Lúkas Chapter 12

For English

Read Lúkas Chapter 12 Online

Read Lúkas Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Lúkas in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Lúkas and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Lúkas 12

Kafli 12

1. Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda, svo að nærri tróð hver annan undir. Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: "Varist súrdeig farísea, sem er hræsnin.

2. Ekkert er hulið, sem eigi verður opinbert, né leynt, er eigi verður kunnugt.

3. Því mun allt það, sem þér hafið talað í myrkri, heyrast í birtu, og það, sem þér hafið hvíslað í herbergjum, mun kunngjört á þökum uppi.

4. Það segi ég yður, vinir mínir: Hræðist ekki þá, sem líkamann deyða og fá að því búnu ekki meira að gjört.

5. Ég skal sýna yður, hvern þér eigið að hræðast. Hræðist þann, er hefur vald að deyða og að því búnu varpa í helvíti. Já, ég segi yður, hræðist hann.

6. Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir tvo smápeninga? Og þó er ekki einn þeirra gleymdur Guði.

7. Hárin á höfði yðar eru jafnvel öll talin. Verið óhræddir, þér eruð meira verðir en margir spörvar.

8. En ég segi yður: Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum, mun og Mannssonurinn kannast við fyrir englum Guðs.

9. En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum, mun afneitað verða fyrir englum Guðs.

10. Hverjum sem mælir gegn Mannssyninum, verður það fyrirgefið, en þeim sem lastmælir gegn heilögum anda, verður ekki fyrirgefið.

11. Og þegar þeir leiða yður fyrir samkundur, höfðingja og yfirvöld, hafið þá ekki áhyggjur af því, hvernig eða með hverju þér eigið að verja yður eða hvað þér eigið að segja.

12. Því að heilagur andi mun kenna yður á þeirri stundu, hvað segja ber."

13. Einn úr mannfjöldanum sagði við hann: "Meistari, seg þú bróður mínum að skipta með mér arfinum."

14. Hann svaraði honum: "Maður, hver hefur sett mig dómara eða skiptaráðanda yfir ykkur?"

15. Og hann sagði við þá: "Gætið yðar, og varist alla ágirnd. Enginn þiggur líf af eigum sínum, þótt auðugur sé."

16. Þá sagði hann þeim dæmisögu þessa: "Maður nokkur ríkur átti land, er hafði borið mikinn ávöxt.

17. Hann hugsaði með sér: ,Hvað á ég að gjöra? Nú get ég hvergi komið fyrir afurðum mínum.'

18. Og hann sagði: ,Þetta gjöri ég: Ég ríf hlöður mínar og reisi aðrar stærri, og þangað safna ég öllu korni mínu og auðæfum.

19. Og ég segi við sálu mína: Sála mín, nú átt þú mikinn auð til margra ára, hvíl þig nú, et og drekk og ver glöð.'

20. En Guð sagði við hann: ,Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þér heimtuð, og hver fær þá það, sem þú hefur aflað?'

21. Svo fer þeim er safnar sér fé, en er ekki ríkur hjá Guði."

22. Og hann sagði við lærisveina sína: "Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast.

23. Lífið er meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin.

24. Hyggið að hröfnunum. Hvorki sá þeir né uppskera, eigi hafa þeir forðabúr eða hlöðu, og Guð fæðir þá. Hve miklum mun eruð þér fremri fuglunum!

25. Og hver yðar getur með áhyggjum aukið spönn við aldur sinn?

26. Fyrst þér nú orkið ekki svo litlu, hví látið þér allt hitt valda yður áhyggjum?

27. Hyggið að liljunum, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra.

28. Fyrst Guð skrýðir svo grasið á vellinum, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, hve miklu fremur mun hann þá klæða yður, þér trúlitlir!

29. Hafið ekki hugann við, hvað þér eigið að eta og hvað að drekka, og kvíðið engu.

30. Allt þetta stunda heiðingjar heimsins, en faðir yðar veit, að þér þarfnist þessa.

31. Leitið heldur ríkis hans, og þá mun þetta veitast yður að auki.

32. Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið.

33. Seljið eigur yðar og gefið ölmusu, fáið yður pyngjur, er fyrnast ekki, fjársjóð á himnum, er þrýtur ekki, þar sem þjófur fær eigi í nánd komist né mölur spillt.

34. Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.

35. Verið gyrtir um lendar, og látið ljós yðar loga,

36. og verið líkir þjónum, er bíða þess, að húsbóndi þeirra komi úr brúðkaupi og þeir geti lokið upp fyrir honum um leið og hann kemur og knýr dyra.

