Read Rómverjar Chapter 10 Online
Read Rómverjar Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Rómverjar in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Rómverjar and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Rómverjar 10
Kafli 10
1. Bræður, það er hjartans ósk mín og bæn til Guðs, að þeir megi hólpnir verða.
2. Það ber ég þeim, að þeir eru kappsfullir Guðs vegna, en ekki með réttum skilningi.
3. Með því þeir þekkja ekki réttlæti Guðs og leitast við að koma til vegar eigin réttlæti, hafa þeir ekki gefið sig undir réttlæti Guðs.
4. En Kristur er endalok lögmálsins, svo að nú réttlætist sérhver sá, sem trúir.
5. Því að Móse ritar um réttlætið, sem lögmálið veitir: "Sá maður, sem breytir eftir lögmálinu, mun lifa fyrir það."
6. En réttlætið af trúnni mælir þannig: "Seg þú ekki í hjarta þínu: Hver mun fara upp í himininn?" – það er: til að sækja Krist ofan, –
7. eða: "Hver mun stíga niður í undirdjúpið?" – það er: til að sækja Krist upp frá dauðum.
8. Hvað segir það svo? "Nálægt þér er orðið, í munni þínum og í hjarta þínu." Það er: Orð trúarinnar, sem vér prédikum.
9. Ef þú játar með munni þínum: Jesús er Drottinn – og trúir í hjarta þínu, að Guð hafi uppvakið hann frá dauðum, muntu hólpinn verða.
10. Með hjartanu er trúað til réttlætis, en með munninum játað til hjálpræðis.
11. Ritningin segir: "Hver sem trúir á hann, mun ekki til skammar verða."
12. Ekki er munur á Gyðingi og grískum manni, því að hinn sami er Drottinn allra, fullríkur fyrir alla þá sem ákalla hann;
13. því að "hver sem ákallar nafn Drottins, mun hólpinn verða."
14. En hvernig eiga þeir að ákalla þann, sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa á þann, sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra, án þess að einhver prédiki?
15. Og hver getur prédikað, nema hann sé sendur? Svo er og ritað: "Hversu fagurt er fótatak þeirra, sem færa fagnaðarboðin góðu."
16. En þeir hlýddu ekki allir fagnaðarerindinu. Jesaja segir: "Drottinn, hver trúði því, sem vér boðuðum?"
17. Svo kemur þá trúin af boðuninni, en boðunin byggist á orði Krists.
18. En ég spyr: Hafa þeir ekki heyrt? Jú, vissulega, "raust þeirra hefur borist út um alla jörðina og orð þeirra til endimarka heimsbyggðarinnar."
19. Og ég spyr: Hvort skildi Ísrael það ekki? Fyrst segir Móse: "Vekja vil ég yður til afbrýði gegn þjóð, sem ekki er þjóð, egna vil ég yður til reiði gegn óviturri þjóð."
20. Og Jesaja er svo djarfmáll að segja: "Ég hef látið þá finna mig, sem leituðu mín ekki. Ég er orðinn augljós þeim, sem spurðu ekki að mér."
21. En við Ísrael segir hann: "Allan daginn breiddi ég út hendur mínar móti óhlýðnum og þverbrotnum lýð."
About Rómverjar Chapter 10
Read Rómverjar Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Rómverjar in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Rómverjar
Chapter: 10
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Rómverjar. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Rómverjar Chapter 10 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Rómverjar Chapter 10?
Rómverjar Chapter 10 is part of the Book of Rómverjar in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Rómverjar Chapter 10 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Nýja Testamentið
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 2
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 5
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 9
Explore More from romverjar
- Rómverjar Chapter 13
- Rómverjar Chapter 8
- Rómverjar Chapter 6
- Rómverjar Chapter 3
- Rómverjar Chapter 12
- Rómverjar Chapter 14
- Rómverjar Chapter 11