Read 2 Kroníkubók Chapter 11 Online
Read 2 Kroníkubók Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Kroníkubók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Kroníkubók 11
Kafli 11
1. En er Rehabeam kom til Jerúsalem, safnaði hann saman Júdamönnum og Benjamínsættkvísl, hundrað og áttatíu þúsundum einvalaliðs, til þess að berjast við Ísrael og ná konungdóminum aftur undir Rehabeam.
2. En orð Drottins kom til Semaja guðsmanns, svolátandi:
3. "Tala þú svo til Rehabeams, sonar Salómons, konungs í Júda, og til allra Ísraelsmanna í Júda og Benjamín:
4. Svo segir Drottinn: Farið eigi og berjist eigi við bræður yðar. Fari hver heim til sín, því að minni tilhlutun er þetta orðið." Og er þeir heyrðu orð Drottins, hurfu þeir aftur og hættu við að fara á móti Jeróbóam.
5. Rehabeam bjó síðan í Jerúsalem. Og hann gjörði nokkrar borgir í Júda að köstulum,
6. og hann gjörði Betlehem, Etam, Tekóa,
7. Bet Súr, Sókó, Adúllam,
8. Gat, Maresa, Síf,
9. Adóraím, Lakís, Aseka,
10. Sorea, Ajalon og Hebron, sem eru í Júda og Benjamín, að kastalaborgum.
11. Gjörði hann kastalana rammgjörva, setti þar höfðingja fyrir og lét þar forða vista, olíu og víns.
12. Og í hverja borg lét hann skjöldu og spjót, og víggirti þær afar rammlega. Og Júda og Benjamín lutu honum.
13. Prestarnir og levítarnir, er voru um allan Ísrael, komu úr öllum héruðum sínum og gengu honum til handa.
14. Því að levítarnir yfirgáfu beitilönd sín og óðul og fóru til Júda og Jerúsalem, því að Jeróbóam og synir hans höfðu rekið þá úr prestþjónustu fyrir Drottni,
15. og hafði hann sjálfur skipað sér presta fyrir fórnarhæðirnar og skógartröllin og kálfana, er hann hafði gjöra látið.
16. Og þeim fylgdu þeir af öllum ættkvíslum Ísraels, er lögðu hug á að leita Drottins, Guðs Ísraels. Komu þeir til Jerúsalem til þess að færa fórnir Drottni, Guði feðra þeirra.
17. Og þeir efldu Júdaríki og styrktu Rehabeam, son Salómons, í þrjú ár. Því að þeir fetuðu í fótspor Davíðs og Salómons í þrjú ár.
18. Og Rehabeam tók sér fyrir konu Mahalat, dóttur Jerímóts Davíðssonar og Abíhaílar, dóttur Elíabs Ísaísonar.
19. Ól hún honum sonu: Jeús, Semarja og Saham.
20. Og eftir hana fékk hann Maöku Absalonsdóttur. Hún ól honum Abía, Attaí, Sísa og Selómít.
21. Og Rehabeam unni Maöku Absalonsdóttur meira en öllum öðrum konum sínum og hjákonum, því að hann hafði tekið sér átján konur og sextíu hjákonur, og gat tuttugu og átta sonu og sextán dætur.
22. Og Rehabeam gjörði Abía, son Maöku, að ætthöfðingja, að höfðingja meðal bræðra sinna, því að hann hugðist mundu gjöra hann að konungi.
23. Og hann fór hyggilega að ráði sínu og skipti öllum sonum sínum niður á öll héruð í Júda og Benjamín, niður á allar kastalaborgir, fékk þeim gnóttir vista og bað þeim fjölda kvenna.
About 2 Kroníkubók Chapter 11
Read 2 Kroníkubók Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Kroníkubók
Chapter: 11
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Kroníkubók Chapter 11 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Kroníkubók Chapter 11?
2 Kroníkubók Chapter 11 is part of the Book of 2 Kroníkubók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Kroníkubók Chapter 11 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2 Kronikubok
- 2 Kroníkubók Chapter 17
- 2 Kroníkubók Chapter 19
- 2 Kroníkubók Chapter 5
- 2 Kroníkubók Chapter 1
- 2 Kroníkubók Chapter 29
- 2 Kroníkubók Chapter 24
- 2 Kroníkubók Chapter 18
Explore More from Gamla Testamentið
- 2 Kroníkubók Chapter 20
- Jobsbók Chapter 33
- 2 Konungabók Chapter 16
- Prédikarinn Chapter 8
- 2 Kroníkubók Chapter 1
- Sálmarnir Chapter 120
- 1 Mósebók Chapter 6