1 Jóhannesarbréf Chapter 4

For English

Read 1 Jóhannesarbréf Chapter 4 Online

Read 1 Jóhannesarbréf Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Jóhannesarbréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Jóhannesarbréf and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Jóhannesarbréf 4

Kafli 4

1. Þér elskaðir, trúið ekki sérhverjum anda, heldur reynið andana, hvort þeir séu frá Guði. Því margir falsspámenn eru farnir út í heiminn.

2. Af þessu getið þér þekkt anda Guðs: Sérhver andi, sem játar, að Jesús sé Kristur kominn í holdi, er frá Guði.

3. En sérhver andi, sem ekki játar Jesú, er ekki frá Guði. Hann er andkristsins andi, sem þér hafið heyrt um að komi, og nú þegar er hann í heiminum.

4. Þér börnin mín, heyrið Guði til og hafið sigrað falsspámennina, því að sá er meiri, sem í yður er, en sá, sem er í heiminum.

5. Falsspámennirnir heyra heiminum til. Þess vegna tala þeir eins og heimurinn talar, og heimurinn hlýðir á þá.

6. Vér heyrum Guði til. Hver sem þekkir Guð hlýðir á oss. Sá sem ekki heyrir Guði til hlýðir ekki á oss. Af þessu þekkjum vér sundur anda sannleikans og anda villunnar.

7. Þér elskaðir, elskum hver annan, því að kærleikurinn er frá Guði kominn, og hver sem elskar er af Guði fæddur og þekkir Guð.

8. Sá sem ekki elskar þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.

9. Í því birtist kærleikur Guðs meðal vor, að Guð hefur sent einkason sinn í heiminn til þess að vér skyldum lifa fyrir hann.

10. Þetta er kærleikurinn: Ekki að vér elskuðum Guð, heldur að hann elskaði oss og sendi son sinn til að vera friðþæging fyrir syndir vorar.

11. Þér elskaðir, fyrst Guð hefur svo elskað oss, þá ber einnig oss að elska hver annan.

12. Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Ef vér elskum hver annan, þá er Guð stöðugur í oss og kærleikur hans er fullkomnaður í oss.

13. Vér þekkjum, að vér erum stöðugir í honum og hann í oss, af því að hann hefur gefið oss af sínum anda.

14. Vér höfum séð og vitnum, að faðirinn hefur sent soninn til að vera frelsari heimsins.

15. Hver sem játar, að Jesús sé Guðs sonur, í honum er Guð stöðugur og hann í Guði.

16. Vér þekkjum kærleikann, sem Guð hefur á oss, og trúum á hann. Guð er kærleikur, og sá sem er stöðugur í kærleikanum er stöðugur í Guði og Guð er stöðugur í honum.

17. Með því er kærleikurinn orðinn fullkominn hjá oss, að vér höfum djörfung á degi dómsins, því að vér erum í þessum heimi eins og hann er.

18. Ótti er ekki í elskunni. Fullkomin elska rekur út óttann. Því að óttinn felur í sér hegningu, en sá sem óttast er ekki fullkominn í elskunni.

19. Vér elskum, því að hann elskaði oss að fyrra bragði.

20. Ef einhver segir: "Ég elska Guð," og hatar bróður sinn, sá er lygari. Því að sá sem elskar ekki bróður sinn, sem hann hefur séð, getur ekki elskað Guð, sem hann hefur ekki séð.

21. Og þetta boðorð höfum vér frá honum, að sá sem elskar Guð á einnig að elska bróður sinn.

About 1 Jóhannesarbréf Chapter 4

Read 1 Jóhannesarbréf Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Jóhannesarbréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Jóhannesarbréf
Chapter: 4
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Jóhannesarbréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Jóhannesarbréf Chapter 4 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Jóhannesarbréf Chapter 4?

1 Jóhannesarbréf Chapter 4 is part of the Book of 1 Jóhannesarbréf in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Jóhannesarbréf Chapter 4 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Johannesarbref

  1. 1 Jóhannesarbréf Chapter 2
  2. 1 Jóhannesarbréf Chapter 5
  3. 1 Jóhannesarbréf Chapter 3
  4. 1 Jóhannesarbréf Chapter 1

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Jóhannes Chapter 5
  2. Efesusbréfið Chapter 2
  3. 1 Þessaloníkubréf Chapter 4
  4. 2 Korintubréf Chapter 8
  5. Matteus Chapter 8
  6. Hebreabréfið Chapter 1
  7. Matteus Chapter 23

Related Chapters & Readings

  1. 3 Mósebók Chapter 19
  2. 1 Mósebók Chapter 28
  3. Filippíbréfið Chapter 2
  4. Postulasagan Chapter 7
  5. Sálmarnir Chapter 33
  6. Sálmarnir Chapter 10
  7. Harmljóðin Chapter 3
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *