Postulasagan Chapter 14

For English

Read Postulasagan Chapter 14 Online

Read Postulasagan Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Postulasagan in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Postulasagan and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Postulasagan 14

Kafli 14

1. Í Íkóníum gengu þeir á sama hátt inn í samkundu Gyðinga og töluðu þannig, að mikill fjöldi Gyðinga og Grikkja tók trú.

2. En vantrúa Gyðingar vöktu æsing með heiðingjum og illan hug gegn bræðrunum.

3. Dvöldust þeir þar alllangan tíma og töluðu djarflega í trausti til Drottins, sem staðfesti orð náðar sinnar með því að láta tákn og undur gerast fyrir hendur þeirra.

4. Skiptust nú borgarbúar í tvo flokka, og voru sumir með Gyðingum, aðrir með postulunum.

5. Heiðingjar og Gyðingar gjörðu ásamt yfirvöldum sínum samblástur um að misþyrma þeim og grýta þá.

6. Þeir komust að þessu og flýðu til borganna Lýstru og Derbe í Lýkaóníu og héraðsins umhverfis.

7. Þar héldu þeir áfram að flytja fagnaðarerindið.

8. Í Lýstru var maður nokkur máttvana í fótum, lami frá móðurlífi, og hafði aldrei getað gengið.

9. Maður þessi heyrði á mál Páls, en Páll horfði á hann og sá, að hann hafði trú til þess að verða heill,

10. og sagði hárri raustu: "Rís upp og stattu í fæturna!" Hann spratt upp og tók að ganga.

11. Múgurinn sá, hvað Páll hafði gjört, og tók að hrópa á lýkaónsku: "Guðirnir eru í manna líki stignir niður til vor."

12. Kölluðu þeir Barnabas Seif, en Pál Hermes, því að hann hafði orð fyrir þeim.

13. En prestur í hofi Seifs utan borgar kom með naut og kransa að borgarhliðunum og vildi færa fórnir ásamt fólkinu.

14. Þegar postularnir, Barnabas og Páll, heyrðu þetta, rifu þeir klæði sín, stukku inn í mannþröngina og hrópuðu:

15. "Menn, hví gjörið þér þetta? Menn erum vér sem þér, yðar líkar, og flytjum yður þau fagnaðarboð, að þér skuluð hverfa frá þessum fánýtu goðum til lifanda Guðs, sem skapaði himin, jörð og haf og allt, sem í þeim er.

16. Hann hefur um liðnar aldir leyft, að sérhver þjóð gengi sína vegu.

17. En þó hefur hann vitnað um sjálfan sig með velgjörðum sínum. Hann hefur gefið yður regn af himni og uppskerutíðir. Hann hefur veitt yður fæðu og fyllt hjörtu yðar gleði."

18. Með þessum orðum fengu þeir með naumindum fólkið ofan af því að færa þeim fórnir.

19. Þá komu Gyðingar frá Antíokkíu og Íkóníum. Töldu þeir fólkið á sitt mál, og menn grýttu Pál, drógu hann út úr borginni og hugðu hann dáinn.

20. En lærisveinarnir slógu hring um hann, og reis hann þá upp og gekk inn í borgina. Daginn eftir fór hann þaðan með Barnabasi til Derbe.

21. Þegar þeir höfðu boðað fagnaðarerindið í þeirri borg og gjört marga að lærisveinum, sneru þeir aftur til Lýstru, Íkóníum og Antíokkíu,

22. styrktu lærisveinana og hvöttu þá til að vera staðfastir í trúnni. Þeir sögðu: "Vér verðum að ganga inn í Guðs ríki gegnum margar þrengingar."

23. Þeir völdu þeim öldunga í hverjum söfnuði, fólu þá síðan með föstum og bænahaldi Drottni, sem þeir höfðu fest trú á.

24. Þá fóru þeir um Pisidíu og komu til Pamfýlíu.

25. Þeir fluttu orðið í Perge, fóru til Attalíu

26. og sigldu þaðan til Antíokkíu, en þar höfðu þeir verið faldir náð Guðs til þess verks, sem þeir höfðu nú fullnað.

27. Þegar þeir voru þangað komnir, stefndu þeir saman söfnuðinum og greindu frá, hversu mikið Guð hafði látið þá gjöra og að hann hefði upp lokið dyrum trúarinnar fyrir heiðingjum.

28. Dvöldust þeir nú alllengi hjá lærisveinunum.

About Postulasagan Chapter 14

Read Postulasagan Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Postulasagan in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Postulasagan
Chapter: 14
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Postulasagan. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Postulasagan Chapter 14 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Postulasagan Chapter 14?

Postulasagan Chapter 14 is part of the Book of Postulasagan in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Postulasagan Chapter 14 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Nýja Testamentið

  1. Hebreabréfið Chapter 6
  2. Hebreabréfið Chapter 2
  3. Hebreabréfið Chapter 1
  4. Hebreabréfið Chapter 10
  5. Hebreabréfið Chapter 5
  6. Opinberunarbókin Chapter 9
  7. Jakobsbréfið Chapter 5

Explore More from postulasagan

  1. Postulasagan Chapter 10
  2. Postulasagan Chapter 15
  3. Postulasagan Chapter 18
  4. Postulasagan Chapter 19
  5. Postulasagan Chapter 24
  6. Postulasagan Chapter 22
  7. Postulasagan Chapter 8

Related Chapters & Readings

  1. Jakobsbréfið Chapter 4
  2. Sálmarnir Chapter 119
  3. 2 Samúelsbók Chapter 8
  4. Sálmarnir Chapter 9
  5. Sefanía Chapter 1
  6. 4 Mósebók Chapter 27
  7. 2 Þessaloníkubréf Chapter 3
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *