Read 1 Korintubréf Chapter 16 Online
Read 1 Korintubréf Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Korintubréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Korintubréf and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
1 Korintubréf 16
Kafli 16
1. En hvað snertir samskotin til hinna heilögu, þá skuluð einnig þér fara með þau eins og ég hef fyrirskipað söfnuðunum í Galatíu.
2. Hvern fyrsta dag vikunnar skal hver yðar leggja í sjóð heima hjá sér það, sem efni leyfa, til þess að ekki verði fyrst farið að efna til samskota, þegar ég kem.
3. En þegar ég svo kem, mun ég senda þá, sem þér teljið hæfa, með líknargjöf yðar til Jerúsalem, og skrifa með þeim.
4. En ef betra þykir að ég fari líka, þá geta þeir orðið mér samferða.
5. Ég mun koma til yðar, er ég hef farið um Makedóníu, því að um Makedóníu legg ég leið mína.
6. Ég mun ef til vill staldra við hjá yður, eða jafnvel dveljast vetrarlangt, til þess að þér getið búið ferð mína, hvert sem ég þá kann að fara.
7. Því að nú vil ég ekki sjá yður rétt í svip. Ég vona sem sé, ef Drottinn lofar, að standa við hjá yður nokkra stund.
8. Ég stend við í Efesus allt til hvítasunnu,
9. því að mér hafa opnast þar víðar dyr og verkmiklar og andstæðingarnir eru margir.
10. Ef Tímóteus kemur, þá sjáið til þess, að hann geti óttalaust hjá yður verið, því að hann starfar að verki Drottins eins og ég.
11. Þess vegna lítilsvirði enginn hann, greiðið heldur ferð hans í friði, til þess að hann geti komist til mín. Því að ég vænti hans með bræðrunum.
12. En hvað snertir bróður Apollós, þá hef ég mikillega hvatt hann til að verða bræðrunum samferða til yðar. En hann var alls ófáanlegur til að fara nú, en koma mun hann, er hentugleikar hans leyfa.
13. Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir og styrkir.
14. Allt sé hjá yður í kærleika gjört.
15. Um eitt bið ég yður, bræður. Þér vitið að Stefanas og heimili hans er frumgróði Akkeu og að þeir hafa helgað sig þjónustu heilagra.
16. Sýnið slíkum mönnum undirgefni og hverjum þeim er starfar með og leggur á sig erfiði.
17. Ég gleðst yfir návist þeirra Stefanasar, Fortúnatusar og Akkaíkusar, af því að þeir hafa bætt mér upp fjarvist yðar.
18. Þeir hafa bæði glatt mig og yður. Hafið mætur á slíkum mönnum.
19. Söfnuðirnir í Asíu biðja að heilsa yður. Akvílas og Priska ásamt söfnuðinum í húsi þeirra biðja kærlega að heilsa yður í Drottins nafni.
20. Allir bræðurnir biðja að heilsa yður. Heilsið hver öðrum með heilögum kossi.
21. Kveðjan er með eigin hendi minni, Páls.
22. Ef einhver elskar ekki Drottin, hann sé bölvaður. Marana ta!
23. Náðin Drottins Jesú sé með yður.
24. Kærleikur minn er með öllum yður í Kristi Jesú.
About 1 Korintubréf Chapter 16
Read 1 Korintubréf Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Korintubréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 1 Korintubréf
Chapter: 16
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Korintubréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 1 Korintubréf Chapter 16 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 1 Korintubréf Chapter 16?
1 Korintubréf Chapter 16 is part of the Book of 1 Korintubréf in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 1 Korintubréf Chapter 16 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 1 Korintubref
- 1 Korintubréf Chapter 13
- 1 Korintubréf Chapter 3
- 1 Korintubréf Chapter 2
- 1 Korintubréf Chapter 1
- 1 Korintubréf Chapter 10
- 1 Korintubréf Chapter 8
- 1 Korintubréf Chapter 5
Explore More from Nýja Testamentið
- Efesusbréfið Chapter 1
- 1 Þessaloníkubréf Chapter 2
- 1 Jóhannesarbréf Chapter 4
- 1 Korintubréf Chapter 14
- Markús Chapter 5
- Rómverjar Chapter 7
- Hebreabréfið Chapter 3