37. Sælir eru þeir þjónar, sem húsbóndinn finnur vakandi, er hann kemur. Sannlega segi ég yður, hann mun gyrða sig belti, láta þá setjast að borði og koma og þjóna þeim.

38. Og komi hann um miðnætti eða síðar og finni þá vakandi, sælir eru þeir þá.

39. Það skiljið þér, að húsráðandi léti ekki brjótast inn í hús sitt, ef hann vissi, á hvaða stundu þjófurinn kæmi.

40. Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi."

41. Þá spurði Pétur: "Herra, mælir þú þessa líkingu til vor eða til allra?"

42. Drottinn mælti: "Hver er sá trúi og hyggni ráðsmaður, sem húsbóndinn setur yfir hjú sín að gefa þeim skammtinn á réttum tíma?

43. Sæll er sá þjónn, er húsbóndinn finnur breyta svo, er hann kemur.

44. Ég segi yður með sanni: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar.

45. En ef sá þjónn segir í hjarta sínu: ,Það dregst, að húsbóndi minn komi,' og tekur að berja þjóna og þernur, eta og drekka og verða ölvaður,

46. þá mun húsbóndi þess þjóns kom á þeim degi, er hann væntir ekki, á þeirri stundu, er hann veit ekki, höggva hann og láta hann fá hlut með ótrúum.

47. Sá þjónn, sem veit vilja húsbónda síns og hefur ekki viðbúnað né gjörir vilja hans, mun barinn mörg högg.

48. En hinn, sem veit hann ekki, en vinnur til refsingar, mun barinn fá högg. Hver sem mikið er gefið, verður mikils krafinn, og af þeim verður meira heimtað, sem meira er léð.

49. Ég er kominn að varpa eldi á jörðu. Hversu vildi ég, að hann væri þegar kveiktur!

50. Skírn á ég að skírast. Hversu þungt er mér, uns hún er fullnuð.

51. Ætlið þér, að ég sé kominn að færa frið á jörðu? Nei, segi ég yður, heldur sundurþykki.

52. Upp frá þessu verða fimm í sama húsi sundurþykkir, þrír við tvo og tveir við þrjá,

53. faðir við son og sonur við föður, móðir við dóttur og dóttir við móður, tengdamóðir við tengdadóttur sína og tengdadóttir við tengdamóður."

54. Hann sagði og við fólkið: "Þá er þér sjáið ský draga upp í vestri, segið þér jafnskjótt: ,Nú fer að rigna.' Og svo verður.

55. Og þegar vindur blæs af suðri, segið þér: ,Nú kemur hiti.' Og svo fer.

56. Hræsnarar, útlit lofts og jarðar kunnið þér að ráða, en hvernig er því farið, að þér kunnið ekki að meta þennan tíma?

57. Hví dæmið þér ekki af sjálfum yður, hvað rétt sé?

58. Þegar þú ferð með andstæðingi þínum fyrir yfirvald, þá kostaðu kapps um það á leiðinni að ná sáttum við hann, til þess að hann dragi þig ekki fyrir dómarann, dómarinn afhendi þig böðlinum, og böðullinn varpi þér í fangelsi.

59. Ég segi þér, eigi munt þú komast út þaðan, fyrr en þú hefur borgað síðasta eyri."

About Lúkas Chapter 12

Read Lúkas Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Lúkas in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Lúkas
Chapter: 12
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Lúkas. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Lúkas Chapter 12 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Lúkas Chapter 12?

Lúkas Chapter 12 is part of the Book of Lúkas in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Lúkas Chapter 12 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Lukas

  1. Lukas Chapter 3
  2. Lukas Chapter 21
  3. Lukas Chapter 11
  4. Lukas Chapter 22
  5. Lukas Chapter 20
  6. Lukas Chapter 15
  7. Lukas Chapter 1

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Galatabréfið Chapter 2
  2. Markús Chapter 5
  3. 2 Pétursbréf Chapter 3
  4. Matteus Chapter 14
  5. Lúkas Chapter 23
  6. Rómverjar Chapter 4
  7. Galatabréfið Chapter 3

Related Chapters & Readings

  1. 5 Mósebók Chapter 5
  2. Dómarabókin Chapter 8
  3. 1 Kroníkubók Chapter 23
  4. Sálmarnir Chapter 123
  5. Hósea Chapter 10
  6. Sálmarnir Chapter 2
  7. 1 Mósebók Chapter 17
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *