2 Mósebók Chapter 23

For English

Read 2 Mósebók Chapter 23 Online

Read 2 Mósebók Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Mósebók 23

Kafli 23

1. Þú skalt ekki fara með lygikvittu. Þú skalt ekki leggja lið þeim, er með rangt mál fer, til að gjörast ljúgvottur.

2. Þú skalt ekki fylgja fjöldanum til illra verka. Ef þú átt svör að veita í sök nokkurri, þá skalt þú ekki á eitt leggjast með margnum til þess að halla réttu máli.

3. Ekki skalt þú vera hliðdrægur manni í máli hans, þótt fátækur sé.

4. Ef þú finnur uxa óvinar þíns eða asna hans, sem villst hefir, þá fær þú honum hann aftur.

5. Sjáir þú asna fjandmanns þíns liggja uppgefinn undir byrði sinni, þá skalt þú hverfa frá því að láta hann einan. Vissulega skalt þú hjálpa honum til að spretta af asnanum.

6. Þú skalt ekki halla rétti fátæks manns, sem hjá þér er, í máli hans.

7. Forðastu lygimál og ver eigi valdur að dauða saklauss manns og réttláts, því að eigi mun ég réttlæta þann, sem með rangt mál fer.

8. Eigi skalt þú mútu þiggja, því að mútan gjörir skyggna menn blinda og umhverfir máli hinna réttlátu.

9. Eigi skalt þú veita útlendum manni ágang. Þér vitið sjálfir, hvernig útlendum manni er innanbrjósts, því að þér voruð útlendingar í Egyptalandi.

10. Sex ár skalt þú sá jörð þína og safna gróða hennar,

11. en sjöunda árið skalt þú láta hana liggja ónotaða og hvílast, svo að hinir fátæku meðal fólks þíns megi eta. Það sem þeir leifa, mega villidýrin eta. Eins skalt þú fara með víngarð þinn og olíutré þín.

12. Sex daga skalt þú verk þitt vinna, en sjöunda daginn skalt þú halda heilagt, svo að uxi þinn og asni geti hvílt sig, og sonur ambáttar þinnar og útlendingurinn megi endurnærast.

13. Allt sem ég hefi sagt yður, skuluð þér halda. Nafn annarra guða megið þér ekki nefna. Eigi skal það heyrast af þínum munni.

14. Þrisvar á ári skalt þú mér hátíð halda.

15. Þú skalt halda hátíð hinna ósýrðu brauða. Sjö daga skalt þú eta ósýrt brauð, eins og ég hefi boðið þér, á ákveðnum tíma í abíb-mánuði, því að í þeim mánuði fórst þú út af Egyptalandi. Enginn skal koma tómhentur fyrir mitt auglit.

16. Þú skalt halda hátíð frumskerunnar, frumgróðans af vinnu þinni, af því sem þú sáðir í akurinn. Þú skalt halda uppskeruhátíðina við árslokin, er þú alhirðir afla þinn af akrinum.

17. Þrem sinnum á ári skal allt þitt karlkyn birtast frammi fyrir herra Drottni.

18. Eigi skalt þú fram bera blóð fórnar minnar með sýrðu brauði, og feitin af hátíðafórn minni skal ekki liggja til morguns.

19. Hið fyrsta, frumgróða jarðar þinnar, skalt þú færa til húss Drottins Guðs þíns. Þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar.

20. Sjá, ég sendi engil á undan þér til að varðveita þig á ferðinni og leiða þig til þess staðar, sem ég hefi fyrirbúið.

21. Haf gát á þér fyrir honum og hlýð hans röddu, móðga þú hann ekki, því að hann mun ekki fyrirgefa misgjörðir yðar, því að mitt nafn er í honum.

22. En ef þú hlýðir röddu hans rækilega og gjörir allt, sem ég segi, þá skal ég vera óvinur óvina þinna og mótstöðu veita þínum mótstöðumönnum.

23. Engill minn skal ganga á undan þér og leiða þig til Amoríta, Hetíta, Peresíta, Kanaaníta, Hevíta og Jebúsíta, og ég skal afmá þá.

24. Þú skalt ekki tilbiðja þeirra guði og ekki dýrka þá og ekki fara að háttum þeirra, heldur skalt þú gjöreyða þeim og með öllu sundur brjóta merkissteina þeirra.

25. Þér skuluð dýrka Drottin, Guð yðar, og hann mun blessa brauð þitt og vatn, og ég skal bægja sóttum burt frá þér.

26. Engin vanbyrja og engin óbyrja skal finnast í landi þínu. Ég skal fylla tal daga þinna.

27. Ógn mína mun ég senda á undan þér og gjöra felmtsfullar allar þær þjóðir, sem þú kemur til, og alla óvini þína mun ég flýja láta fyrir þér.

28. Ég skal senda skelfingu á undan þér, og hún skal í burt stökkva Hevítum, Kanaanítum og Hetítum úr augsýn þinni.

29. Þó vil ég ekki stökkva þeim burt úr augsýn þinni á einu ári, svo að landið fari ekki í auðn og villidýrunum fjölgi ekki þér til meins.

30. Smám saman vil ég stökkva þeim burt úr augsýn þinni, uns þér fjölgar og þú eignast landið.

31. Og ég vil setja landamerki þín frá Rauðahafinu til Filistahafs, og frá eyðimörkinni til Fljótsins. Ég mun gefa íbúa landsins á vald yðar, og þú skalt stökkva þeim burt undan þér.

32. Þú skalt eigi gjöra sáttmála við þá eða þeirra guði.

33. Þeir skulu ekki búa í landi þínu, svo að þeir komi þér ekki til þess að syndga gegn mér, því ef þú dýrkar þeirra guði, mun það verða þér að tálsnöru."

About 2 Mósebók Chapter 23

Read 2 Mósebók Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Mósebók
Chapter: 23
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Mósebók Chapter 23 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Mósebók Chapter 23?

2 Mósebók Chapter 23 is part of the Book of 2 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Mósebók Chapter 23 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Mosebok

  1. 2 Mósebók Chapter 15
  2. 2 Mósebók Chapter 35
  3. 2 Mósebók Chapter 31
  4. 2 Mósebók Chapter 29
  5. 2 Mósebók Chapter 13
  6. 2 Mósebók Chapter 5
  7. 2 Mósebók Chapter 3

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Esekíel Chapter 19
  2. Sálmarnir Chapter 87
  3. Hósea Chapter 8
  4. 4 Mósebók Chapter 13
  5. 1 Konungabók Chapter 2
  6. Jeremía Chapter 7
  7. Hósea Chapter 7

Related Chapters & Readings

  1. 2 Korintubréf Chapter 5
  2. 1 Kroníkubók Chapter 8
  3. Matteus Chapter 20
  4. Jesaja Chapter 59
  5. Dómarabókin Chapter 17
  6. Sálmarnir Chapter 78
  7. 1 Kroníkubók Chapter 2
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *