Jakobsbréfið Chapter 1

For English

Read Jakobsbréfið Chapter 1 Online

Read Jakobsbréfið Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jakobsbréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jakobsbréfið and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jakobsbréfið 1

Kafli 1

1. Jakob, þjónn Guðs og Drottins Jesú Krists, heilsar þeim tólf kynkvíslum í dreifingunni.

2. Álítið það, bræður mínir, eintómt gleðiefni, er þér ratið í ýmiss konar raunir.

3. Þér vitið, að trúarstaðfesta yðar vekur þolgæði,

4. en þolgæðið á að birtast í fullkomnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörir og yður sé í engu ábótavant.

5. Ef einhvern yðar brestur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og honum mun gefast.

6. En hann biðji í trú, án þess að efast. Sá sem efast er líkur sjávaröldu, er rís og hrekst fyrir vindi.

7. Sá maður, tvílyndur og reikull á öllum vegum sínum, má eigi ætla,

8. að hann fái nokkuð hjá Drottni.

9. Lágt settur bróðir hrósi sér af upphefð sinni,

10. en auðugur af lægingu sinni, því hann mun líða undir lok eins og blóm á engi.

11. Sólin kemur upp með steikjandi hita og brennir grasið, og blóm þess dettur af og fegurð þess verður að engu. Þannig mun og hinn auðugi maður visna upp á vegum sínum.

12. Sæll er sá maður, sem stenst freistingu, því að þegar hann hefur reynst hæfur mun hann öðlast kórónu lífsins, sem Guð hefur heitið þeim er elska hann.

13. Enginn má segja, er hann verður fyrir freistingu: "Guð freistar mín." Guð getur eigi orðið fyrir freistingu af hinu illa, enda freistar hann sjálfur einskis manns.

14. Það er eigin girnd, sem freistar sérhvers manns og dregur hann og tælir.

15. Þegar girndin síðan er orðin þunguð, elur hún synd, og þegar syndin er orðin fullþroskuð, fæðir hún dauða.

16. Villist ekki, bræður mínir elskaðir!

17. Sérhver góð gjöf og sérhver fullkomin gáfa er ofan að og kemur niður frá föður ljósanna. Hjá honum er engin umbreyting né skuggar, sem koma og fara.

18. Eftir ráðsályktun sinni fæddi hann oss með orði sannleikans, til þess að vér skyldum vera frumgróði sköpunar hans.

19. Vitið, bræður mínir elskaðir: Hver maður skal vera fljótur til að heyra, seinn til að tala, seinn til reiði.

20. Því að reiði manns ávinnur ekki það, sem rétt er fyrir Guði.

21. Leggið því af hvers konar saurugleik og alla vonsku og takið með hógværð á móti hinu gróðursetta orði, er frelsað getur sálir yðar.

22. Verðið gjörendur orðsins og eigi aðeins heyrendur þess, ella svíkið þér sjálfa yður.

23. Því að ef einhver er heyrandi orðsins og ekki gjörandi, þá er hann líkur manni, er skoðar andlit sitt í spegli.

24. Hann skoðar sjálfan sig, fer burt og gleymir jafnskjótt, hvernig hann var.

25. En sá sem skyggnist inn í hið fullkomna lögmál frelsisins og heldur sér við það og gleymir ekki því, sem hann heyrir, heldur framkvæmir það, hann mun sæll verða í verkum sínum.

26. Sá sem þykist vera guðrækinn, en hefur ekki taumhald á tungu sinni, blekkir sjálfan sig og guðrækni hans er fánýt.

27. Hrein og flekklaus guðrækni fyrir Guði og föður er þetta, að vitja munaðarlausra og ekkna í þrengingu þeirra og varðveita sjálfan sig óflekkaðan af heiminum.

About Jakobsbréfið Chapter 1

Read Jakobsbréfið Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jakobsbréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jakobsbréfið
Chapter: 1
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jakobsbréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jakobsbréfið Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jakobsbréfið Chapter 1?

Jakobsbréfið Chapter 1 is part of the Book of Jakobsbréfið in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jakobsbréfið Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from jakobsbrefid

  1. Jakobsbréfið Chapter 5
  2. Jakobsbréfið Chapter 4
  3. Jakobsbréfið Chapter 3
  4. Jakobsbréfið Chapter 2

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Matteus Chapter 26
  2. Postulasagan Chapter 17
  3. 2 Korintubréf Chapter 4
  4. Matteus Chapter 15
  5. Lúkas Chapter 24
  6. 2 Tímóteusarbréf Chapter 1
  7. Postulasagan Chapter 2

Related Chapters & Readings

  1. Opinberunarbókin Chapter 1
  2. Sálmarnir Chapter 148
  3. Dómarabókin Chapter 7
  4. Sálmarnir Chapter 23
  5. Markús Chapter 14
  6. Jesaja Chapter 61
  7. 2 Kroníkubók Chapter 18
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *