Rómverjar Chapter 16

For English

Read Rómverjar Chapter 16 Online

Read Rómverjar Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Rómverjar in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Rómverjar and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Rómverjar 16

Kafli 16

1. Ég fel yður á hendur Föbe, systur vora, sem er þjónn safnaðarins í Kenkreu.

2. Veitið henni viðtöku í Drottni eins og heilögum hæfir og liðsinnið henni í hverju því, sem hún þarf yðar við, því að hún hefur verið bjargvættur margra og mín sjálfs.

3. Heilsið Prisku og Akvílasi, samverkamönnum mínum í Kristi Jesú.

4. Þau hafa stofnað lífi sínu í hættu fyrir mig, og fyrir það votta ég þeim ekki einn þakkir, heldur og allir söfnuðir meðal heiðingjanna.

5. Heilsið einnig söfnuðinum, sem kemur saman í húsi þeirra. Heilsið Epænetusi, mínum elskaða, sem er frumgróði Asíu Kristi til handa.

6. Heilsið Maríu, sem mikið hefur erfiðað fyrir yður.

7. Heilsið Andróníkusi og Júníasi, ættmönnum mínum og sambandingjum. Þeir skara fram úr meðal postulanna og hafa á undan mér gengið Kristi á hönd.

8. Heilsið Amplíatusi, mínum elskaða í Drottni.

9. Heilsið Úrbanusi, samverkamanni vorum í Kristi, og Stakkýsi, mínum elskaða.

10. Heilsið Apellesi, sem hefur reynst hæfur í þjónustu Krists. Heilsið heimilismönnum Aristóbúls.

11. Heilsið Heródíon, ættingja mínum. Heilsið þeim á heimili Narkissusar, sem tilheyra Drottni.

12. Heilsið Trýfænu og Trýfósu, sem hafa lagt hart á sig fyrir Drottin. Heilsið Persis, hinni elskuðu, sem mikið hefur starfað fyrir Drottin.

13. Heilsið Rúfusi, hinum útvalda í Drottni, og móður hans, sem er mér einnig móðir.

14. Heilsið Asýnkritusi, Flegon, Hermes, Patróbasi, Hermasi og bræðrunum, sem hjá þeim eru.

15. Heilsið Fílólógusi og Júlíu, Nerevs og systur hans og Ólympasi og öllum heilögum, sem með þeim eru.

16. Heilsið hver öðrum með heilögum kossi. Allir söfnuðir Krists senda yður kveðju.

17. Ég áminni yður um, bræður, að hafa gát á þeim, er vekja sundurþykkju og tæla frá þeirri kenningu, sem þér hafið numið. Sneiðið hjá þeim.

18. Því að slíkir menn þjóna ekki Drottni vorum Kristi, heldur eigin maga, og með blíðmælum og fagurgala blekkja þeir hjörtu hrekklausra manna.

19. Hlýðni yðar er alkunn orðin. Því gleðst ég yfir yður og ég vil, að þér séuð vitrir í því, sem gott er, en einfaldir í því, sem illt er.

20. Guð friðarins mun bráðlega sundurmola Satan undir fótum yðar. Náðin Drottins vors Jesú Krist sé með yður.

21. Tímóteus, samverkamaður minn, Lúkíus, Jason og Sósípater, ættmenn mínir, biðja að heilsa yður.

22. Ég, Tertíus, sem hef ritað bréfið, bið að heilsa yður í Drottni.

23. Gajus, sem ljær mér og öllum söfnuðinum hús, biður að heilsa yður; Erastus, gjaldkeri borgarinnar, og bróðir Kvartus biðja að heilsa yður.

24. (OMITTED TEXT)

25. Honum, sem megnar að styrkja yður með fagnaðarerindinu, sem ég boða, og í prédikuninni um Jesú Krist samkvæmt opinberun þess leyndardóms, sem frá eilífum tíðum hefur verið dulinn,

26. en nú er opinberaður og fyrir spámannlegar ritningar, eftir skipun hins eilífa Guðs, kunngjörður öllum þjóðum til að vekja hlýðni við trúna,

27. honum einum, alvitrum Guði, sé fyrir Jesú Krist dýrð um aldir alda. Amen.

About Rómverjar Chapter 16

Read Rómverjar Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Rómverjar in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Rómverjar
Chapter: 16
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Rómverjar. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Rómverjar Chapter 16 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Rómverjar Chapter 16?

Rómverjar Chapter 16 is part of the Book of Rómverjar in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Rómverjar Chapter 16 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Nýja Testamentið

  1. Hebreabréfið Chapter 1
  2. Hebreabréfið Chapter 2
  3. Opinberunarbókin Chapter 9
  4. Hebreabréfið Chapter 6
  5. Hebreabréfið Chapter 5
  6. Hebreabréfið Chapter 10
  7. Hebreabréfið Chapter 9

Explore More from romverjar

  1. Rómverjar Chapter 4
  2. Rómverjar Chapter 11
  3. Rómverjar Chapter 1
  4. Rómverjar Chapter 10
  5. Rómverjar Chapter 12
  6. Rómverjar Chapter 14
  7. Rómverjar Chapter 5

Related Chapters & Readings

  1. 1 Mósebók Chapter 29
  2. Esekíel Chapter 33
  3. 3 Mósebók Chapter 5
  4. Esekíel Chapter 3
  5. Orðskviðirnir Chapter 20
  6. 1 Mósebók Chapter 30
  7. Esekíel Chapter 34
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *