1 Jóhannesarbréf Chapter 5

For English

Read 1 Jóhannesarbréf Chapter 5 Online

Read 1 Jóhannesarbréf Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Jóhannesarbréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Jóhannesarbréf and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Jóhannesarbréf 5

Kafli 5

1. Hver sem trúir, að Jesús sé Kristur, er af Guði fæddur, og hver sem elskar föðurinn elskar einnig barn hans.

2. Að vér elskum Guðs börn þekkjum vér af því, að vér elskum Guð og breytum eftir boðorðum hans.

3. Því að í þessu birtist elskan til Guðs, að vér höldum hans boðorð. Og boðorð hans eru ekki þung,

4. því að allt, sem af Guði er fætt, sigrar heiminn, og trú vor, hún er sigurinn, hún hefur sigrað heiminn.

5. Hver er sá, sem sigrar heiminn, nema sá sem trúir, að Jesús sé sonur Guðs?

6. Hann er sá sem kom með vatni og blóði, Jesús Kristur. Ekki með vatninu einungis, heldur með vatninu og með blóðinu. Og andinn er sá sem vitnar, því að andinn er sannleikurinn.

7. Því að þrír eru þeir sem vitna [í himninum: Faðirinn, orðið og heilagur andi, og þessir þrír eru eitt. Og þeir eru þrír sem vitna á jörðunni:]

8. Andinn og vatnið og blóðið, og þeim þremur ber saman.

9. Vér tökum manna vitnisburð gildan, en vitnisburður Guðs er meiri. Þetta er vitnisburður Guðs, hann hefur vitnað um son sinn.

10. Sá sem trúir á Guðs son hefur vitnisburðinn í sjálfum sér. Sá sem ekki trúir Guði hefur gjört hann að lygara, af því að hann hefur ekki trúað á þann vitnisburð, sem Guð hefur vitnað um son sinn.

11. Og þetta er vitnisburðurinn, að Guð hefur gefið oss eilíft líf og þetta líf er í syni hans.

12. Sá sem hefur soninn á lífið, sá sem ekki hefur Guðs son á ekki lífið.

13. Þetta hef ég skrifað yður, sem trúið á nafn Guðs sonar, til þess að þér vitið, að þér hafið eilíft líf.

14. Og þetta er sú djörfung, sem vér höfum til hans: Ef vér biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann oss.

15. Og ef vér vitum, að hann heyrir oss, um hvað sem vér biðjum, þá vitum vér, að oss eru veittar þær bænir, sem vér höfum beðið hann um.

16. Ef einhver sér bróður sinn drýgja synd, sem er ekki til dauða, þá skal hann biðja, og Guð mun gefa honum líf, þeim sem ekki syndgar til dauða. Til er synd til dauða. Fyrir henni segi ég ekki að hann skuli biðja.

17. Allt ranglæti er synd, en til er synd, sem ekki er til dauða.

18. Vér vitum, að hver sem af Guði er fæddur syndgar ekki, sá sem af Guði er fæddur varðveitir hann og hinn vondi snertir hann ekki.

19. Vér vitum, að vér tilheyrum Guði og allur heimurinn er á valdi hins vonda.

20. Vér vitum, að Guðs sonur er kominn og hefur gefið oss skilning, til þess að vér þekkjum sannan Guð. Vér erum í hinum sanna Guði fyrir samfélag vort við son hans Jesú Krist. Hann er hinn sanni Guð og eilífa lífið.

21. Börnin mín, gætið yðar fyrir skurðgoðunum.

About 1 Jóhannesarbréf Chapter 5

Read 1 Jóhannesarbréf Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Jóhannesarbréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Jóhannesarbréf
Chapter: 5
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Jóhannesarbréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Jóhannesarbréf Chapter 5 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Jóhannesarbréf Chapter 5?

1 Jóhannesarbréf Chapter 5 is part of the Book of 1 Jóhannesarbréf in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Jóhannesarbréf Chapter 5 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Johannesarbref

  1. 1 Jóhannesarbréf Chapter 2
  2. 1 Jóhannesarbréf Chapter 1
  3. 1 Jóhannesarbréf Chapter 3
  4. 1 Jóhannesarbréf Chapter 4

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Lúkas Chapter 6
  2. Rómverjar Chapter 14
  3. 1 Korintubréf Chapter 10
  4. Matteus Chapter 26
  5. Jakobsbréfið Chapter 4
  6. Jóhannes Chapter 3
  7. Matteus Chapter 17

Related Chapters & Readings

  1. Óbadía Chapter 1
  2. 2 Korintubréf Chapter 10
  3. 4 Mósebók Chapter 18
  4. 2 Kroníkubók Chapter 6
  5. Jósúabók Chapter 21
  6. 1 Mósebók Chapter 33
  7. Sálmarnir Chapter 81
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *