Read 2 Korintubréf Chapter 4 Online
Read 2 Korintubréf Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Korintubréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Korintubréf and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Korintubréf 4
Kafli 4
1. Með því að vér höfum þessa þjónustu á hendi fyrir miskunn Guðs, þá látum vér ekki hugfallast.
2. Vér höfnum allri skammarlegri launung, vér framgöngum ekki með fláttskap né fölsum Guðs orð, heldur birtum vér sannleikann, og fyrir augliti Guðs skírskot um vér til samvisku hvers manns um sjálfa oss.
3. En ef fagnaðarerindi vort er hulið, þá er það hulið þeim, sem glatast.
4. Því guð þessarar aldar hefur blindað huga hinna vantrúuðu, til þess að þeir sjái ekki ljósið frá fagnaðarerindinu um dýrð Krists, hans, sem er ímynd Guðs.
5. Ekki prédikum vér sjálfa oss, heldur Krist Jesú sem Drottin, en sjálfa oss sem þjóna yðar vegna Jesú.
6. Því að Guð, sem sagði: "Ljós skal skína fram úr myrkri!" – hann lét það skína í hjörtu vor, til þess að birtu legði af þekkingunni á dýrð Guðs, eins og hún skín frá ásjónu Jesú Krists.
7. En þennan fjársjóð höfum vér í leirkerum, til þess að ofurmagn kraftarins sé Guðs, en ekki frá oss.
8. Á allar hliðar erum vér aðþrengdir, en þó ekki ofþrengdir, vér erum efablandnir, en örvæntum þó ekki,
9. ofsóttir, en þó ekki yfirgefnir, felldir til jarðar, en tortímumst þó ekki.
10. Jafnan berum vér með oss á líkamanum dauða Jesú, til þess að einnig líf Jesú verði opinbert í líkama vorum.
11. Því að vér, sem lifum, erum jafnan framseldir til dauða vegna Jesú, til þess að líf Jesú verði opinbert í dauðlegu holdi voru.
12. Þannig er dauðinn að verki í oss, en lífið í yður.
13. Vér höfum sama anda trúarinnar sem skrifað er um í ritningunni: "Ég trúði, þess vegna talaði ég." Vér trúum líka og þess vegna tölum vér.
14. Vér vitum, að hann, sem vakti upp Drottin Jesú, mun einnig uppvekja oss ásamt Jesú og leiða oss fram ásamt yður.
15. Allt er þetta yðar vegna, til þess að náðin verði sem mest og láti sem flesta flytja þakkargjörð Guði til dýrðar.
16. Fyrir því látum vér ekki hugfallast. Jafnvel þótt vor ytri maður hrörni, þá endurnýjast dag frá degi vor innri maður.
17. Þrenging vor er skammvinn og léttbær og aflar oss eilífrar dýrðar sem stórum yfirgnæfir allt.
18. Vér horfum ekki á hið sýnilega, heldur hið ósýnilega. Hið sýnilega er stundlegt, en hið ósýnilega eilíft.
About 2 Korintubréf Chapter 4
Read 2 Korintubréf Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Korintubréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Korintubréf
Chapter: 4
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Korintubréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Korintubréf Chapter 4 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Korintubréf Chapter 4?
2 Korintubréf Chapter 4 is part of the Book of 2 Korintubréf in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Korintubréf Chapter 4 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2-korintubref
- 2 Korintubréf Chapter 8
- 2 Korintubréf Chapter 10
- 2 Korintubréf Chapter 9
- 2 Korintubréf Chapter 7
- 2 Korintubréf Chapter 6
- 2 Korintubréf Chapter 3
- 2 Korintubréf Chapter 13
Explore More from Nýja Testamentið
- Títusarbréf Chapter 1
- Lúkas Chapter 4
- Lúkas Chapter 11
- Rómverjar Chapter 13
- Postulasagan Chapter 15
- Jóhannes Chapter 13
- 2 Tímóteusarbréf Chapter 2