2 Kroníkubók Chapter 18

For English

Read 2 Kroníkubók Chapter 18 Online

Read 2 Kroníkubók Chapter 18 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Kroníkubók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Kroníkubók 18

Kafli 18

1. Jósafat hlotnaðist afar mikil auðlegð og sæmd, og hann mægðist við Akab.

2. Eftir nokkur ár fór hann á fund Akabs til Samaríu. Þá slátraði Akab fjölda sauða og nauta handa honum og mönnum þeim, er með honum voru, og ginnti hann að fara með sér til að herja á Ramót í Gíleað.

3. Þá mælti Akab Ísraelskonungur við Jósafat Júdakonung: "Hvort munt þú fara með mér til Ramót í Gíleað?" Hann svaraði honum: "Eitt skal yfir báða ganga, mig og þig, mína þjóð og þína þjóð. Skal ég fara með þér til bardagans."

4. Og Jósafat sagði við Ísraelskonung: "Gakk þú fyrst til frétta og vit, hvað Drottinn segir."

5. Þá stefndi Ísraelskonungur saman spámönnunum, fjögur hundruð manns, og sagði við þá: "Á ég að fara og herja á Ramót í Gíleað, eða á ég að hætta við það?" Þeir svöruðu: "Far þú, og Guð mun gefa hana í hendur konungi."

6. En Jósafat mælti: "Er hér ekki enn einhver spámaður Drottins, að vér mættum leita frétta hjá honum?"

7. Ísraelskonungur mælti til Jósafats: "Enn er einn eftir, er vér gætum látið ganga til frétta við Drottin, en mér er lítið um hann gefið, því að hann spáir mér aldrei góðu, heldur ávallt illu. Hann heitir Míka Jimlason." Jósafat sagði: "Eigi skyldi konungur svo mæla."

8. Þá kallaði Ísraelskonungur einn af hirðmönnunum og mælti: "Sæk sem skjótast Míka Jimlason."

9. En Ísraelskonungur og Jósafat Júdakonungur sátu hvor í sínu hásæti, skrýddir purpuraklæðum úti fyrir borgarhliði Samaríu, og allir spámennirnir spáðu frammi fyrir þeim.

10. Þá gjörði Sedekía Kenaanason sér horn úr járni og mælti: "Svo segir Drottinn: Með þessum munt þú reka Sýrlendinga undir, uns þú hefir gjöreytt þeim."

11. Og allir spámennirnir spáðu á sömu leið og sögðu: "Far þú til Ramót í Gíleað. Þú munt giftudrjúgur verða, og Drottinn mun gefa hana í hendur konungi."

12. Sendimaðurinn, sem farinn var að sækja Míka, mælti til hans á þessa leið: "Sjá, spámennirnir hafa einum munni boðað konungi hamingju. Mæl þú sem þeir og boða þú hamingju."

13. En Míka mælti: "Svo sannarlega sem Drottinn lifir: Það sem Guð minn til mín talar, það mun ég mæla."

14. Þegar hann kom til konungs, mælti konungur til hans: "Míka, eigum vér að fara og herja á Ramót í Gíleað, eða eigum vér að hætta við það?" Þá sagði hann: "Farið, þér munuð giftudrjúgir verða, og þeir munu gefnir verða yður á vald!"

15. Þá sagði konungur við hann: "Hversu oft á ég að særa þig um, að þú segir mér eigi annað en sannleikann í nafni Drottins?"

16. Þá mælti hann: "Ég sá allan Ísrael tvístrast um fjöllin eins og hirðislausa sauði, og Drottinn sagði: Þessir hafa engan herra. Fari þeir í friði hver heim til sín."

17. Þá sagði Ísraelskonungur við Jósafat: "Fer nú eigi sem ég sagði þér: Hann spáir mér eigi góðu, heldur illu einu?"

18. Þá mælti hann: "Eigi er svo. Heyrið orð Drottins! Ég sá Drottin sitja í hásæti sínu og allan himins her standa á tvær hendur honum.

19. Og Drottinn sagði: ,Hver vill ginna Akab Ísraelskonung til þess að fara til Ramót í Gíleað og falla þar?' Og einn sagði þetta og annar hitt.

