Read Matteus Chapter 4 Online
Read Matteus Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Matteus in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Matteus and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Matteus 4
Kafli 4
1. Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina, að hans yrði freistað af djöflinum.
2. Þar fastaði hann fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður.
3. Þá kom freistarinn og sagði við hann: "Ef þú ert sonur Guðs, þá bjóð þú, að steinar þessir verði að brauðum."
4. Jesús svaraði: "Ritað er: ,Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði, heldur á hverju því orði, sem fram gengur af Guðs munni.'"
5. Þá tekur djöfullinn hann með sér í borgina helgu, setur hann á brún musterisins
6. og segir við hann: "Ef þú ert sonur Guðs, þá kasta þér ofan, því að ritað er: Hann mun fela þig englum sínum, og þeir munu bera þig á höndum sér, að þú steytir ekki fót þinn við steini."
7. Jesús svaraði honum: "Aftur er ritað: ,Ekki skalt þú freista Drottins, Guðs þíns.'"
8. Enn tekur djöfullinn hann með sér upp á ofurhátt fjall, sýnir honum öll ríki heims og dýrð þeirra
9. og segir: "Allt þetta mun ég gefa þér, ef þú fellur fram og tilbiður mig."
10. En Jesús sagði við hann: "Vík brott, Satan! Ritað er: ,Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum.'"
11. Þá fór djöfullinn frá Jesú. Og englar komu og þjónuðu honum.
12. Þegar hann heyrði, að Jóhannes hefði verið tekinn höndum, hélt hann til Galíleu.
13. Hann fór frá Nasaret og settist að í Kapernaum við vatnið í byggðum Sebúlons og Naftalí.
14. Þannig rættist það, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns:
15. Sebúlonsland og Naftalíland við vatnið, landið handan Jórdanar, Galílea heiðingjanna.
16. Sú þjóð, sem í myrkri sat, sá mikið ljós. Þeim er sátu í skuggalandi dauðans, er ljós upp runnið.
17. Upp frá þessu tekur Jesús að prédika og segja: "Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd."
18. Hann gekk með Galíleuvatni og sá tvo bræður, Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés, bróður hans, vera að kasta neti í vatnið, en þeir voru fiskimenn.
19. Hann sagði við þá: "Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða."
20. Og þegar í stað yfirgáfu þeir netin og fylgdu honum.
21. Hann gekk áfram þaðan og sá tvo aðra bræður, Jakob Sebedeusson og Jóhannes, bróður hans. Þeir voru í bátnum með Sebedeusi, föður sínum, að búa net sín. Jesús kallaði þá,
22. og þeir yfirgáfu jafnskjótt bátinn og föður sinn og fylgdu honum.
23. Hann fór nú um alla Galíleu, kenndi í samkundum þeirra, prédikaði fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi meðal lýðsins.
24. Orðstír hans barst um allt Sýrland, og menn færðu til hans alla, sem þjáðust af ýmsum sjúkdómum og kvölum, voru haldnir illum öndum, tunglsjúka menn og lama. Og hann læknaði þá.
25. Mikill mannfjöldi fylgdi honum úr Galíleu, Dekapólis, Jerúsalem, Júdeu og landinu handan Jórdanar.
About Matteus Chapter 4
Read Matteus Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Matteus in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Matteus
Chapter: 4
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Matteus. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Matteus Chapter 4 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Matteus Chapter 4?
Matteus Chapter 4 is part of the Book of Matteus in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Matteus Chapter 4 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Matteus
- Matteus Chapter 2
- Matteus Chapter 3
- Matteus Chapter 6
- Matteus Chapter 5
- Matteus Chapter 20
- Matteus Chapter 18
- Matteus Chapter 13
Explore More from Nýja Testamentið
- Lúkas Chapter 1
- 1 Korintubréf Chapter 15
- 1 Tímóteusarbréf Chapter 6
- Opinberunarbókin Chapter 10
- 2 Korintubréf Chapter 8
- Kólussubréfið Chapter 3
- Matteus Chapter 1