Postulasagan Chapter 1

For English

Read Postulasagan Chapter 1 Online

Read Postulasagan Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Postulasagan in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Postulasagan and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Postulasagan 1

Kafli 1

1. Fyrri sögu mína, Þeófílus, samdi ég um allt, sem Jesús gjörði og kenndi frá upphafi,

2. allt til þess dags, er hann gaf postulunum, sem hann hafði valið, fyrirmæli sín fyrir heilagan anda og varð upp numinn.

3. Þeim birti hann sig lifandi eftir písl sína með mörgum órækum kennimerkjum, lét þá sjá sig í fjörutíu daga og talaði um Guðs ríki.

4. Er hann var með þeim, bauð hann þeim að fara ekki burt úr Jerúsalem, heldur bíða eftir fyrirheiti föðurins, "sem þér," sagði hann, "hafið heyrt mig tala um.

5. Því að Jóhannes skírði með vatni, en þér skuluð skírðir verða með heilögum anda, nú innan fárra daga."

6. Meðan þeir voru saman, spurðu þeir hann: "Herra, ætlar þú á þessum tíma að endurreisa ríkið handa Ísrael?"

7. Hann svaraði: "Ekki er það yðar að vita tíma eða tíðir, sem faðirinn setti af sjálfs sín valdi.

8. En þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar."

9. Þegar hann hafði þetta mælt, varð hann upp numinn að þeim ásjáandi, og ský huldi hann sjónum þeirra.

10. Er þeir störðu til himins á eftir honum, þegar hann hvarf, þá stóðu hjá þeim allt í einu tveir menn í hvítum klæðum

11. og sögðu: "Galíleumenn, hví standið þér og horfið til himins? Þessi Jesús, sem varð upp numinn frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins."

12. Þá sneru þeir aftur til Jerúsalem frá Olíufjallinu, sem svo er nefnt og er í nánd við Jerúsalem, hvíldardagsleið þaðan.

13. Er þeir komu þangað, fóru þeir upp í loftstofuna, þar sem þeir dvöldust: Pétur og Jóhannes, Jakob og Andrés, Filippus, Tómas, Bartólómeus, Matteus, Jakob Alfeusson, Símon vandlætari og Júdas Jakobsson.

14. Allir þessir voru með einum huga stöðugir í bæninni ásamt konunum. María, móðir Jesú, var líka með þeim og bræður hans.

15. Á þessum dögum stóð Pétur upp meðal bræðranna. Þar var saman kominn flokkur manna, um eitt hundrað og tuttugu að tölu. Hann mælti:

16. "Bræður, rætast hlaut ritning sú, er heilagur andi sagði fyrir munn Davíðs um Júdas, sem vísaði leið þeim, er tóku Jesú höndum.

17. Hann var í vorum hópi, og honum var falin sama þjónusta.

18. Hann keypti reit fyrir laun ódæðis síns, steyptist á höfuðið og brast sundur í miðju, svo að iðrin öll féllu út.

19. Þetta varð kunnugt öllum Jerúsalembúum, og er reitur sá kallaður á tungu þeirra Akeldamak, það er Blóðreitur.

20. Ritað er í Sálmunum: Bústaður hans skal í eyði verða, enginn skal í honum búa, og: Annar taki embætti hans.

21. Einhver þeirra manna, sem með oss voru alla tíð, meðan Drottinn Jesús gekk inn og út vor á meðal,

22. allt frá skírn Jóhannesar til þess dags, er hann varð upp numinn frá oss, verður nú að gjörast vottur upprisu hans ásamt oss."

23. Og þeir tóku tvo til, Jósef, kallaðan Barsabbas, öðru nafni Jústus, og Mattías,

24. báðust fyrir og sögðu: "Drottinn, þú sem þekkir hjörtu allra. Sýn þú, hvorn þessara þú hefur valið

25. til að taka þessa þjónustu og postuladóm, sem Júdas vék frá til að fara til síns eigin staðar."

26. Þeir hlutuðu um þá, og kom upp hlutur Mattíasar. Var hann tekinn í tölu postulanna með þeim ellefu.

About Postulasagan Chapter 1

Read Postulasagan Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Postulasagan in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Postulasagan
Chapter: 1
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Postulasagan. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Postulasagan Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Postulasagan Chapter 1?

Postulasagan Chapter 1 is part of the Book of Postulasagan in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Postulasagan Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Nýja Testamentið

  1. Hebreabréfið Chapter 1
  2. Hebreabréfið Chapter 10
  3. Hebreabréfið Chapter 2
  4. Opinberunarbókin Chapter 9
  5. Hebreabréfið Chapter 6
  6. Hebreabréfið Chapter 5
  7. Hebreabréfið Chapter 4

Explore More from postulasagan

  1. Postulasagan Chapter 27
  2. Postulasagan Chapter 21
  3. Postulasagan Chapter 26
  4. Postulasagan Chapter 13
  5. Postulasagan Chapter 5
  6. Postulasagan Chapter 12
  7. Postulasagan Chapter 6

Related Chapters & Readings

  1. Orðskviðirnir Chapter 12
  2. Jóel Chapter 1
  3. 1 Korintubréf Chapter 8
  4. Ljóðaljóðin Chapter 8
  5. 4 Mósebók Chapter 34
  6. Sálmarnir Chapter 21
  7. Jeremía Chapter 9
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *