Read 2 Kroníkubók Chapter 8 Online
Read 2 Kroníkubók Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Kroníkubók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Kroníkubók 8
Kafli 8
1. Að tuttugu árum liðnum, þá er Salómon hafði byggt musteri Drottins og höll sína –
2. en borgirnar, er Húram hafði látið af hendi við Salómon, þær víggirti Salómon og lét Ísraelsmenn setjast þar að –
3. þá hélt Salómon til Hamat hjá Sóba og náði henni á sitt vald.
4. Og hann víggirti Tadmor í eyðimörkinni og allar vistaborgirnar, þær er hann byggði í Hamat.
5. Þá víggirti hann og Efri Bethóron og Neðri Bethóron og gjörði að köstulum með múrum, hliðum og slagbröndum,
6. enn fremur Baalat og allar vistaborgirnar, er Salómon átti, og allar vagnliðsborgirnar og riddaraborgirnar og allt, sem Salómon fýsti að byggja í Jerúsalem, á Líbanon og í öllu ríki sínu.
7. Allt það fólk, sem eftir var af Hetítum, Amorítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, er eigi heyrðu til Ísraelsmönnum,
8. niðjar þeirra, sem enn voru eftir í landinu og Ísraelsmenn eigi höfðu útrýmt, á þá lagði Salómon skylduvinnu, og er svo enn í dag.
9. En af Ísraelsmönnum gjörði Salómon enga að þrælum til þess að vinna að fyrirtækjum sínum, en þeir voru hermenn, foringjar fyrir vagnköppum hans og foringjar fyrir vagnliði hans og riddaraliði.
10. Æðstu fógetar Salómons konungs voru tvö hundruð og fimmtíu að tölu. Þeir höfðu eftirlit með mönnum.
11. Og dóttur Faraós færði Salómon frá Davíðsborg í hús það, er hann hafði byggt handa henni, því að hann sagði: "Eigi skal ég láta konu búa í höll Davíðs Ísraelskonungs, því að helgir eru þeir staðir, þangað sem örk Drottins hefir komið."
12. Þá færði Salómon Drottni brennifórnir á altari Drottins, því er hann hafði reist fyrir framan forsalinn,
13. svo að hann færði fórnir eins og við átti á degi hverjum samkvæmt skipunum Móse, á hvíldardögunum, tunglkomudögunum og löghátíðunum, þrisvar á ári – á hátíð hinna ósýrðu brauða, á viknahátíðinni og á laufskálahátíðinni.
14. Og eftir fyrirmælum Davíðs föður síns setti hann prestaflokkana til þjónustu þeirra og levítana til starfs þeirra, að syngja lofsöngva og vera prestunum til aðstoðar, svo sem við átti á degi hverjum, og hliðverðina setti hann við sérhvert hlið, eftir flokkaskipun þeirra, því að svo hafði guðsmaðurinn Davíð um boðið.
15. Var hvergi brugðið af skipun konungs um prestana og levítana og féhirslurnar.
16. Var þannig lokið við öll störf Salómons, frá þeim degi, er grundvöllurinn var lagður að musteri Drottins, og þangað til Salómon lauk við musteri Drottins.
17. Þá fór Salómon til Esjón Geber og til Elót á strönd hafsins í Edómlandi.
18. En Húram sendi honum með mönnum sínum skip og menn, vana sjóferðum. Og þeir komust til Ófír ásamt mönnum Salómons og sóttu þangað fjögur hundruð og fimmtíu talentur gulls og færðu Salómon konungi.
About 2 Kroníkubók Chapter 8
Read 2 Kroníkubók Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Kroníkubók
Chapter: 8
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Kroníkubók Chapter 8 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Kroníkubók Chapter 8?
2 Kroníkubók Chapter 8 is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Kroníkubók Chapter 8 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2 Kronikubok
- 2 Kroníkubók Chapter 19
- 2 Kroníkubók Chapter 17
- 2 Kroníkubók Chapter 18
- 2 Kroníkubók Chapter 5
- 2 Kroníkubók Chapter 1
- 2 Kroníkubók Chapter 24
- 2 Kroníkubók Chapter 16
Explore More from Gamla Testamentið
- Sálmarnir Chapter 5
- 5 Mósebók Chapter 17
- 1 Kroníkubók Chapter 4
- 1 Konungabók Chapter 2
- 1 Konungabók Chapter 21
- Jobsbók Chapter 10
- 2 Kroníkubók Chapter 7