For English

Read Amos Chapter 6 Online

Read Amos Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Amos in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Amos and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Amos 6

Kafli 6

1. Vei hinum andvaralausu á Síon og hinum öruggu á Samaríufjalli, aðalsmönnum hinnar ágætustu meðal þjóðanna, og þeim, er Ísraels hús streymir til.

2. Farið til Kalne og litist um, og haldið þaðan til Hamat hinnar miklu og farið ofan til Gat í Filisteu. Eruð þér betri en þessi konungsríki, eða er land yðar stærra en land þeirra?

3. Þeir ímynda sér, að hinn illi dagur sé hvergi nærri, og efla yfirdrottnun ranglætisins.

4. Þeir hvíla á legubekkjum af fílsbeini og liggja flatir á hvílbeðjum sínum. Þeir eta lömb af sauðahjörðinni og ungneyti úr alistíunni.

5. Þeir raula undir með hörpunni, setja saman ljóð eins og Davíð.

6. Þeir drekka vínið úr skálum og smyrja sig með úrvals-olíu – en eyðing Jósefs rennur þeim ekki til rifja.

7. Fyrir því skulu þeir nú herleiddir verða í fararbroddi hinna herleiddu, og þá skal fagnaðaróp flatmagandi sælkeranna þagna.

8. Drottinn Guð hefir svarið við sjálfan sig, – segir Drottinn, Guð allsherjar: Ég hefi viðbjóð á ofmetnaði Jakobs, ég hata hallir hans og framsel borgina og allt, sem í henni er.

9. Ef tíu menn eru eftir í einu húsi, skulu þeir deyja,

10. og ef frændi hans og líkbrennumaður tekur hann upp til þess að bera beinin út úr húsinu og segir við þann, sem er í innsta afkima hússins: "Er nokkur eftir hjá þér?" og hinn segir: "Nei!" þá mun hann segja: "Þei, þei!" Því að nafn Drottins má ekki nefna.

11. Því sjá, Drottinn býður að slá skuli stóru húsin, þar til er þau hrynja, og litlu húsin, þar til er þau rifna.

12. Hlaupa hestar yfir kletta, eða erja menn sjóinn með uxum, úr því þér umhverfið réttinum í eitur og ávöxtum réttlætisins í malurt?

13. Þér gleðjist yfir Lódebar, þér segið: "Höfum vér ekki fyrir eigin rammleik unnið Karnaím?"

14. Já, sjá, gegn yður, Ísraelsmenn, – segir Drottinn, Guð allsherjar – mun ég hefja þjóð, og hún skal kreppa að yður þaðan frá, er leið liggur til Hamat, allt að læknum á sléttlendinu.

About Amos Chapter 6

Read Amos Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Amos in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Amos
Chapter: 6
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Amos. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Amos Chapter 6 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Amos Chapter 6?

Amos Chapter 6 is part of the Book of Amos in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Amos Chapter 6 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Amos

  1. Amos Chapter 8
  2. Amos Chapter 4
  3. Amos Chapter 9
  4. Amos Chapter 1
  5. Amos Chapter 2
  6. Amos Chapter 3
  7. Amos Chapter 8

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Prédikarinn Chapter 12
  2. Míka Chapter 1
  3. 1 Samúelsbók Chapter 13
  4. Jobsbók Chapter 31
  5. Sakaría Chapter 5
  6. 2 Kroníkubók Chapter 15
  7. Esekíel Chapter 35

Related Chapters & Readings

  1. Dómarabókin Chapter 5
  2. Jobsbók Chapter 40
  3. Matteus Chapter 23
  4. Matteus Chapter 7
  5. Sálmarnir Chapter 14
  6. 2 Kroníkubók Chapter 25
  7. 2 Korintubréf Chapter 5
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *