Read Opinberunarbókin Chapter 1 Online
Read Opinberunarbókin Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Opinberunarbókin and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Opinberunarbókin 1
Kafli 1
1. Opinberun Jesú Krists, sem Guð gaf honum til að sýna þjónum sínum það sem verða á innan skamms. Hann sendi engil sinn og lét hann kynna það Jóhannesi, þjóni sínum,
2. sem bar vitni um orð Guðs og vitnisburð Jesú Krists, um allt það er hann sá.
3. Sæll er sá, er les þessi spádómsorð, og þeir, sem heyra þau og varðveita það, sem í þeim er ritað, því að tíminn er í nánd.
4. Frá Jóhannesi til safnaðanna sjö, sem í Asíu eru. Náð sé með yður og friður frá honum, sem er og var og kemur, og frá öndunum sjö, sem eru frammi fyrir hásæti hans,
5. og frá Jesú Kristi, sem er votturinn trúi, frumburður dauðra, höfðinginn yfir konungum jarðarinnar. Hann elskar oss og leysti oss frá syndum vorum með blóði sínu.
6. Og hann gjörði oss að konungsríki og prestum, Guði sínum og föður til handa. Hans er dýrðin og mátturinn um aldir alda. Amen.
7. Sjá, hann kemur í skýjunum og hvert auga mun sjá hann, jafnvel þeir, sem stungu hann, og allar kynkvíslir jarðarinnar munu kveina yfir honum. Vissulega, amen.
8. Ég er Alfa og Ómega, segir Drottinn Guð, hann sem er og var og kemur, hinn alvaldi.
9. Ég, Jóhannes, bróðir yðar, sem í Jesú á hlutdeild með yður í þrengingunni, ríkinu og þolgæðinu, var á eynni Patmos fyrir sakir Guðs orðs og vitnisburðar Jesú.
10. Ég var hrifinn í anda á Drottins degi og heyrði að baki mér raust mikla, sem lúður gylli,
11. er sagði: "Rita þú í bók það sem þú sérð og send það söfnuðunum sjö, í Efesus, Smýrnu, Pergamos, Þýatíru, Sardes, Fíladelfíu og Laódíkeu."
12. Ég sneri mér við til að sjá, hvers raust það væri, sem við mig talaði. Og er ég sneri mér við, sá ég sjö gullljósastikur,
13. og milli ljósastikanna einhvern, líkan mannssyni, klæddan síðkyrtli og gullbelti var spennt um bringu hans.
14. Höfuð hans og hár var hvítt, eins og hvít ull, eins og mjöll, og augu hans eins og eldslogi.
15. Og fætur hans voru líkir málmi glóandi í deiglu og raust hans sem niður margra vatna.
16. Hann hafði í hægri hendi sér sjö stjörnur og af munni hans gekk út tvíeggjað sverð biturt, og ásjóna hans var sem sólin skínandi í mætti sínum.
17. Þegar ég sá hann, féll ég fyrir fætur honum sem dauður væri. Og hann lagði hægri hönd sína yfir mig og sagði: "Vertu ekki hræddur, ég er hinn fyrsti og hinn síðasti
18. og hinn lifandi." Ég dó, en sjá, lifandi er ég um aldir alda, og ég hef lykla dauðans og Heljar.
19. Rita þú nú það er þú hefur séð, bæði það sem er og það sem verða mun eftir þetta.
20. Þessi er leyndardómurinn um stjörnurnar sjö, sem þú hefur séð í hægri hendi minni, og um gullstikurnar sjö. Stjörnurnar sjö eru englar þeirra sjö safnaða, og ljósastikurnar sjö eru söfnuðirnir sjö.
About Opinberunarbókin Chapter 1
Read Opinberunarbókin Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Opinberunarbókin
Chapter: 1
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Opinberunarbókin. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Opinberunarbókin Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Opinberunarbókin Chapter 1?
Opinberunarbókin Chapter 1 is part of the Book of Opinberunarbókin in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Opinberunarbókin Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Nýja Testamentið
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 2
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 5
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 11
Explore More from opinberunarbokin
- Opinberunarbókin Chapter 13
- Opinberunarbókin Chapter 3
- Opinberunarbókin Chapter 2
- Opinberunarbókin Chapter 12
- Opinberunarbókin Chapter 4
- Opinberunarbókin Chapter 8
- Opinberunarbókin Chapter 21