Read 2 Kroníkubók Chapter 5 Online
Read 2 Kroníkubók Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Kroníkubók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Kroníkubók 5
Kafli 5
1. Og er öllu því verki var lokið, er Salómon lét gjöra að musteri Drottins, þá flutti hann helgigjafir Davíðs föður síns inn í það, silfrið og gullið, en öll áhöldin lét hann í féhirslur Drottins húss.
2. Þá safnaði Salómon saman öldungum Ísraels og öllum foringjum kynþáttanna, ætthöfðingjum Ísraelsmanna, til Jerúsalem til þess að flytja sáttmálsörk Drottins upp eftir frá Davíðsborg, það er Síon.
3. Þá söfnuðust allir Ísraelsmenn til konungs í etaním-mánuði á hátíðinni. (Er sá mánuður hinn sjöundi).
4. Þá komu allir öldungar Ísraels, og levítarnir tóku örkina,
5. og þeir fluttu örkina og samfundatjaldið og öll hin helgu áhöld, er í tjaldinu voru. Fluttu levítaprestarnir þau upp eftir.
6. En Salómon konungur og allur Ísraelssöfnuður, er safnast hafði til hans, stóð frammi fyrir örkinni. Fórnuðu þeir sauðum og nautum, er eigi varð tölu né ætlan á komið fyrir fjölda sakir.
7. Og prestarnir fluttu sáttmálsörk Drottins á sinn stað, í innhús musterisins, inn í Hið allrahelgasta, inn undir vængi kerúbanna.
8. Og kerúbarnir breiddu út vængina þar yfir, er örkin stóð, og þannig huldu kerúbarnir örkina og stengur hennar ofan frá.
9. Og stengurnar voru svo langar, að stangarendarnir sáust frá helgidóminum fyrir framan innhúsið, en utan að sáust þeir ekki. Og þær hafa verið þar fram á þennan dag.
10. Í örkinni var ekkert nema töflurnar tvær, er Móse lét þar við Hóreb, töflur sáttmálans, er Drottinn gjörði við Ísraelsmenn, þá er þeir fóru af Egyptalandi.
11. En er prestarnir gengu út úr helgidóminum – því að allir prestarnir, er viðstaddir voru, höfðu helgað sig, flokkaskiptingar var eigi gætt,
12. og allir levítasöngmenn, Asaf, Heman og Jedútún og synir þeirra og bræður, stóðu þar, klæddir baðmullarskikkjum, með skálabumbur, hörpur og gígjur, að austanverðu við altarið, og hjá þeim hundrað og tuttugu prestar, er þeyttu lúðra,
13. en lúðramenn og söngmenn áttu að byrja í senn og einraddað að lofa og vegsama Drottin – og er menn létu lúðra og skálabumbur kveða við og hin önnur hljóðfæri og þakkargjörð til Drottins "því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu," þá fyllti ský musterið, musteri Drottins,
14. og máttu prestarnir eigi inn ganga fyrir skýinu til þess að gegna þjónustu, því að dýrð Drottins fyllti hús Guðs.
About 2 Kroníkubók Chapter 5
Read 2 Kroníkubók Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Kroníkubók
Chapter: 5
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Kroníkubók Chapter 5 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Kroníkubók Chapter 5?
2 Kroníkubók Chapter 5 is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Kroníkubók Chapter 5 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2 Kronikubok
- 2 Kroníkubók Chapter 1
- 2 Kroníkubók Chapter 17
- 2 Kroníkubók Chapter 19
- 2 Kroníkubók Chapter 4
- 2 Kroníkubók Chapter 31
- 2 Kroníkubók Chapter 29
- 2 Kroníkubók Chapter 24
Explore More from Gamla Testamentið
- Jesaja Chapter 24
- Jóel Chapter 3
- Jeremía Chapter 3
- Hósea Chapter 8
- Prédikarinn Chapter 4
- Sálmarnir Chapter 129
- Sálmarnir Chapter 61