Read Filippíbréfið Chapter 3 Online
Read Filippíbréfið Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Filippíbréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Filippíbréfið and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Filippíbréfið 3
Kafli 3
1. Að endingu, bræður mínir, verið glaðir í Drottni. Ég tel ekki eftir mér að endurtaka það, sem ég hef skrifað, en yður er það til öryggis.
2. Gefið gætur að hundunum, gefið gætur að hinum vondu verkamönnum, gefið gætur að hinum sundurskornu.
3. Vér erum hinir umskornu, vér sem dýrkum Guð í anda hans og miklumst af Kristi Jesú og treystum ekki ytri yfirburðum,
4. jafnvel þótt ég hafi einnig þá ytri yfirburði, sem ég gæti treyst. Ef einhver annar þykist geta treyst ytri yfirburðum, þá get ég það fremur.
5. Ég var umskorinn á áttunda degi, af kyni Ísraels, ættkvísl Benjamíns, Hebrei af Hebreum, farísei í afstöðunni til lögmálsins,
6. svo ákafur, að ég ofsótti kirkjuna. Ef litið er á réttlætið, sem fæst með lögmálinu, var ég vammlaus.
7. En það, sem var mér ávinningur, met ég nú vera tjón sakir Krists.
8. Já, meira að segja met ég allt vera tjón hjá þeim yfirburðum að þekkja Krist Jesú, Drottin minn. Sakir hans hef ég misst allt og met það sem sorp, til þess að ég geti áunnið Krist
9. og reynst vera í honum. Nú á ég ekki eigið réttlæti, það er fæst af lögmáli, heldur það er fæst fyrir trú á Krist, réttlætið frá Guði með trúnni. –
10. Ég vil þekkja Krist og kraft upprisu hans og samfélag písla hans með því að mótast eftir honum í dauða hans.
11. Mætti mér auðnast að ná til upprisunnar frá dauðum.
12. Ekki er svo, að ég hafi þegar náð því eða sé þegar fullkominn. En ég keppi eftir því, ef ég skyldi geta höndlað það, með því að ég er höndlaður af Kristi Jesú.
13. Bræður, ekki tel ég sjálfan mig enn hafa höndlað það.
14. En eitt gjöri ég. Ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir því, sem framundan er, og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur kallað oss til fyrir Krist Jesú.
15. Þetta hugarfar skulum vér því allir hafa, sem fullkomnir erum. Og ef þér hugsið í nokkru öðruvísi, þá mun Guð einnig opinbera yður þetta.
16. Fyrir alla muni skulum vér ganga þá götu, sem vér höfum komist á.
17. Bræður, breytið allir eftir mér og festið sjónir yðar á þeim, sem breyta eftir þeirri fyrirmynd, er vér höfum yður gefið.
18. Margir breyta, – ég hef oft sagt yður það og nú segi ég það jafnvel grátandi -, eins og óvinir kross Krists.
19. Afdrif þeirra eru glötun. Guð þeirra er maginn, þeim þykir sómi að skömminni og þeir hafa hugann á jarðneskum munum.
20. En föðurland vort er á himni og frá himni væntum vér frelsarans, Drottins Jesú Krists.
21. Hann mun breyta veikum og forgengilegum líkama vorum og gjöra hann líkan dýrðarlíkama sínum. Því hann hefur kraftinn til að leggja allt undir sig.
About Filippíbréfið Chapter 3
Read Filippíbréfið Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Filippíbréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Filippíbréfið
Chapter: 3
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Filippíbréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Filippíbréfið Chapter 3 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Filippíbréfið Chapter 3?
Filippíbréfið Chapter 3 is part of the Book of Filippíbréfið in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Filippíbréfið Chapter 3 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Filippibrefid
Explore More from Nýja Testamentið
- Postulasagan Chapter 12
- Matteus Chapter 8
- Postulasagan Chapter 13
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Postulasagan Chapter 16
- 1 Pétursbréf Chapter 4
- Rómverjar Chapter 11