Lúkas Chapter 15

For English

Read Lúkas Chapter 15 Online

Read Lúkas Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Lúkas in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Lúkas and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Lúkas 15

Kafli 15

1. Allir tollheimtumenn og bersyndugir komu til Jesú að hlýða á hann,

2. en farísear og fræðimenn ömuðust við því og sögðu: "Þessi maður tekur að sér syndara og samneytir þeim."

3. En hann sagði þeim þessa dæmisögu:

4. "Nú á einhver yðar hundrað sauði og týnir einum þeirra. Skilur hann ekki þá níutíu og níu eftir í óbyggðinni og fer eftir þeim, sem týndur er, þar til hann finnur hann?

5. Og glaður leggur hann sauðinn á herðar sér, er hann finnur hann.

6. Þegar hann kemur heim, kallar hann saman vini sína og nágranna og segir við þá: ,Samgleðjist mér, því að ég hef fundið sauðinn minn, sem týndur var.'

7. Ég segi yður, þannig verður meiri fögnuður á himni yfir einum syndara, sem gjörir iðrun, en yfir níutíu og níu réttlátum, sem ekki hafa iðrunar þörf.

8. Eða kona, sem á tíu drökmur og týnir einni drökmu, kveikir hún þá ekki á lampa, sópar húsið og leitar vandlega, uns hún finnur hana?

9. Og er hún hefur fundið hana, kallar hún saman vinkonur sínar og grannkonur og segir: ,Samgleðjist mér, því að ég hef fundið drökmuna, sem ég týndi.'

10. Ég segi yður: Þannig verður fögnuður með englum Guðs yfir einum syndara, sem gjörir iðrun."

11. Enn sagði hann: "Maður nokkur átti tvo sonu.

12. Sá yngri þeirra sagði við föður sinn: ,Faðir, lát mig fá þann hluta eignanna, sem mér ber.' Og hann skipti með þeim eigum sínum.

13. Fáum dögum síðar tók yngri sonurinn allt fé sitt og fór burt í fjarlægt land. Þar sóaði hann eigum sínum í óhófsömum lifnaði.

14. En er hann hafði öllu eytt, varð mikið hungur í því landi, og hann tók að líða skort.

15. Fór hann þá og settist upp hjá manni einum í því landi. Sá sendi hann út á lendur sínar að gæta svína.

16. Þá langaði hann að seðja sig á drafinu, er svínin átu, en enginn gaf honum.

17. En nú kom hann til sjálfs sín og sagði: ,Hve margir eru daglaunamenn föður míns og hafa gnægð matar, en ég ferst hér úr hungri!

18. Nú tek ég mig upp, fer til föður míns og segi við hann: Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér.

19. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn. Lát mig vera sem einn af daglaunamönnum þínum.'

20. Og hann tók sig upp og fór til föður síns. En er hann var enn langt í burtu, sá faðir hans hann og kenndi í brjósti um hann, hljóp og féll um háls honum og kyssti hann.

21. En sonurinn sagði við hann: ,Faðir, ég hef syndgað móti himninum og gegn þér. Ég er ekki framar verður að heita sonur þinn.'

22. Þá sagði faðir hans við þjóna sína: ,Komið fljótt með hina bestu skikkju og færið hann í, dragið hring á hönd hans og skó á fætur honum.

23. Sækið og alikálfinn og slátrið, vér skulum eta og gjöra oss glaðan dag.

24. Því að þessi sonur minn var dauður og er lifnaður aftur. Hann var týndur og er fundinn.' Tóku menn nú að gjöra sér glaðan dag.

25. En eldri sonur hans var á akri. Þegar hann kom og nálgaðist húsið, heyrði hann hljóðfæraslátt og dans.

26. Hann kallaði á einn piltanna og spurði, hvað um væri að vera.

27. Hann svaraði: ,Bróðir þinn er kominn, og faðir þinn hefur slátrað alikálfinum, af því að hann heimti hann heilan heim.'

28. Þá reiddist hann og vildi ekki fara inn. En faðir hans fór út og bað hann koma.

29. En hann svaraði föður sínum: ,Nú er ég búinn að þjóna þér öll þessi ár og hef aldrei breytt út af boðum þínum, og mér hefur þú aldrei gefið kiðling, að ég gæti glatt mig með vinum mínum.

30. En þegar hann kemur, þessi sonur þinn, sem hefur sóað eigum þínum með skækjum, þá slátrar þú alikálfinum fyrir hann.'

31. Hann sagði þá við hann: ,Barnið mitt, þú ert alltaf hjá mér, og allt mitt er þitt.

32. En nú varð að halda hátíð og fagna, því hann bróðir þinn, sem var dauður, er lifnaður aftur, hann var týndur og er fundinn.'"

About Lúkas Chapter 15

Read Lúkas Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Lúkas in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Lúkas
Chapter: 15
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Lúkas. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Lúkas Chapter 15 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Lúkas Chapter 15?

Lúkas Chapter 15 is part of the Book of Lúkas in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Lúkas Chapter 15 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Lukas

  1. Lukas Chapter 11
  2. Lukas Chapter 3
  3. Lukas Chapter 21
  4. Lukas Chapter 22
  5. Lukas Chapter 20
  6. Lukas Chapter 15
  7. Lukas Chapter 7

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Jakobsbréfið Chapter 4
  2. Matteus Chapter 11
  3. Rómverjar Chapter 5
  4. 2 Korintubréf Chapter 1
  5. Jóhannes Chapter 12
  6. 2 Pétursbréf Chapter 3
  7. Opinberunarbókin Chapter 9

Related Chapters & Readings

  1. 5 Mósebók Chapter 24
  2. Postulasagan Chapter 12
  3. 1 Korintubréf Chapter 10
  4. Sálmarnir Chapter 79
  5. 1 Samúelsbók Chapter 14
  6. Lúkas Chapter 20
  7. 5 Mósebók Chapter 15
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *