Read Postulasagan Chapter 3 Online
Read Postulasagan Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Postulasagan in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Postulasagan and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Postulasagan 3
Kafli 3
1. Pétur og Jóhannes gengu upp í helgidóminn til síðdegisbæna.
2. Þá var þangað borinn maður, lami frá móðurlífi, er dag hvern var settur við þær dyr helgidómsins, sem nefndar eru Fögrudyr, til að beiðast ölmusu hjá þeim, er inn gengu í helgidóminn.
3. Er hann sá þá Pétur og Jóhannes á leið inn í helgidóminn, baðst hann ölmusu.
4. Þeir horfðu fast á hann, og Pétur sagði: "Lít þú á okkur."
5. Hann starði á þá í von um að fá eitthvað hjá þeim.
6. Pétur sagði: "Silfur og gull á ég ekki, en það sem ég hef, það gef ég þér: Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk!"
7. Og hann tók í hægri hönd honum og reisti hann upp. Jafnskjótt urðu fætur hans og ökklar styrkir,
8. hann spratt upp, stóð í fætur og tók að ganga. Hann fór inn með þeim í helgidóminn, gekk um og stökk og lofaði Guð.
9. Allt fólkið sá hann ganga um og lofa Guð.
10. Þeir þekktu, að hann var sá er hafði setið fyrir Fögrudyrum helgidómsins til að beiðast ölmusu. Urðu þeir furðu lostnir og frá sér numdir af því, sem fram við hann hafði komið.
11. Hann hélt sér að Pétri og Jóhannesi, og þá flykktist allt fólkið furðu lostið til þeirra í súlnagöngin, sem kennd eru við Salómon.
12. Þegar Pétur sá það, ávarpaði hann fólkið: "Ísraelsmenn, hví furðar yður á þessu eða hví starið þér á okkur, eins og við hefðum af eigin mætti eða guðrækni komið því til leiðar, að þessi maður gengur?
13. Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs, Guð feðra vorra hefur dýrlegan gjört þjón sinn, Jesú, sem þér framselduð og afneituðuð frammi fyrir Pílatusi, er hann hafði ályktað að láta hann lausan.
14. Þér afneituðuð hinum heilaga og réttláta, en beiddust að manndrápari yrði gefinn yður.
15. Þér líflétuð höfðingja lífsins, en Guð uppvakti hann frá dauðum, og að því erum vér vottar.
16. Trúin á nafn Jesú gjörði þennan mann, sem þér sjáið og þekkið, styrkan. Nafnið hans og trúin, sem hann gefur, veitti honum þennan albata fyrir augum yðar allra.
17. Nú veit ég, bræður, að þér gjörðuð það af vanþekkingu, sem og höfðingjar yðar.
18. En Guð lét þannig rætast það, sem hann hafði boðað fyrirfram fyrir munn allra spámannanna, að Kristur hans skyldi líða.
19. Gjörið því iðrun og snúið yður, að syndir yðar verði afmáðar.
20. Þá munu koma endurlífgunartímar frá augliti Drottins, og hann mun senda Krist, sem yður er fyrirhugaður, sem er Jesús.
21. Hann á að vera í himninum allt til þess tíma, þegar Guð endurreisir alla hluti, eins og hann hefur sagt fyrir munn sinna heilögu spámanna frá alda öðli.
22. Móse sagði: ,Spámann mun Drottinn, Guð yðar, uppvekja yður af bræðrum yðar eins og mig. Á hann skuluð þér hlýða í öllu, er hann talar til yðar.
23. Og sérhver sá, sem hlýðir ekki á þennan spámann, skal upprættur verða úr lýðnum.'
24. Allir spámennirnir, Samúel og þeir sem á eftir komu, allir þeir sem talað hafa, boðuðu og þessa daga.
25. Þér eruð börn spámannanna og eigið hlut í sáttmálanum, sem Guð gjörði við feður yðar, er hann sagði við Abraham: ,Af þínu afkvæmi skulu allar ættkvíslir jarðarinnar blessun hljóta.'
26. Guð hefur reist upp þjón sinn og sent hann yður fyrst til að blessa yður og snúa hverjum yðar frá vondri breytni sinni."
About Postulasagan Chapter 3
Read Postulasagan Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Postulasagan in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Postulasagan
Chapter: 3
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Postulasagan. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Postulasagan Chapter 3 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Postulasagan Chapter 3?
Postulasagan Chapter 3 is part of the Book of Postulasagan in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Postulasagan Chapter 3 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Nýja Testamentið
- Hebreabréfið Chapter 2
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 4
- Hebreabréfið Chapter 3
- Hebreabréfið Chapter 9
- Opinberunarbókin Chapter 1
Explore More from postulasagan
- Postulasagan Chapter 7
- Postulasagan Chapter 10
- Postulasagan Chapter 25
- Postulasagan Chapter 4
- Postulasagan Chapter 1
- Postulasagan Chapter 28
- Postulasagan Chapter 26