Read Matteus Chapter 16 Online
Read Matteus Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Matteus in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Matteus and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Matteus 16
Kafli 16
1. Þá komu farísear og saddúkear, vildu freista hans og báðu hann að sýna sér tákn af himni.
2. Hann svaraði þeim: "Að kvöldi segið þér: ,Það verður góðviðri, því að roði er á lofti.'
3. Og að morgni: ,Illviðri í dag, himinninn er rauður og þungbúinn.' Útlit loftsins kunnið þér að ráða, en ekki tákn tímanna.
4. Vond og ótrú kynslóð heimtar tákn, en eigi verður henni annað tákn gefið en tákn Jónasar." Síðan skildi hann við þá og fór.
5. Þegar lærisveinarnir fóru yfir um vatnið, höfðu þeir gleymt að taka með sér brauð.
6. Jesús sagði við þá: "Gætið yðar, varist súrdeig farísea og saddúkea."
7. En þeir ræddu sín á milli, að þeir hefðu ekki tekið brauð.
8. Jesús varð þess vís og sagði: "Hvað eruð þér að tala um það, trúlitlir menn, að þér hafið ekki brauð?
9. Skynjið þér ekki enn? Minnist þér ekki brauðanna fimm handa fimm þúsundum og hve margar körfur þér tókuð saman?
10. Eða brauðanna sjö handa fjórum þúsundum og hve margar körfur þér tókuð saman?
11. Hvernig má það vera, að þér skynjið ekki, að ég var ekki að tala um brauð við yður. Varist súrdeig farísea og saddúkea."
12. Þá skildu þeir, að hann hafði ekki talað um að varast súrdeig í brauði, heldur kenningu farísea og saddúkea.
13. Þegar Jesús kom í byggðir Sesareu Filippí, spurði hann lærisveina sína: "Hvern segja menn Mannssoninn vera?"
14. Þeir svöruðu: "Sumir Jóhannes skírara, aðrir Elía og enn aðrir Jeremía eða einn af spámönnunum."
15. Hann spyr: "En þér, hvern segið þér mig vera?"
16. Símon Pétur svarar: "Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs."
17. Þá segir Jesús við hann: "Sæll ert þú, Símon Jónasson! Hold og blóð hefur ekki opinberað þér þetta, heldur faðir minn á himnum.
18. Og ég segi þér: Þú ert Pétur, kletturinn, og á þessum kletti mun ég byggja kirkju mína, og máttur heljar mun ekki á henni sigrast.
19. Ég mun fá þér lykla himnaríkis, og hvað sem þú bindur á jörðu, mun bundið á himnum, og hvað sem þú leysir á jörðu, mun leyst á himnum."
20. Þá lagði hann ríkt á við lærisveinana að segja engum, að hann væri Kristur.
21. Upp frá þessu tók Jesús að sýna lærisveinum sínum fram á, að hann ætti að fara til Jerúsalem, líða þar margt af hendi öldunga, æðstu presta og fræðimanna og verða líflátinn, en rísa upp á þriðja degi.
22. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann: "Guð náði þig, herra, þetta má aldrei fyrir þig koma."
23. Jesús sneri sér við og mælti til Péturs: "Vík frá mér, Satan, þú ert mér til ásteytingar, þú hugsar ekki um það, sem Guðs er, heldur það, sem manna er."
24. Þá mælti Jesús við lærisveina sína: "Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér.
25. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu mín vegna, mun finna það.
26. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn og fyrirgjöra sálu sinni? Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína?
27. Mannssonurinn mun koma í dýrð föður síns með englum sínum, og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni hans.
28. Sannlega segi ég yður: Nokkrir þeirra, sem hér standa, munu eigi dauða bíða, fyrr en þeir sjá Mannssoninn koma í ríki sínu."
About Matteus Chapter 16
Read Matteus Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Matteus in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Matteus
Chapter: 16
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Matteus. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Matteus Chapter 16 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Matteus Chapter 16?
Matteus Chapter 16 is part of the Book of Matteus in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Matteus Chapter 16 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Matteus
- Matteus Chapter 2
- Matteus Chapter 5
- Matteus Chapter 3
- Matteus Chapter 6
- Matteus Chapter 13
- Matteus Chapter 18
- Matteus Chapter 8
Explore More from Nýja Testamentið
- Matteus Chapter 5
- Rómverjar Chapter 6
- Postulasagan Chapter 3
- Markús Chapter 2
- Hebreabréfið Chapter 1
- Jakobsbréfið Chapter 2
- Lúkas Chapter 22