Malakí Chapter 3

For English

Read Malakí Chapter 3 Online

Read Malakí Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Malakí in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Malakí and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Malakí 3

Kafli 3

1. Sjá, ég sendi sendiboða minn, og hann mun greiða veginn fyrir mér. Og bráðlega mun hann koma til musteris síns, sá Drottinn er þér leitið, og engill sáttmálans, sá er þér þráið. Sjá, hann kemur – segir Drottinn allsherjar.

2. En hver má afbera þann dag, er hann kemur, og hver fær staðist, þegar hann birtist? Því að hann er sem eldur málmbræðslumannsins og sem lútarsalt þvottamannanna.

3. Og hann mun sitja og bræða og hreinsa silfrið, og hann mun hreinsa levítana og gjöra þá skíra sem gull og silfur, til þess að Drottinn hafi aftur þá menn, er bera fram fórnir á þann hátt sem rétt er,

4. og þá munu fórnir Júdamanna og Jerúsalembúa geðjast Drottni eins og forðum daga og eins og á löngu liðnum árum.

5. En ég mun nálægja mig yður til að halda dóm og mun skyndilega fram ganga sem vitni í gegn töframönnum, hórdómsmönnum og meinsærismönnum og í gegn þeim, sem hafa af daglaunamönnum, ekkjum og munaðarleysingjum og halla rétti útlendinga, en óttast mig ekki – segir Drottinn allsherjar.

6. Ég, Drottinn, hefi ekki breytt mér, og þér, Jakobssynir, eruð samir við yður.

7. Allt í frá dögum feðra yðar hafið þér vikið frá setningum mínum og ekki gætt þeirra. Snúið yður til mín, þá mun ég snúa mér til yðar – segir Drottinn allsherjar. En þér spyrjið: "Að hverju leyti eigum vér að snúa oss?"

8. Á maðurinn að pretta Guð, úr því að þér prettið mig? Þér spyrjið: "Í hverju höfum vér prettað þig?" Í tíund og fórnargjöfum.

9. Mikil bölvun hvílir yfir yður, af því að þér prettið mig, öll þjóðin.

10. Færið alla tíundina í forðabúrið til þess að fæðsla sé til í húsi mínu, og reynið mig einu sinni á þennan hátt – segir Drottinn allsherjar -, hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóðgáttum himinsins og úthelli yfir yður yfirgnæfanlegri blessun.

11. Og ég mun hasta á átvarginn fyrir yður, til þess að hann spilli ekki fyrir yður gróðri jarðarinnar og víntréð á akrinum verði yður ekki ávaxtarlaust – segir Drottinn allsherjar.

12. Þá munu allar þjóðir telja yður sæla, því að þér munuð vera dýrindisland – segir Drottinn allsherjar.

13. Hörð eru ummæli yðar um mig – segir Drottinn. Og þér spyrjið: "Hvað höfum vér þá sagt vor í milli um þig?"

14. Þér segið: "Það er til einskis að þjóna Guði, eða hvaða ávinning höfum vér af því haft, að vér varðveittum boðorð hans og gengum í sorgarbúningi fyrir augliti Drottins allsherjar?

15. Fyrir því teljum vér nú hina hrokafullu sæla. Þeir þrifust eigi aðeins vel, þá er þeir höfðu guðleysi í frammi, heldur freistuðu þeir og Guðs, og sluppu óhegndir."

16. Þá mæltu þeir hver við annan, sem óttast Drottin, og Drottinn gaf gætur að því og heyrði það, og frammi fyrir augliti hans var rituð minnisbók fyrir þá, sem óttast Drottin og virða hans nafn.

17. Þeir skulu vera mín eign – segir Drottinn allsherjar – á þeim degi, sem ég hefst handa, og ég mun vægja þeim, eins og maður vægir syni sínum, sem þjónar honum.

18. Þá munuð þér aftur sjá þann mismun, sem er á milli réttláts manns og óguðlegs, á milli þess, sem Guði þjónar, og hins, sem ekki þjónar honum.

About Malakí Chapter 3

Read Malakí Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Malakí in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Malakí
Chapter: 3
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Malakí. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Malakí Chapter 3 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Malakí Chapter 3?

Malakí Chapter 3 is part of the Book of Malakí in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Malakí Chapter 3 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 6
  6. Míka Chapter 7
  7. Míka Chapter 4

Explore More from malaki

  1. Malaki Chapter 3
  2. Malakí Chapter 1
  3. Malaki Chapter 3
  4. Malaki Chapter 2
  5. Malaki Chapter 2
  6. Malaki Chapter 1
  7. Malaki Chapter 1

Related Chapters & Readings

  1. 1 Samúelsbók Chapter 9
  2. Sálmarnir Chapter 47
  3. Hebreabréfið Chapter 5
  4. 1 Kroníkubók Chapter 22
  5. Ljóðaljóðin Chapter 8
  6. Jakobsbréfið Chapter 4
  7. Jesaja Chapter 10
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *