Read Jakobsbréfið Chapter 2 Online
Read Jakobsbréfið Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jakobsbréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jakobsbréfið and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jakobsbréfið 2
Kafli 2
1. Bræður mínir, farið ekki í manngreinarálit, þér sem trúið á dýrðardrottin vorn Jesú Krist.
2. Nú kemur maður inn í samkundu yðar með gullhring á hendi og í skartlegum klæðum, og jafnframt kemur inn fátækur maður í óhreinum fötum,
3. ef öll athygli yðar beinist að þeim, sem skartklæðin ber, og þér segið: "Settu þig hérna í gott sæti!" en segið við fátæka manninn: "Stattu þarna, eða settu þig á gólfið við fótskör mína!"
4. hafið þér þá ekki mismunað mönnum og orðið dómarar með vondum hugsunum?
5. Heyrið, bræður mínir elskaðir! Hefur Guð ekki útvalið þá, sem fátækir eru í augum heimsins, til þess að þeir verði auðugir í trú og erfingjar þess ríkis, er hann hefur heitið þeim, sem elska hann?
6. En þér hafið óvirt hinn fátæka. Eru það þó ekki hinir ríku, sem undiroka yður og draga yður fyrir dómstóla?
7. Eru það ekki þeir, sem lastmæla hinu góða nafni, sem nefnt var yfir yður?
8. Ef þér uppfyllið hið konunglega boðorð Ritningarinnar: "Þú skalt elska náunga þinn sem sjálfan þig", þá gjörið þér vel.
9. En ef þér farið í manngreinarálit, þá drýgið þér synd og lögmálið sannar upp á yður að þér séuð brotamenn.
10. Þótt einhver héldi allt lögmálið, en hrasaði í einu atriði, þá er hann orðinn sekur við öll boðorð þess.
11. Því sá sem sagði: "Þú skalt ekki hórdóm drýgja", hann sagði líka: "Þú skalt ekki morð fremja." En þó að þú drýgir ekki hór, en fremur morð, þá ertu búinn að brjóta lögmálið.
12. Talið því og breytið eins og þeir, er dæmast eiga eftir lögmáli frelsisins.
13. Því að dómurinn verður miskunnarlaus þeim, sem ekki auðsýndi miskunn, en miskunnsemin gengur sigri hrósandi að dómi.
14. Hvað stoðar það, bræður mínir, þótt einhver segist hafa trú, en hefur eigi verk? Mun trúin geta frelsað hann?
15. Ef bróðir eða systir eru nakin og vantar daglegt viðurværi
16. og einhver yðar segði við þau: "Farið í friði, vermið yður og mettið!" en þér gefið þeim ekki það, sem líkaminn þarfnast, hvað stoðar það?
17. Eins er líka trúin dauð í sjálfri sér, vanti hana verkin.
18. En nú segir einhver: "Einn hefur trú, annar verk." Sýn mér þá trú þína án verkanna, og ég skal sýna þér trúna af verkum mínum.
19. Þú trúir, að Guð sé einn. Þú gjörir vel. En illu andarnir trúa því líka og skelfast.
20. Fávísi maður! Vilt þú láta þér skiljast, að trúin er ónýt án verkanna?
21. Réttlættist ekki Abraham faðir vor af verkum, er hann lagði son sinn Ísak á altarið?
22. Þú sérð, að trúin var samtaka verkum hans og að trúin fullkomnaðist með verkunum.
23. Og ritningin rættist, sem segir: "Abraham trúði Guði, og það var honum til réttlætis reiknað," og hann var kallaður Guðs vinur.
24. Þér sjáið, að maðurinn réttlætist af verkum og ekki af trú einni saman.
25. Svo var og um skækjuna Rahab. Réttlættist hún ekki af verkum, er hún tók við sendimönnunum og lét þá fara burt aðra leið?
26. Eins og líkaminn er dauður án anda, eins er og trúin dauð án verka.
About Jakobsbréfið Chapter 2
Read Jakobsbréfið Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jakobsbréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jakobsbréfið
Chapter: 2
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jakobsbréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jakobsbréfið Chapter 2 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jakobsbréfið Chapter 2?
Jakobsbréfið Chapter 2 is part of the Book of Jakobsbréfið in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jakobsbréfið Chapter 2 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from jakobsbrefid
Explore More from Nýja Testamentið
- Rómverjar Chapter 7
- 1 Þessaloníkubréf Chapter 3
- Opinberunarbókin Chapter 4
- Jóhannes Chapter 17
- 1 Korintubréf Chapter 4
- Lúkas Chapter 2
- Lúkas Chapter 23