Read Títusarbréf Chapter 1 Online
Read Títusarbréf Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Títusarbréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Títusarbréf and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Títusarbréf 1
Kafli 1
1. Frá Páli, þjóni Guðs, en postula Jesú Krists til að efla trú Guðs útvöldu og þekkingu á sannleikanum, sem leiðir til guðhræðslu
2. í von um eilíft líf. Því hefur Guð, sá er ekki lýgur, heitið frá eilífum tíðum,
3. en opinberað á settum tíma. Þetta orð hans var mér trúað fyrir að prédika eftir skipun Guðs, frelsara vors.
4. Til Títusar, skilgetins sonar míns í sameiginlegri trú. Náð og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, frelsara vorum.
5. Ég lét þig eftir á Krít, til þess að þú færðir í lag það, sem ógjört var, og skipaðir öldunga í hverri borg, svo sem ég lagði fyrir þig.
6. Öldungur á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, á að eiga trúuð börn, sem eigi eru sökuð um gjálífi eða óhlýðni.
7. Því að biskup á að vera óaðfinnanlegur, þar sem hann er ráðsmaður Guðs. Hann á ekki að vera sjálfbirgingur, ekki bráður, ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, ekki sólginn í ljótan gróða.
8. Hann sé gestrisinn, góðgjarn, hóglátur, réttlátur, heilagur og hafi stjórn á sjálfum sér.
9. Hann á að vera maður fastheldinn við hið áreiðanlega orð, sem samkvæmt er kenningunni, til þess að hann sé fær um bæði að áminna með hinni heilnæmu kenningu og hrekja þá, sem móti mæla.
10. Því að margir eru þverbrotnir og fara með hégómamál og leiða í villu, allra helst eru það þeir sem halda fram umskurn,
11. og verður að þagga niður í þeim. Það eru mennirnir, sem kollvarpa heilum heimilum, er þeir kenna það, sem eigi á að kenna, fyrir svívirðilegs gróða sakir.
12. Einhver af þeim, eigin spámaður þeirra, hefur svo að orði komist: "Krítarmenn eru síljúgandi, óargadýr og letimagar."
13. Þessi vitnisburður er sannur. Fyrir þá sök skalt þú vanda harðlega um við þá, til þess að þeir verði heilbrigðir í trúnni,
14. og gefi sig ekki að gyðingaævintýrum og boðum manna, sem fráhverfir eru sannleikanum.
15. Allir hlutir eru hreinum hreinir, en flekkuðum og vantrúuðum er ekkert hreint, heldur er bæði hugur þeirra flekkaður og samviska.
16. Þeir segjast þekkja Guð, en afneita honum með verkum sínum. Þeir eru viðbjóðslegir og óhlýðnir, óhæfir til hvers góðs verks.
About Títusarbréf Chapter 1
Read Títusarbréf Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Títusarbréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Títusarbréf
Chapter: 1
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Títusarbréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Títusarbréf Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Títusarbréf Chapter 1?
Títusarbréf Chapter 1 is part of the Book of Títusarbréf in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Títusarbréf Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Nýja Testamentið
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 2
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 5
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 11