Read 1 Tímóteusarbréf Chapter 6 Online
Read 1 Tímóteusarbréf Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Tímóteusarbréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Tímóteusarbréf and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
1 Tímóteusarbréf 6
Kafli 6
1. Allir þeir, sem eru ánauðugir þrælar, skulu sýna húsbændum sínum allan skyldugan heiður, til þess að ekki verði lastmælt nafni Guðs og kenningunni.
2. En þeir, sem trúaða húsbændur eiga, skulu ekki lítilsvirða þá, vegna þess að þeir eru bræður, heldur þjóni þeim því betur sem þeir eru trúaðir og elskaðir og kappkosta að gjöra góðverk. Kenn þú þetta og áminn um það.
3. Ef einhver fer með annarlegar kenningar og fylgir ekki hinum heilnæmu orðum Drottins vors Jesú Krists og því, sem guðrækni vor kennir, þá hefur hann ofmetnast og veit ekki neitt.
4. Hann er sótttekinn af þrætum og orðastælum. Af þessu fæðist öfund, deilur, lastmæli, vondar hugsanir,
5. þjark og þras hugspilltra manna, sem eru sneyddir sannleikanum, en skoða guðhræðsluna sem gróðaveg.
6. Já, guðhræðslan samfara nægjusemi er mikill gróðavegur.
7. Því að ekkert höfum vér inn í heiminn flutt og ekki getum vér heldur flutt neitt út þaðan.
8. Ef vér höfum fæði og klæði, þá látum oss það nægja.
9. En þeir, sem ríkir vilja verða, falla í freistni og snöru og alls kyns óviturlegar og skaðlegar fýsnir, er sökkva mönnunum niður í tortímingu og glötun.
10. Fégirndin er rót alls þess, sem illt er. Við þá fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni og valdið sjálfum sér mörgum harmkvælum.
11. En þú, Guðs maður, forðast þú þetta, en stunda réttlæti, guðhræðslu, trú, kærleika, stöðuglyndi og hógværð.
12. Berstu trúarinnar góðu baráttu, höndla þú eilífa lífið, sem þú varst kallaður til og þú játaðist með góðu játningunni í viðurvist margra votta.
13. Ég býð þér fyrir augliti Guðs, sem veitir öllu líf, og fyrir augliti Krists Jesú, er gjörði góðu játninguna frammi fyrir Pontíusi Pílatusi:
14. Gæt þú boðorðsins lýtalaust, óaðfinnanlega allt til endurkomu Drottins vors Jesú Krists,
15. sem hinn blessaði og eini alvaldur mun á sínum tíma birtast láta, konungur konunganna og Drottinn drottnanna.
16. Hann einn hefur ódauðleika, hann býr í ljósi, sem enginn fær til komist, hann sem enginn maður leit né litið getur. Honum sé heiður og eilífur máttur. Amen.
17. Bjóð ríkismönnum þessarar aldar að hreykja sér ekki né treysta fallvöltum auði, heldur Guði, sem lætur oss allt ríkulega í té til nautnar.
18. Bjóð þeim að gjöra gott, vera ríkir af góðum verkum, örlátir, fúsir að miðla öðrum,
19. með því safna þeir handa sjálfum sér fjársjóði sem er góð undirstaða til hins ókomna, og munu geta höndlað hið sanna líf.
20. Þú Tímóteus, varðveit það, sem þér er trúað fyrir, og forðast hinar vanheilögu hégómaræður og mótsagnir hinnar rangnefndu þekkingar,
21. sem nokkrir hafa játast undir og orðið frávillingar í trúnni. Náð sé með yður.
About 1 Tímóteusarbréf Chapter 6
Read 1 Tímóteusarbréf Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Tímóteusarbréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 1 Tímóteusarbréf
Chapter: 6
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Tímóteusarbréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 1 Tímóteusarbréf Chapter 6 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 1 Tímóteusarbréf Chapter 6?
1 Tímóteusarbréf Chapter 6 is part of the Book of 1 Tímóteusarbréf in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 1 Tímóteusarbréf Chapter 6 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 1-timoteusarbref
- 1 Tímóteusarbréf Chapter 4
- 1 Tímóteusarbréf Chapter 3
- 1 Tímóteusarbréf Chapter 2
- 1 Tímóteusarbréf Chapter 5
- 1 Tímóteusarbréf Chapter 1
Explore More from Nýja Testamentið
- Postulasagan Chapter 2
- Filippíbréfið Chapter 4
- Markús Chapter 8
- Jóhannes Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 4
- 2 Jóhannesarbréf Chapter 1
- Lúkas Chapter 1