20. Þá gekk fram andi, staðnæmdist frammi fyrir Drottni og mælti: ,Ég skal ginna hann.' Og Drottinn sagði við hann: ,Með hverju?'

21. Hann mælti: ,Ég ætla að fara og verða lygiandi í munni allra spámanna hans.' Þá mælti hann: ,Þú skalt ginna hann, og þér mun takast það. Far og gjör svo!'

22. Þannig hefir þá Drottinn lagt lygianda í munn þessum spámönnum þínum, þar sem Drottinn hefir þó ákveðið að leiða yfir þig ógæfu."

23. Þá gekk að Sedekía Kenaanason, laust Míka kinnhest og mælti: "Hvaða leið hefir andi Drottins farið frá mér til þess að tala við þig?"

24. Þá mælti Míka: "Það munt þú sjá á þeim degi, er þú fer í felur úr einu herberginu í annað."

25. Þá mælti Ísraelskonungur: "Takið Míka og færið hann Amón borgarstjóra og Jóas konungssyni

26. og segið: ,Svo segir konungur: Kastið manni þessum í dýflissu og gefið honum brauð og vatn af skornum skammti, þar til er ég kem aftur heill á húfi.'"

27. Þá mælti Míka: "Komir þú aftur heill á húfi, þá hefir Drottinn eigi talað fyrir minn munn." Og hann mælti: "Heyri það allir lýðir!"

28. Síðan fóru þeir Ísraelskonungur og Jósafat Júdakonungur til Ramót í Gíleað.

29. Og Ísraelskonungur sagði við Jósafat: "Ég mun klæðast dularbúningi og ganga í orustuna, en þú skalt vera klæddur búningi þínum." Klæddist þá Ísraelskonungur dularbúningi, og gengu þeir í orustuna.

30. En Sýrlandskonungur hafði boðið foringjunum fyrir vagnliði sínu á þessa leið: "Þér skuluð eigi berjast við neinn, hvorki smáan né stóran, nema Ísraelskonung einan!"

31. Og er foringjarnir fyrir vagnliðinu sáu Jósafat, sögðu þeir: "Þetta er Ísraelskonungurinn!" og umkringdu hann til að berjast við hann. Þá kallaði Jósafat hátt, og Drottinn hjálpaði honum og Guð ginnti þá burt frá honum.

32. Og er foringjarnir fyrir vagnliðinu sáu, að það var ekki Ísraelskonungur, þá hættu þeir að elta hann.

33. En maður nokkur lagði ör á streng og skaut af handahófi, og kom á Ísraelskonung milli brynbeltis og pansara. Þá mælti hann við kerrusveininn: "Snú þú við og kom mér burt úr bardaganum, því að ég er sár."

34. Var bardaginn hinn harðasti um daginn, og Ísraelskonungur stóð í vagninum andspænis Sýrlendingum allt til kvölds, og dó hann um sólsetur.

About 2 Kroníkubók Chapter 18

Read 2 Kroníkubók Chapter 18 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Kroníkubók
Chapter: 18
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Kroníkubók Chapter 18 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Kroníkubók Chapter 18?

2 Kroníkubók Chapter 18 is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Kroníkubók Chapter 18 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Kronikubok

  1. 2 Kroníkubók Chapter 19
  2. 2 Kroníkubók Chapter 17
  3. 2 Kroníkubók Chapter 5
  4. 2 Kroníkubók Chapter 1
  5. 2 Kroníkubók Chapter 24
  6. 2 Kroníkubók Chapter 16
  7. 2 Kroníkubók Chapter 14

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 1 Mósebók Chapter 19
  2. 2 Samúelsbók Chapter 1
  3. Dómarabókin Chapter 21
  4. 2 Kroníkubók Chapter 10
  5. 1 Konungabók Chapter 6
  6. Sálmarnir Chapter 76
  7. 1 Mósebók Chapter 36

Related Chapters & Readings

  1. 2 Mósebók Chapter 8
  2. Sálmarnir Chapter 23
  3. Orðskviðirnir Chapter 14
  4. 2 Pétursbréf Chapter 2
  5. Jósúabók Chapter 11
  6. 1 Mósebók Chapter 24
  7. Rómverjar Chapter 3
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *