Rómverjar Chapter 9

For English

Read Rómverjar Chapter 9 Online

Read Rómverjar Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Rómverjar in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Rómverjar and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Rómverjar 9

Kafli 9

1. Ég tala sannleika í Kristi, ég lýg ekki. Samviska mín vitnar það með mér, upplýst af heilögum anda,

2. að ég hef hryggð mikla og sífellda kvöl í hjarta mínu.

3. Ég gæti óskað, að mér væri sjálfum útskúfað frá Kristi, ef það yrði til heilla fyrir bræður mína og ættmenn,

4. Ísraelsmenn. Þeir fengu sonarréttinn, dýrðina, sáttmálana, löggjöfina, helgihaldið og fyrirheitin.

5. Þeim tilheyra og feðurnir, og af þeim er Kristur kominn sem maður, hann sem er yfir öllu, Guð, blessaður um aldir. Amen.

6. Það er ekki svo sem Guðs orð hafi brugðist. Því að ekki eru allir þeir Ísraelsmenn, sem af Ísrael eru komnir.

7. Ekki eru heldur allir börn Abrahams, þótt þeir séu niðjar hans, heldur: "Afkomendur Ísaks munu taldir verða niðjar þínir."

8. Það merkir: Ekki eru líkamlegir afkomendur hans Guðs börn, heldur teljast fyrirheitsbörnin sannir niðjar.

9. Því að þetta orð er fyrirheit: "Í þetta mund mun ég aftur koma, og þá skal Sara hafa son alið."

10. Og ekki nóg með það. Því var líka svo farið með Rebekku. Hún var þunguð að tveim sveinum af eins manns völdum, Ísaks föður vors.

11. Nú, til þess að það stæði stöðugt, að ákvörðun Guðs um útvalningu væri óháð verkunum og öll komin undir vilja þess, er kallar,

12. þá var henni sagt, áður en sveinarnir voru fæddir og áður en þeir höfðu aðhafst gott eða illt: "Hinn eldri skal þjóna hinum yngri."

13. Eins og ritað er: "Jakob elskaði ég, en Esaú hataði ég."

14. Hvað eigum vér þá að segja? Er Guð óréttvís? Fjarri fer því.

15. Því hann segir við Móse: "Ég mun miskunna þeim, sem ég vil miskunna, og líkna þeim, sem ég vil líkna."

16. Það er því ekki komið undir vilja mannsins né áreynslu, heldur Guði, sem miskunnar.

17. Því er í Ritningunni sagt við Faraó: "Einmitt til þess hóf ég þig, að ég fengi sýnt mátt minn á þér og nafn mitt yrði boðað um alla jörðina."

18. Svo miskunnar hann þá þeim, sem hann vill, en forherðir þann, sem hann vill.

19. Þú munt nú vilja segja við mig: "Hvað er hann þá að ásaka oss framar? Hver fær staðið gegn vilja hans?"

20. Hver ert þú, maður, að þú skulir deila á Guð? Hvort mundi smíðisgripurinn segja við smiðinn: "Hví gjörðir þú mig svona?"

21. Eða hefur ekki leirkerasmiðurinn leirinn á valdi sínu, svo að hann megi gjöra úr sama deiginu ker til sæmdar og annað til vansæmdar?

22. En ef nú Guð, sem vildi sýna reiði sína og auglýsa mátt sinn, hefur með miklu langlyndi umborið ker reiðinnar, sem búin eru til glötunar,

23. og ef hann hefur gjört það til þess að auglýsa ríkdóm dýrðar sinnar á kerum miskunnarinnar, sem hann hafði fyrirfram búið til dýrðar?

24. Slík ker erum vér, sem hann hefur kallað, ekki aðeins úr flokki Gyðinga, heldur og úr flokki heiðingja.

25. Eins og hann líka segir hjá Hósea: Lýð, sem ekki var minn, mun ég kalla minn, og þá elskaða, sem ekki var elskuð,

26. og á þeim stað, þar sem við þá var sagt: þér eruð ekki minn lýður, þar munu þeir verða kallaðir synir Guðs lifanda.

27. En Jesaja hrópar yfir Ísrael: "Þótt tala Ísraels sona væri eins og sandur sjávarins, þá skulu leifar einar frelsaðar verða.

28. Drottinn mun gjöra upp reikning sinn á jörðunni, binda enda á hann og ljúka við hann í skyndi,"

29. og eins hefur Jesaja sagt: "Ef Drottinn hersveitanna hefði ekki látið oss eftir niðja, værum vér orðnir eins og Sódóma, vér værum líkir Gómorru."

30. Hvað eigum vér þá að segja? Heiðingjarnir, sem ekki sóttust eftir réttlæti, hafa öðlast réttlæti, – réttlæti, sem er af trú.

31. En Ísrael, sem vildi halda lögmál er veitt gæti réttlæti, náði því ekki.

32. Hvers vegna? Af því að þeir ætluðu sér að réttlætast með verkum, ekki af trú. Þeir hnutu um ásteytingarsteininn,

33. eins og ritað er: Sjá ég set í Síon ásteytingarstein og hrösunarhellu. Sérhver, sem á hann trúir, mun ekki verða til skammar.

About Rómverjar Chapter 9

Read Rómverjar Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Rómverjar in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Rómverjar
Chapter: 9
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Rómverjar. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Rómverjar Chapter 9 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Rómverjar Chapter 9?

Rómverjar Chapter 9 is part of the Book of Rómverjar in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Rómverjar Chapter 9 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Nýja Testamentið

  1. Hebreabréfið Chapter 2
  2. Hebreabréfið Chapter 1
  3. Hebreabréfið Chapter 6
  4. Hebreabréfið Chapter 4
  5. Hebreabréfið Chapter 3
  6. Hebreabréfið Chapter 9
  7. Opinberunarbókin Chapter 1

Explore More from romverjar

  1. Rómverjar Chapter 13
  2. Rómverjar Chapter 3
  3. Rómverjar Chapter 2
  4. Rómverjar Chapter 8
  5. Rómverjar Chapter 12
  6. Rómverjar Chapter 7
  7. Rómverjar Chapter 16

Related Chapters & Readings

  1. Matteus Chapter 27
  2. Markús Chapter 2
  3. Óbadía Chapter 1
  4. 5 Mósebók Chapter 19
  5. Postulasagan Chapter 3
  6. Nehemíabók Chapter 9
  7. Jeremía Chapter 28
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *