Read Galatabréfið Chapter 6 Online
Read Galatabréfið Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Galatabréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Galatabréfið and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Galatabréfið 6
Kafli 6
1. Bræður! Ef einhver misgjörð kann að henda mann, þá leiðréttið þér, sem andlegir eruð, þann mann með hógværð. Og haf gát á sjálfum þér, að þú freistist ekki líka.
2. Berið hver annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists.
3. Sá sem þykist vera nokkuð, en er þó ekkert, dregur sjálfan sig á tálar.
4. En sérhver rannsaki breytni sjálfs sín og þá mun hann hafa hrósunarefni í samanburði við sjálfan sig, en ekki miðað við aðra,
5. því að sérhver mun verða að bera sína byrði.
6. En sá, sem uppfræðist í orðinu, veiti þeim, sem uppfræðir, hlutdeild með sér í öllum gæðum.
7. Villist ekki! Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera.
8. Sá sem sáir í hold sjálfs sín, mun af holdinu uppskera glötun, en sá sem sáir í andann, mun af andanum uppskera eilíft líf.
9. Þreytumst ekki að gjöra það sem gott er, því að á sínum tíma munum vér uppskera, ef vér gefumst ekki upp.
10. Þess vegna skulum vér, meðan tími er til, gjöra öllum gott og einkum trúbræðrum vorum.
11. Sjáið, með hversu stórum stöfum ég skrifa yður með eigin hendi.
12. Allir þeir, sem vilja líta vel út að holdinu til, það eru þeir, sem eru að þröngva yður til að láta umskerast, einungis til þess að þeir verði eigi ofsóttir vegna kross Krists.
13. Því að ekki halda einu sinni sjálfir umskurnarmennirnir lögmálið, heldur vilja þeir að þér látið umskerast, til þess að þeir geti stært sig af holdi yðar.
14. En það sé fjarri mér að hrósa mér af öðru en krossi Drottins vors Jesú Krists. Sakir hans er ég krossfestur heiminum og heimurinn mér.
15. Umskurn eða yfirhúð skipta engu, heldur að vera ný sköpun.
16. Og yfir öllum þeim, sem þessari reglu fylgja, sé friður og miskunn, og yfir Ísrael Guðs.
17. Enginn mæði mig héðan í frá, því að ég ber merki Jesú á líkama mínum.
18. Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yðar anda, bræður. Amen.
About Galatabréfið Chapter 6
Read Galatabréfið Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Galatabréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Galatabréfið
Chapter: 6
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Galatabréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Galatabréfið Chapter 6 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Galatabréfið Chapter 6?
Galatabréfið Chapter 6 is part of the Book of Galatabréfið in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Galatabréfið Chapter 6 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from galatabrefid
- Galatabréfið Chapter 5
- Galatabréfið Chapter 1
- Galatabréfið Chapter 4
- Galatabréfið Chapter 3
- Galatabréfið Chapter 2
Explore More from Nýja Testamentið
- Rómverjar Chapter 14
- 2 Tímóteusarbréf Chapter 3
- 2 Þessaloníkubréf Chapter 3
- 1 Korintubréf Chapter 1
- Jóhannes Chapter 1
- 2 Pétursbréf Chapter 3
- Markús Chapter 13