Read Opinberunarbókin Chapter 22 Online
Read Opinberunarbókin Chapter 22 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Opinberunarbókin and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Opinberunarbókin 22
Kafli 22
1. Og hann sýndi mér móðu lífsvatnsins, skínandi sem kristall. Hún rann frá hásæti Guðs og lambsins.
2. Á miðju stræti borgarinnar, beggja vegna móðunnar, var lífsins tré, sem ber tólf sinnum ávöxt. Á mánuði hverjum gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum.
3. Og engin bölvun mun framar til vera. Og hásæti Guðs og lambsins mun í borginni vera og þjónar hans munu honum þjóna.
4. Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra.
5. Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda.
6. Og hann sagði við mig: "Þessi orð eru trú og sönn. Og Drottinn, Guð anda spámannanna, sendi engil sinn til að sýna þjónum sínum það, sem verða á innan skamms.
7. Sjá, ég kem skjótt. Sæll er sá, sem varðveitir spádómsorð þessarar bókar."
8. Og ég, Jóhannes, er sá sem heyrði og sá þetta. Og er ég hafði heyrt það og séð, féll ég niður til að tilbiðja fyrir fótum engilsins, sem sýndi mér þetta.
9. Og hann segir við mig: "Varastu þetta! Ég er samþjónn þinn og bræðra þinna, spámannanna, og þeirra, sem varðveita orð þessarar bókar. Tilbið þú Guð."
10. Og hann segir við mig: "Innsigla þú ekki spádómsorð þessarar bókar, því að tíminn er í nánd.
11. Hinn rangláti haldi áfram að fremja ranglæti og hinn saurugi saurgi sig áfram og hinn réttláti stundi áfram réttlæti og hinn heilagi helgist áfram.
12. Sjá, ég kem skjótt, og launin hef ég með mér, til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans er.
13. Ég er Alfa og Ómega, hinn fyrsti og hinn síðasti, upphafið og endirinn.
14. Sælir eru þeir, sem þvo skikkjur sínar. Þeir fá aðgang að lífsins tré og mega ganga um hliðin inn í borgina.
15. Úti gista hundarnir og töframennirnir og frillulífismennirnir og manndrápararnir og skurðgoðadýrkendurnir og hver sem elskar og iðkar lygi.
16. Ég, Jesús, hef sent engil minn til að votta fyrir yður þessa hluti í söfnuðunum. Ég er rótarkvistur af kyni Davíðs, stjarnan skínandi, morgunstjarnan."
17. Og andinn og brúðurin segja: "Kom þú!" Og sá sem heyrir segi: "Kom þú!" Og sá sem þyrstur er, hann komi. Hver sem vill, hann fær ókeypis lífsins vatn.
18. Ég votta fyrir hverjum þeim manni, sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að leggi nokkur við þau, mun Guð á hann leggja þær plágur, sem um er ritað í þessari bók.
19. Og taki nokkur burt nokkuð af orðum spádómsbókar þessarar, þá mun Guð burt taka hlut hans í tré lífsins og í borginni helgu, sem um er ritað í þessari bók.
20. Sá sem þetta vottar segir: "Já, ég kem skjótt." Amen. Kom þú, Drottinn Jesús!
21. Náðin Drottins Jesú sé með öllum.
About Opinberunarbókin Chapter 22
Read Opinberunarbókin Chapter 22 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Opinberunarbókin in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Opinberunarbókin
Chapter: 22
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Opinberunarbókin. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Opinberunarbókin Chapter 22 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Opinberunarbókin Chapter 22?
Opinberunarbókin Chapter 22 is part of the Book of Opinberunarbókin in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Opinberunarbókin Chapter 22 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Nýja Testamentið
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 2
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Hebreabréfið Chapter 4
- Jakobsbréfið Chapter 5
- Hebreabréfið Chapter 6
Explore More from opinberunarbokin
- Opinberunarbókin Chapter 3
- Opinberunarbókin Chapter 7
- Opinberunarbókin Chapter 4
- Opinberunarbókin Chapter 10
- Opinberunarbókin Chapter 18
- Opinberunarbókin Chapter 19
- Opinberunarbókin Chapter 5