2 Kroníkubók Chapter 9

For English

Read 2 Kroníkubók Chapter 9 Online

Read 2 Kroníkubók Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Kroníkubók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Kroníkubók 9

Kafli 9

1. Þá er drottningin í Saba spurði orðstír Salómons, kom hún til Jerúsalem með mjög miklu föruneyti og með úlfalda, klyfjaða kryddjurtum og afar miklu gulli og gimsteinum, til þess að reyna Salómon með gátum. Og er hún kom til Salómons, bar hún upp fyrir honum allt, sem henni bjó í brjósti.

2. En Salómon svaraði öllum spurningum hennar. Var enginn hlutur hulinn Salómon, er hann gæti eigi leyst úr fyrir hana.

3. Og er drottningin frá Saba sá speki Salómons og húsið, sem hann hafði reisa látið,

4. matinn á borði hans, bústaði þjóna hans og frammistöðu skutilsveina hans og klæði þeirra, byrlara hans og klæði þeirra og brennifórn hans, þá er hann fram bar í húsi Drottins, þá varð hún frá sér numin

5. og sagði við konung: "Satt var það, er ég heyrði í landi mínu um þig og speki þína.

6. En ég trúði ekki orðum þeirra fyrr en ég kom og sá það með eigin augum. Og þó hafði ég ekki frétt helminginn um gnótt speki þinnar. Þú ert meiri orðróm þeim, er ég hefi heyrt.

7. Sælir eru menn þínir og sælir þessir þjónar þínir, sem stöðugt standa frammi fyrir þér og heyra speki þína.

8. Lofaður sé Drottinn, Guð þinn, sem hafði þóknun á þér, svo að hann setti þig í hásæti sitt sem konung Drottins, Guðs þíns. Af því að Guð þinn elskar Ísrael, svo að hann vill láta hann standa að eilífu, gjörði hann þig að konungi yfir þeim til þess að iðka rétt og réttvísi."

9. Síðan gaf hún konungi hundrað og tuttugu talentur gulls og afar mikið af kryddjurtum og gimsteina. Hefir aldrei síðan verið annað eins af kryddjurtum og drottningin frá Saba gaf Salómon konungi.

10. Sömuleiðis komu og þjónar Húrams og þjónar Salómons, þeir er gull sóttu til Ófír, með sandelvið og gimsteina.

11. Og konungur lét gjöra handrið í hús Drottins og í konungshöllina af sandelviðnum, svo og gígjur og hörpur handa söngmönnunum. Hafði ei áður slíkt sést í Júdalandi.

12. Salómon konungur gaf drottningunni frá Saba allt, er hún girntist og kaus sér, auk þess, er hún hafði fært konungi. Hélt hún síðan heimleiðis og fór í land sitt með föruneyti sínu.

13. Gullið, sem Salómon fékk á einu ári, var sex hundruð sextíu og sex talentur gulls að þyngd,

14. auk þess er kom inn frá varningsmönnum og þess er kaupmennirnir komu með. Auk þess færðu allir konungar Arabíu og jarlar landsins Salómon gull og silfur.

15. Og Salómon konungur lét gjöra tvö hundruð skildi af slegnu gulli, fóru sex hundruð siklar af slegnu gulli í hvern skjöld,

16. og þrjú hundruð buklara af slegnu gulli, fóru þrjú hundruð siklar gulls í hvern buklara. Lét konungur leggja þá í Líbanonsskógarhúsið.

17. Konungur lét og gjöra hásæti mikið af fílabeini og lagði það skíru gulli.

18. Gengu sex þrep upp að hásætinu, og fótskör úr gulli var fest á hásætið. Bríkur voru báðum megin sætisins, og stóðu tvö ljón við bríkurnar.

19. Og tólf ljón stóðu á þrepunum sex, báðum megin. Slík smíð hefir aldrei verið gjörð í nokkru konungsríki.

20. Öll voru drykkjarker Salómons konungs af gulli, og öll áhöld í Líbanonsskógarhúsinu voru af skíru gulli, ekkert af silfri, því að silfur var einskis metið á dögum Salómons.

21. Því að konungur hafði skip, er fóru til Tarsis með mönnum Húrams. Þriðja hvert ár komu Tarsis-skipin heim, hlaðin gulli og silfri, fílabeini, öpum og páfuglum.

22. Salómon konungur bar af öllum konungum jarðarinnar að auðlegð og visku.

23. Og alla konunga jarðarinnar fýsti að sjá Salómon til þess að heyra visku hans, sem Guð hafði lagt honum í brjóst.

24. Komu þeir þá hver með sína gjöf, silfurgripi og gullgripi, klæði, vopn og kryddjurtir, hesta og múla, ár eftir ár.

25. Og Salómon átti fjögur þúsund vagneyki og vagna og tólf þúsund riddara. Lét hann þá vera í vagnliðsborgunum og með konungi í Jerúsalem.

26. Og hann drottnaði yfir öllum konungum frá Efrat allt til Filistalands og til landamæra Egyptalands.

27. Og konungur gjörði silfur eins algengt í Jerúsalem og grjót, og sedrusvið eins og mórberjatrén, sem vaxa á láglendinu.

28. Og menn fluttu hesta úr Egyptalandi og úr öllum löndum handa Salómon.

29. Annað af sögu Salómons er frá upphafi til enda skráð í Sögu Natans spámanns og í Spádómi Ahía frá Síló og í Vitrun Íddós sjáanda um Jeróbóam Nebatsson.

30. Salómon ríkti í Jerúsalem yfir öllum Ísrael í fjörutíu ár.

31. Og hann lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og var jarðaður í borg Davíðs föður síns. Og Rehabeam sonur hans tók ríki eftir hann.

About 2 Kroníkubók Chapter 9

Read 2 Kroníkubók Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Kroníkubók
Chapter: 9
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Kroníkubók Chapter 9 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Kroníkubók Chapter 9?

2 Kroníkubók Chapter 9 is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Kroníkubók Chapter 9 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Kronikubok

  1. 2 Kroníkubók Chapter 17
  2. 2 Kroníkubók Chapter 4
  3. 2 Kroníkubók Chapter 35
  4. 2 Kroníkubók Chapter 26
  5. 2 Kroníkubók Chapter 24
  6. 2 Kroníkubók Chapter 19
  7. 2 Kroníkubók Chapter 16

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Sálmarnir Chapter 51
  2. 2 Kroníkubók Chapter 2
  3. 1 Konungabók Chapter 1
  4. Jesaja Chapter 38
  5. 2 Mósebók Chapter 31
  6. Sálmarnir Chapter 100
  7. 5 Mósebók Chapter 31

Related Chapters & Readings

  1. 1 Mósebók Chapter 17
  2. Sálmarnir Chapter 113
  3. 5 Mósebók Chapter 27
  4. Sakaría Chapter 1
  5. 1 Kroníkubók Chapter 5
  6. Esrabók Chapter 2
  7. Sálmarnir Chapter 49
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *