Read Postulasagan Chapter 26 Online
Read Postulasagan Chapter 26 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Postulasagan in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Postulasagan and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Postulasagan 26
Kafli 26
1. En Agrippa sagði við Pál: "Nú er þér leyft að tala þínu máli." Páll rétti þá út höndina og bar fram vörn sína:
2. "Lánsamur þykist ég, Agrippa konungur, að eiga í dag í þinni áheyrn að verja mig gegn öllu því, sem Gyðingar saka mig um,
3. því heldur sem þú þekkir alla siðu Gyðinga og ágreiningsmál. Því bið ég þig að hlýða þolinmóður á mig.
4. Allir Gyðingar þekkja líf mitt frá upphafi, hvernig ég hef lifað með þjóð minni, fyrst í æsku og síðan í Jerúsalem.
5. Það vita þeir um mig, vilji þeir unna mér sannmælis, að ég var farísei frá fyrstu tíð, fylgdi strangasta flokki trúarbragða vorra.
6. Og hér stend ég nú lögsóttur vegna vonarinnar um fyrirheitið, sem Guð gaf feðrum vorum
7. og vorar tólf kynkvíslir vona að öðlast með því að dýrka Guð án afláts nótt sem dag. Fyrir þessa von er ég nú ákærður, konungur, og það af Gyðingum.
8. Hvers vegna teljið þér það ótrúlegt, að Guð veki upp dauða?
9. Sjálfur taldi ég mér skylt að vinna af öllu megni gegn nafni Jesú frá Nasaret.
10. Það gjörði ég og í Jerúsalem, hneppti marga hinna heilögu í fangelsi með valdi frá æðstu prestunum og galt því jákvæði, að þeir væru teknir af lífi.
11. Og í öllum samkundunum reyndi ég þrásinnis með pyndingum að neyða þá til að afneita trú sinni. Svo freklega æddi ég gegn þeim, að ég fór til borga erlendis að ofsækja þá.
12. Þá er ég var á leið til Damaskus slíkra erinda með vald og umboð frá æðstu prestunum,
13. sá ég, konungur, á veginum um miðjan dag ljós af himni sólu bjartara leiftra um mig og þá, sem mér voru samferða.
14. Vér féllum allir til jarðar, og ég heyrði rödd, er sagði við mig á hebresku: ,Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? Erfitt verður þér að spyrna móti broddunum.'
15. En ég sagði: ,Hver ert þú, herra?' Og Drottinn sagði: ,Ég er Jesús, sem þú ofsækir.
16. Rís nú upp og statt á fætur þína. Til þess birtist ég þér, að ég vel þig til þess að vera þjónn minn og vitni þess, að þú hefur séð mig bæði nú og síðar, er ég mun birtast þér.
17. Ég mun frelsa þig frá lýðnum og frá heiðingjunum, og til þeirra sendi ég þig
18. að opna augu þeirra og snúa þeim frá myrkri til ljóss, frá Satans valdi til Guðs, svo að þeir öðlist fyrir trú á mig fyrirgefningu syndanna og arf með þeim, sem helgaðir eru.'
19. Fyrir því gjörðist ég, Agrippa konungur, eigi óhlýðinn hinni himnesku vitrun,
20. heldur boðaði ég fyrst þeim í Damaskus og í Jerúsalem, síðan um alla Júdeubyggð og heiðingjunum að iðrast og snúa sér til Guðs og vinna verk samboðin iðruninni.
21. Sakir þessa gripu Gyðingar mig í helgidóminum og reyndu að ráða mér bana.
22. En Guð hefur hjálpað mér, og því stend ég allt til þessa dags og vitna bæði fyrir háum og lágum. Mæli ég ekki annað en það, sem bæði spámennirnir og Móse hafa sagt að verða mundi,
23. að Kristur ætti að líða og fyrstur rísa upp frá dauðum og boða bæði lýðnum og heiðingjunum ljósið."
24. Þegar Páll var hér kominn í vörn sinni, segir Festus hárri raustu: "Óður ert þú, Páll. Þitt mikla bókvit gjörir þig óðan."
25. Páll svaraði: "Ekki er ég óður, göfugi Festus, heldur mæli ég sannleiks orð af fullu viti.
26. Konungur kann skil á þessu, og við hann tala ég djarflega. Eigi ætla ég, að honum hafi dulist neitt af þessu, enda hefur það ekki gjörst í neinum afkima.
27. Trúir þú, Agrippa konungur, spámönnunum? Ég veit, að þú gjörir það."
28. Þá sagði Agrippa við Pál: "Þú þykist ekki vera lengi að gjöra mig kristinn."
29. En Páll sagði: "Þess bið ég Guð, hvort sem lengur dregst eða skemur, að ekki einungis þú, heldur og allir, sem til mín heyra í dag, verði slíkir sem ég er, að frátöldum fjötrum mínum."
30. Þá stóð konungur upp og landstjórinn, svo og Berníke og þeir, er þar sátu með þeim.
31. Þegar þau voru farin, sögðu þau sín á milli: "Þessi maður fremur ekkert, sem varðar dauða eða fangelsi."
32. En Agrippa sagði við Festus: "Þennan mann hefði mátt láta lausan, ef hann hefði ekki skotið máli sínu til keisarans."
About Postulasagan Chapter 26
Read Postulasagan Chapter 26 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Postulasagan in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Postulasagan
Chapter: 26
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Postulasagan. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Postulasagan Chapter 26 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Postulasagan Chapter 26?
Postulasagan Chapter 26 is part of the Book of Postulasagan in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Postulasagan Chapter 26 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Nýja Testamentið
- Hebreabréfið Chapter 1
- Hebreabréfið Chapter 6
- Hebreabréfið Chapter 2
- Hebreabréfið Chapter 10
- Hebreabréfið Chapter 5
- Opinberunarbókin Chapter 9
- Jakobsbréfið Chapter 5
Explore More from postulasagan
- Postulasagan Chapter 1
- Postulasagan Chapter 22
- Postulasagan Chapter 8
- Postulasagan Chapter 3
- Postulasagan Chapter 16
- Postulasagan Chapter 27
- Postulasagan Chapter 4