Opinberunarbókin Chapter 17

For English

Read Opinberunarbókin Chapter 17 Online

Read Opinberunarbókin Chapter 17 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Opinberunarbókin and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Opinberunarbókin 17

Kafli 17

1. Og einn af englunum sjö, sem halda á skálunum sjö, kom til mín og sagði: "Kom hingað, og ég mun sýna þér dóminn yfir skækjunni miklu, sem er við vötnin mörgu.

2. Konungar jarðarinnar hafa drýgt saurlifnað með henni, og þeir, sem á jörðinni búa, hafa orðið drukknir af saurlifnaðar víni hennar."

3. Og hann leiddi mig burt í anda á eyðimörk. Og ég sá konu sitja á skarlatsrauðu dýri, alsettu guðlöstunar nöfnum, og hafði það sjö höfuð og tíu horn.

4. Og konan var skrýdd purpura og skarlati, og var búin gulli og gimsteinum og perlum. Hún hafði í hendi sér gullbikar, fullan viðurstyggðar, og var það óhreinleikur saurlifnaðar hennar.

5. Og á enni hennar var ritað nafn, sem er leyndardómur: Babýlon hin mikla, móðir hórkvenna og viðurstyggða jarðarinnar.

6. Og ég sá að konan var drukkin af blóði hinna heilögu og af blóði Jesú votta. Og ég undraðist stórlega, er ég leit hana.

7. Og engillinn sagði við mig: "Hví ertu forviða? Ég mun segja þér leyndardóm konunnar og dýrsins, sem hana ber, þess er hefur höfuðin sjö og hornin tíu:

8. Dýrið, sem þú sást, var, en er ekki, og það mun stíga upp frá undirdjúpinu og fara til glötunar. Og þeir, sem á jörðu búa, þeir, sem eiga ekki nöfn sín skrifuð í lífsins bók frá grundvöllun veraldar, munu undrast, er þeir sjá dýrið sem var og er ekki og kemur aftur.

9. Hér reynir á skilning og speki. Höfuðin sjö eru sjö fjöll, sem konan situr á. Það eru líka sjö konungar.

10. Fimm eru fallnir, einn er nú uppi, annar er ókominn og er hann kemur á hann að vera stutt.

11. Og dýrið, sem var, en er ekki, er einmitt hinn áttundi, og er af þeim sjö, og fer til glötunar.

12. Og hornin tíu, sem þú sást, eru tíu konungar, sem enn hafa eigi tekið konungdóm, heldur fá vald sem konungar eina stund ásamt dýrinu.

13. Þessir hafa allir eitt ráð, og máttinn og vald sitt gefa þeir dýrinu.

14. Þessir munu heyja stríð við lambið. Og lambið og þeir, sem með því eru, hinir kölluðu og útvöldu og trúu, munu sigra þá, – því að lambið er Drottinn drottna og konungur konunga."

15. Og hann segir við mig: "Vötnin, sem þú sást, þar sem skækjan situr, eru lýðir og fólk, þjóðir og tungur.

16. Og hornin tíu, sem þú sást, og dýrið, munu hata skækjuna og gjöra hana einmana og nakta, eta hold hennar og brenna hana í eldi,

17. því að Guð hefur lagt þeim í brjóst að gjöra vilja sinn og vera samráða og gefa ríki þeirra dýrinu, allt til þess er orð Guðs koma fram.

18. Og konan, sem þú sást, er borgin mikla, sem heldur ríki yfir konungum jarðarinnar."

About Opinberunarbókin Chapter 17

Read Opinberunarbókin Chapter 17 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Opinberunarbókin
Chapter: 17
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Opinberunarbókin. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Opinberunarbókin Chapter 17 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Opinberunarbókin Chapter 17?

Opinberunarbókin Chapter 17 is part of the Book of Opinberunarbókin in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Opinberunarbókin Chapter 17 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Nýja Testamentið

  1. Hebreabréfið Chapter 2
  2. Hebreabréfið Chapter 1
  3. Hebreabréfið Chapter 6
  4. Hebreabréfið Chapter 4
  5. Hebreabréfið Chapter 3
  6. Hebreabréfið Chapter 9
  7. Opinberunarbókin Chapter 1

Explore More from opinberunarbokin

  1. Opinberunarbókin Chapter 13
  2. Opinberunarbókin Chapter 20
  3. Opinberunarbókin Chapter 2
  4. Opinberunarbókin Chapter 11
  5. Opinberunarbókin Chapter 14
  6. Opinberunarbókin Chapter 3
  7. Opinberunarbókin Chapter 1

Related Chapters & Readings

  1. Dómarabókin Chapter 12
  2. Jobsbók Chapter 19
  3. 1 Mósebók Chapter 13
  4. 2 Jóhannesarbréf Chapter 1
  5. 1 Pétursbréf Chapter 4
  6. 1 Samúelsbók Chapter 10
  7. 1 Samúelsbók Chapter 21
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *