Read 2 Kroníkubók Chapter 16 Online
Read 2 Kroníkubók Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Kroníkubók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Kroníkubók 16
Kafli 16
1. Á þrítugasta og sjötta ríkisári Asa fór Basa Ísraelskonungur herför á móti Júda og víggirti Rama, svo að enginn maður gæti komist út eða inn hjá Asa Júdakonungi.
2. Þá tók Asa silfur og gull úr fjárhirslum húss Drottins og konungshallarinnar og sendi Benhadad Sýrlandskonungi, er bjó í Damaskus, með þessari orðsending:
3. "Sáttmáli er milli mín og þín, milli föður míns og föður þíns. Sjá, ég sendi þér silfur og gull: Skalt þú nú rjúfa bandalag þitt við Basa Ísraelskonung, svo að hann hafi sig á burt frá mér."
4. Benhadad tók vel máli Asa konungs og sendi hershöfðingja sína móti borgum Ísraels og unnu þeir Íjón, Dan og Abel Maím og öll forðabúr í Naftalí borgum.
5. Þegar Basa spurði það, lét hann af að víggirða Rama og hætti við starf sitt.
6. En Asa konungur bauð út öllum Júdamönnum, og fluttu þeir burt steinana og viðinn, sem Basa hafði víggirt Rama með, og víggirti hann með þeim Geba og Mispa.
7. En um þetta leyti kom Hananí sjáandi til Asa Júdakonungs og sagði við hann: "Sakir þess að þú studdist við Sýrlandskonung, en studdist ekki við Drottin, Guð þinn, sakir þess er her Sýrlandskonungs genginn þér úr greipum.
8. Voru ekki Blálendingar og Líbýumenn mikill her, með afar marga vagna og riddara? En af því þú studdist við Drottin, gaf hann þá þér á vald.
9. Því að augu Drottins hvarfla um alla jörðina, til þess að hann megi sýna sig máttkan þeim til hjálpar, sem eru heils hugar við hann. Þér hefir farið heimskulega í þessu, því að héðan í frá munu menn stöðugt eiga í ófriði við þig."
10. En Asa rann í skap við sjáandann og setti hann í stokkhúsið, því að hann var honum reiður fyrir þetta. Asa sýndi og sumum af lýðnum ofríki um þessar mundir.
11. Saga Asa er frá upphafi til enda rituð í bókum Júda- og Ísraelskonunga.
12. Á þrítugasta og níunda ríkisári sínu gjörðist Asa fótaveikur, og varð sjúkleiki hans mjög mikill. En einnig í sjúkleik sínum leitaði hann ekki Drottins, heldur læknanna.
13. Og Asa lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum og dó á fertugasta og fyrsta ríkisári sínu.
14. Og hann var grafinn í gröf sinni, er hann hafði látið höggva út handa sér í Davíðsborg. Og hann var lagður á líkbekk, er fylltur var kryddjurtum og alls konar smyrslum, blönduðum ilmreykelsi, og afar mikil brenna var gjörð honum til heiðurs.
About 2 Kroníkubók Chapter 16
Read 2 Kroníkubók Chapter 16 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Kroníkubók
Chapter: 16
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Kroníkubók Chapter 16 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Kroníkubók Chapter 16?
2 Kroníkubók Chapter 16 is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Kroníkubók Chapter 16 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2 Kronikubok
- 2 Kroníkubók Chapter 19
- 2 Kroníkubók Chapter 17
- 2 Kroníkubók Chapter 1
- 2 Kroníkubók Chapter 18
- 2 Kroníkubók Chapter 14
- 2 Kroníkubók Chapter 2
- 2 Kroníkubók Chapter 29
Explore More from Gamla Testamentið
- 4 Mósebók Chapter 28
- 2 Mósebók Chapter 3
- Sálmarnir Chapter 10
- 2 Kroníkubók Chapter 5
- Orðskviðirnir Chapter 12
- Sálmarnir Chapter 25
- Sálmarnir Chapter 101