Opinberunarbókin Chapter 13

For English

Read Opinberunarbókin Chapter 13 Online

Read Opinberunarbókin Chapter 13 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Opinberunarbókin and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Opinberunarbókin 13

Kafli 13

1. Og hann nam staðar á sandinum við sjóinn. – Þá sá ég dýr stíga upp af hafinu. Það hafði tíu horn og sjö höfuð, og á hornum þess voru tíu ennisdjásn og á höfðum þess voru guðlöstunar nöfn.

2. Dýrið, sem ég sá, var líkt pardusdýri, fætur þess voru sem bjarnarfætur og munnur þess eins og ljónsmunnur. Drekinn gaf því mátt sinn og hásæti sitt og vald mikið.

3. Eitt af höfðum þess virtist sært til ólífis, en banasár þess varð heilt. Öll jörðin fylgdi dýrinu með undrun,

4. og þeir tilbáðu drekann, af því að hann hafði gefið dýrinu vald sitt. Og þeir tilbáðu dýrið og sögðu: "Hver jafnast við dýrið og hver getur barist við það?"

5. Og því var gefinn munnur, er talaði stóryrði og guðlastanir, og lofað að fara því fram í fjörutíu og tvo mánuði.

6. Og það lauk upp munni sínum til lastmæla gegn Guði, til að lastmæla nafni hans og tjaldbúð hans og þeim, sem á himni búa.

7. Og því var leyft að heyja stríð við hina heilögu og sigra þá, og því var gefið vald yfir sérhverri kynkvísl og lýð, tungu og þjóð.

8. Og allir þeir, sem á jörðunni búa, munu tilbiðja það, hver og einn sá er eigi á nafn sitt ritað frá grundvöllun veraldar í lífsins bók lambsins, sem slátrað var.

9. Sá sem hefur eyra, hann heyri.

10. Sá sem ætlaður er til herleiðingar verður herleiddur. Sá sem sverði er ætlaður verður deyddur með sverði. Hér reynir á þolgæði og trú hinna heilögu.

11. Og ég sá annað dýr stíga upp af jörðinni og það hafði tvö horn lík lambshornum, en það talaði eins og dreki.

12. Það fer með allt vald fyrra dýrsins fyrir augsýn þess og það lætur jörðina og þá, sem á henni búa, tilbiðja fyrra dýrið, sem varð heilt af banasári sínu.

13. Og það gjörir tákn mikil, svo að það lætur jafnvel eld falla af himni ofan á jörðina fyrir augum mannanna.

14. Og það leiðir afvega þá, sem á jörðunni búa, með táknunum, sem því er lofað að gjöra í augsýn dýrsins. Það segir þeim, sem á jörðunni búa, að þeir skuli gjöra líkneski af dýrinu, sem sárið fékk undan sverðinu, en lifnaði við.

15. Og því var leyft að gefa líkneski dýrsins anda, til þess að líkneski dýrsins gæti einnig talað og komið því til leiðar, að allir yrðu þeir deyddir, sem ekki vildu tilbiðja líkneski dýrsins.

16. Og það lætur alla, smáa og stóra, auðuga og fátæka og frjálsa og ófrjálsa, setja merki á hægri hönd sér eða á enni sín

17. og kemur því til leiðar, að enginn geti keypt eða selt, nema hann hafi merkið, nafn dýrsins, eða tölu nafns þess.

18. Hér reynir á speki. Sá sem skilning hefur reikni tölu dýrsins, því að tala manns er það, og tala hans er sex hundruð sextíu og sex.

About Opinberunarbókin Chapter 13

Read Opinberunarbókin Chapter 13 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Opinberunarbókin
Chapter: 13
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Opinberunarbókin. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Opinberunarbókin Chapter 13 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Opinberunarbókin Chapter 13?

Opinberunarbókin Chapter 13 is part of the Book of Opinberunarbókin in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Opinberunarbókin Chapter 13 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Nýja Testamentið

  1. Hebreabréfið Chapter 10
  2. Hebreabréfið Chapter 1
  3. Hebreabréfið Chapter 2
  4. Opinberunarbókin Chapter 9
  5. Hebreabréfið Chapter 4
  6. Hebreabréfið Chapter 6
  7. Hebreabréfið Chapter 5

Explore More from opinberunarbokin

  1. Opinberunarbókin Chapter 1
  2. Opinberunarbókin Chapter 8
  3. Opinberunarbókin Chapter 21
  4. Opinberunarbókin Chapter 22
  5. Opinberunarbókin Chapter 20
  6. Opinberunarbókin Chapter 12
  7. Opinberunarbókin Chapter 18

Related Chapters & Readings

  1. 1 Mósebók Chapter 33
  2. Jesaja Chapter 57
  3. Jónas Chapter 3
  4. Esekíel Chapter 10
  5. Jesaja Chapter 51
  6. 1 Mósebók Chapter 9
  7. Jóhannes Chapter 14
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *