Read Esekíel Chapter 4 Online
Read Esekíel Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Esekíel 4
Kafli 4
1. Þú mannsson, tak þér tigulstein, legg hann fyrir framan þig og drag þar upp borg, sem sé Jerúsalem.
2. Og reis þú hervirki gegn henni og hlað víggarð gegn henni. Hleyp upp jarðhrygg gegn henni, skipa hersetuliði um hana og set víghrúta umhverfis hana.
3. Og tak þér járnplötu og set hana sem járnvegg milli þín og borgarinnar. Snú því næst andliti þínu gegn henni, svo að hún komist undir hersetu og þú sitjir um hana. Þetta skal vera Ísraelsmönnum tákn.
4. En legg þú þig á vinstri hliðina og tak á þig misgjörð Ísraels húss. Alla þá daga, er þú liggur á henni, skalt þú bera misgjörð þeirra.
5. Og tel ég þér misgjörðarár þeirra til jafnmargra daga, – þrjúhundruð og níutíu daga -, og þannig skalt þú bera misgjörð Ísraels húss.
6. Og þegar þú hefir fullnað þessa daga, þá skalt þú leggjast á hægri hliðina hið annað sinn og bera misgjörð Júda húss, fjörutíu daga. Tel ég þér dag fyrir ár hvert.
7. Og þú skalt snúa andliti þínu og nöktum armlegg þínum gegn umsátri Jerúsalem, og þú skalt spá í gegn henni.
8. Og sjá, ég legg bönd á þig, svo að þú skalt ekki ná að snúa þér af einni hlið á aðra, uns þú hefir af lokið umsátursdögum þínum.
9. En tak þér hveiti, bygg, baunir, linsubaunir, hirsi og speldi. Lát það allt í eitt ker og gjör þér brauð af. Skalt þú hafa það til matar allan þann tíma, er þú liggur á hliðinni.
10. Og vega skal þér mat þinn, þann er þú neytir, tuttugu sikla á dag. Skalt þú neyta hans á ákveðnum tíma einu sinni á dag.
11. Mæla skal þér og vatn að drekka, sjöttung hínar í hvert sinn. Skalt þú drekka það á ákveðnum tíma einu sinni á dag.
12. Skalt þú eta það sem byggkökur, og þær skaltu baka við mannaþrekk fyrir augum þeirra.
13. Og Drottinn sagði: "Svo munu Ísraelsmenn eta brauð sitt óhreint hjá þjóðum þeim, er ég rek þá til."
14. Þá sagði ég: "Æ, Drottinn Guð! Sjá, ég hefi aldrei saurgað mig, og allt í frá barnæsku minni og fram á þennan dag hefi ég aldrei etið það, er sjálfdautt væri eða dýrrifið, og óhreint kjöt hefi ég aldrei lagt mér til munns."
15. Þá sagði hann við mig: "Sjá þú, ég leyfi þér að hafa nautatað í stað mannaþrekks. Við það skalt þú gjöra brauð þitt."
16. Og hann sagði við mig: "Þú mannsson, sjá, ég brýt sundur staf brauðsins í Jerúsalem, og þeir skulu eta brauðið eftir skammti og með angist, og vatnið skulu þeir drekka eftir mæli og með skelfingu,
17. til þess að þá skorti brauð og vatn og þeir skelfist hver með öðrum og veslist upp vegna misgjörðar sinnar."
About Esekíel Chapter 4
Read Esekíel Chapter 4 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Esekíel
Chapter: 4
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Esekíel Chapter 4 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Esekíel Chapter 4?
Esekíel Chapter 4 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 4 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Esekiel
- Esekíel Chapter 31
- Esekíel Chapter 15
- Esekíel Chapter 7
- Esekíel Chapter 12
- Esekíel Chapter 1
- Esekíel Chapter 48
- Esekíel Chapter 39
Explore More from Gamla Testamentið
- 4 Mósebók Chapter 15
- 2 Samúelsbók Chapter 14
- 3 Mósebók Chapter 23
- 4 Mósebók Chapter 33
- 1 Kroníkubók Chapter 17
- 1 Konungabók Chapter 7
- 4 Mósebók Chapter 4