Lúkas Chapter 4

For English

Read Lúkas Chapter 4 Online

Read Lúkas Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Lúkas in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Lúkas and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Lúkas 4

Kafli 4

1. En Jesús sneri aftur frá Jórdan, fullur af heilögum anda. Leiddi andinn hann um óbyggðina

2. fjörutíu daga, en djöfullinn freistaði hans. Ekki neytti hann neins þá daga, og er þeir voru liðnir, var hann hungraður.

3. En djöfullinn sagði við hann: "Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú steini þessum, að hann verði að brauði."

4. Og Jesús svaraði honum: "Ritað er: ,Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði.'"

5. Þá fór hann með hann upp og sýndi honum á augabragði öll ríki veraldar.

6. Og djöfullinn sagði við hann: "Þér mun ég gefa allt þetta veldi og dýrð þess, því að mér er það í hendur fengið, og ég get gefið það hverjum sem ég vil.

7. Ef þú fellur fram og tilbiður mig, skal það allt verða þitt."

8. Jesús svaraði honum: "Ritað er: Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum."

9. Þá fór hann með hann til Jerúsalem, setti hann á brún musterisins og sagði við hann: "Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér hér ofan,

10. því að ritað er: Hann mun fela englum sínum að gæta þín

11. og: þeir munu bera þig á höndum sér, að þú steytir ekki fót þinn við steini."

12. Jesús svaraði honum: "Sagt hefur verið: ,Ekki skalt þú freista Drottins, Guðs þíns.'"

13. Og er djöfullinn hafði lokið allri freistni, vék hann frá honum að sinni.

14. En Jesús sneri aftur til Galíleu í krafti andans, og fóru fregnir af honum um allt nágrennið.

15. Hann kenndi í samkundum þeirra, og lofuðu hann allir.

16. Hann kom til Nasaret, þar sem hann var alinn upp, og fór að vanda sínum á hvíldardegi í samkunduna og stóð upp til að lesa.

17. Var honum fengin bók Jesaja spámanns. Hann lauk upp bókinni og fann staðinn, þar sem ritað er:

18. Andi Drottins er yfir mér, af því að hann hefur smurt mig. Hann hefur sent mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap, boða bandingjum lausn og blindum sýn, láta þjáða lausa

19. og kunngjöra náðarár Drottins.

20. Síðan lukti hann aftur bókinni, fékk hana þjóninum og settist niður, en augu allra í samkundunni hvíldu á honum.

21. Hann tók þá að tala til þeirra: "Í dag hefur rætst þessi ritning í áheyrn yðar."

22. Og allir lofuðu hann og undruðust þau hugnæmu orð, sem fram gengu af munni hans, og sögðu: "Er hann ekki sonur Jósefs?"

23. En hann sagði við þá: "Eflaust munuð þér minna mig á orðtakið: ,Læknir, lækna sjálfan þig!' Vér höfum heyrt um allt, sem gjörst hefur í Kapernaum. Gjör nú hið sama hér í ættborg þinni."

24. Enn sagði hann: "Sannlega segi ég yður, engum spámanni er vel tekið í landi sínu.

25. En satt segi ég yður, að margar voru ekkjur í Ísrael á dögum Elía, þegar himinninn var luktur í þrjú ár og sex mánuði, og mikið hungur í öllu landinu,

26. og þó var Elía til engrar þeirra sendur, heldur aðeins til ekkju í Sarepta í Sídonlandi.

27. Og margir voru líkþráir í Ísrael á dögum Elísa spámanns, og enginn þeirra var hreinsaður, heldur aðeins Naaman Sýrlendingur."

28. Allir í samkunduhúsinu fylltust reiði, er þeir heyrðu þetta,

29. spruttu upp, hröktu hann út úr borginni og fóru með hann fram á brún fjalls þess, sem borg þeirra var reist á, til þess að hrinda honum þar ofan.

30. En hann gekk gegnum miðja mannþröngina og fór leiðar sinnar.

31. Hann kom nú ofan til Kapernaum, borgar í Galíleu, og kenndi þeim á hvíldardegi.

32. Undruðust menn mjög kenningu hans, því að vald fylgdi orðum hans.

33. Í samkunduhúsinu var maður nokkur, er haldinn var óhreinum, illum anda. Hann æpti hárri röddu:

34. "Æ, hvað vilt þú oss, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma oss? Ég veit, hver þú ert, hinn heilagi Guðs."

35. Jesús hastaði þá á hann og mælti: "Þegi þú, og far út af honum." En illi andinn slengdi honum fram fyrir þá og fór út af honum, en varð honum ekki að meini.

36. Felmtri sló á alla, og sögðu þeir hver við annan: "Hvaða orð er þetta? Með valdi og krafti skipar hann óhreinum öndum, og þeir fara."

37. Og orðstír hans barst út til allra staða þar í grennd. *Jesús læknar*

38. Úr samkundunni fór hann í hús Símonar. En tengdamóðir Símonar var altekin sótthita, og báðu þeir hann að hjálpa henni.

39. Hann gekk að, laut yfir hana og hastaði á sótthitann, og fór hann úr henni. En hún reis jafnskjótt á fætur og gekk þeim fyrir beina.

40. Um sólsetur komu allir þeir, er höfðu á sínum vegum sjúklinga haldna ýmsum sjúkdómum, og færðu þá til hans. En hann lagði hendur yfir hvern þeirra og læknaði þá.

41. Þá fóru og illir andar út af mörgum og æptu: "Þú ert sonur Guðs." En hann hastaði á þá og bannaði þeim að tala, því að þeir vissu, að hann var Kristur.

42. Þegar dagur rann, gekk hann burt á óbyggðan stað, en mannfjöldinn leitaði hans. Þeir fundu hann og vildu aftra því, að hann færi frá þeim.

43. En hann sagði við þá: "Mér ber og að flytja hinum borgunum fagnaðarerindið um Guðs ríki, því að til þess var ég sendur."

44. Og hann prédikaði í samkundunum í Júdeu.

About Lúkas Chapter 4

Read Lúkas Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Lúkas in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Lúkas
Chapter: 4
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Lúkas. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Lúkas Chapter 4 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Lúkas Chapter 4?

Lúkas Chapter 4 is part of the Book of Lúkas in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Lúkas Chapter 4 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Lukas

  1. Lukas Chapter 3
  2. Lukas Chapter 21
  3. Lukas Chapter 11
  4. Lukas Chapter 22
  5. Lukas Chapter 20
  6. Lukas Chapter 15
  7. Lukas Chapter 1

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Matteus Chapter 9
  2. Jóhannes Chapter 15
  3. Rómverjar Chapter 7
  4. 1 Tímóteusarbréf Chapter 5
  5. Hebreabréfið Chapter 5
  6. 1 Jóhannesarbréf Chapter 1
  7. Markús Chapter 1

Related Chapters & Readings

  1. Jesaja Chapter 2
  2. Lúkas Chapter 11
  3. Esekíel Chapter 2
  4. Matteus Chapter 28
  5. Jósúabók Chapter 22
  6. 1 Korintubréf Chapter 3
  7. 1 Mósebók Chapter 6
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *