, og borgir þjóðanna hrundu. Og Guð gleymdi ekki hinni miklu Babýlon og gaf henni vínbikar heiftarreiði sinnar.
20. Og allar eyjar hurfu og fjöllin voru ekki lengur til.
21. Og stór högl, vættarþung, féllu niður af himni yfir mennina. Og mennirnir lastmæltu Guði fyrir haglpláguna, því að sú plága var mikil.
About Opinberunarbókin Chapter 16
Read Opinberunarbókin Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Opinberunarbókin
Chapter: 16
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Opinberunarbókin. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Opinberunarbókin Chapter 16 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Opinberunarbókin Chapter 16?
Opinberunarbókin Chapter 16 is part of the Book of Opinberunarbókin in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Opinberunarbókin Chapter 16 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Nýja Testamentið
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 2
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 5
- Hebreabréfið Chapter 10
- Opinberunarbókin Chapter 1
Explore More from opinberunarbokin
- Opinberunarbókin Chapter 22
- Opinberunarbókin Chapter 15
- Opinberunarbókin Chapter 18
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Opinberunarbókin Chapter 6
- Opinberunarbókin Chapter 5
- Opinberunarbókin Chapter 3